Morgunblaðið - 17.12.2014, Page 21

Morgunblaðið - 17.12.2014, Page 21
BAKSVIÐ Brynja Björg Halldórsdóttir brynja@mbl.is Sameinuðu félagi fjölmiðla- og fjar- skiptafyrirtækisins 365 miðla og farsímafyrirtækisins Tals verður óheimilt að gera það að skilyrði fyr- ir kaupum á þjónustu á fjölmiðla- markaði að fjarskiptaþjónusta fylgi með í kaupunum. Þetta er eitt fjög- urra skilyrða sem lýst er í tilkynn- ingu Samkeppniseftirlitsins um samruna félaganna, sem birt var í gær. Að sögn Sævars Freys Þráins- sonar, forstjóra 365 miðla, hafa skil- yrðin engin áhrif á hagkvæmni sam- runans. Hann segir sameininguna hafa formlega tekið gildi frá 1. júlí síðastliðnum. „Við fengum samein- inguna samþykkta síðastliðinn föstudag, starfsmenn Tals fluttu sig yfir til okkar í Skaftahlíðina á mánu- dag og nú stendur yfir undirbún- ingur við að kynna þjónustu hins sameinaða félags fyrir viðskiptavin- um. Næstu vikur munu fara í að klára að samþætta starfsemina.“ Þá segir hann ýmsar nýjungar kynntar fyrir viðskiptavinum eftir áramót, en hið sameinaða félag fékk heimild til að bjóða fram þjónustu sína á farsímamarkaði. Aðspurður kveðst hann ekki geta tjáð sig um þær nýjungar að svo stöddu. Gegn samkeppnishömlum Skilyrðin sem Samkeppniseftirlit- ið setti fyrir samrunanum eru sögð byggð á mati á samkeppnisaðstæð- um á viðkomandi mörkuðum og sett í því skyni að draga úr hættunni á mögulegum samkeppnishamlandi áhrifum samrunans. Ákvörðun um samrunann verður birt í heild sinni á næstu dögum. Sem fyrr segir er eitt skilyrðanna bann við því að gera það að skilyrði fyrir kaupum á þjónustu sem fyr- irtækið veitir á fjölmiðlamarkaði að fjarskiptaþjónusta fylgi með í kaup- unum. Annað skilyrði er bann við því að tvinna saman í sölu fjölmiðla- þjónustu fyrirtækisins og fjar- skiptaþjónustu þess gegn verði eða viðskiptakjörum sem jafna megi til slíks skilyrðis. Þá er hinu sameinaða félagi óheimilt að gefa einstaka þjónustuþætti í heild sinni. Einnig er það gert að skilyrði að innleið- ingu og uppbyggingu þjónustu á farsíma- og sjónvarpsdreifingar- markaði skuli lokið eigi síðar en 1. apríl 2016. Loks er gerð krafa um að gagnsæis sé gætt í verðlagningu mismunandi þjónustuþátta fyrir- tækisins. Tal fær 20% hlut í 365 Við samrunann fær Tal 19,78% hlut í 365 miðlum í gegnum félagið IP fjarskipti. Við það fer eignarhlut- ur félaga á vegum Ingibjargar Pálmadóttur, aðaleiganda 365, niður í 77,97%. Þannig á Moon Capital S.á.r.l. 55,05% hlut, ML 102 ehf. á 12,8% hlut og IP Studium ehf. á 10,12% hlut. Eignarhlutur Ara Edwald, fyrrver- andi forstjóra 365 miðla, þynnist einnig úr 6,2% í 2,25%. Eigendur IP fjarskipta eru fjár- festasjóðurinn Auður 1, sem á 94% hlut, og Kjartan Örn Ólafsson, sem á 6% hlut. Auður 1 er framtaks- sjóður í rekstri verðbréfafyrirtæk- isins Virðingar. Ákveðið var í maí síðastliðnum að auka hlutafé 365 miðla um einn milljarð króna, sem jafngilti þá fjórðungi af hlutafé félagins. Hluta- fjáraukningin kláraðist svo í sept- ember. Á hlutafjárfundi í júní var ákveðið að ef samruninn við Tal gengi eftir, myndi Tal færast inn í A-hluta en hlutafjáraukningin myndi hins vegar falla í B-flokk. Samruni Tals og 365 skilyrðum háð  Engin áhrif á hagkvæmni samruna, segir forstjóri 365 Morgunblaðið/Ómar Skaftahlíð Hið sameinaða félag starfar nú undir sama þaki, í húsnæði 365. Samruni » Samkeppniseftirlitið heim- ilaði samruna 365 miðla og Tals, með fjórum skilyrðum. » Eitt þeirra varðar bann við að gera það að skilyrði fyrir kaupum á þjónustu á fjöl- miðlamarkaði að fjar- skiptaþjónusta fylgi með í kaupunum. » Forstjóri 365 miðla segir skilyrðin ekki hafa nein áhrif á hagkvæmni samrunans. Neytendastofa hefur lagt 700 þús- und króna stjórnvaldssekt á Húsa- smiðjuna vegna skorts á verðmerk- ingum í verslunum fyrirtækisins í Reykjanesbæ og á Akranesi. Neytendastofa gerði athuga- semdir við verðmerkingar Húsa- smiðjunnar eftir að hafa skoðað hvort samræmi væri á milli verðs á hillu og á kassa á 25 vörum sem voru valdar af handahófi. Nið- urstaðan var sú að verðmerking- arnar voru ófullnægjandi í versl- ununum. Húsasmiðjan fékk frest til að lagfæra merkingarnar áður en þær yrðu kannaðar aftur. Þegar skoðuninni var fylgt eftir kom í ljós að ekki höfðu verið gerðar full- nægjandi lagfæringar. Húsasmiðjan 700 þúsund kr. sekt. Húsasmiðj- an sektuð FRÉTTIR 21Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2014 Skútuvogi 1c 104 Reykjavík Sími 550 8500 Fax 550 8510 www.vv.is NÝTT Á ÍSLANDI Ford rafmagns- handverkfæri Þessi ágætu rafmagnshandverkfæri eru óskaverkfæri fyrir alla handlagna að eiga á heimilinu. Kærkomin gjöf. Slípirokkur • 125 mm • 1200 w Verð: 9.475 kr. Stingsög • 650 w Verð: 5.961 kr. Skrúfborvél Hleðsluvél 18V 1,5Ah • 1 rafhlaða Li-Ion Verð: 17.043 kr. ÖFLUG OG ÓDÝR PIPA R \TBW A •SÍA •143541 HS Orka hefur keypt hlut í orkufyr- irtækinu Vesturverki, sem vinnur að virkjun Hvalár í Ófeigsfirði á Ströndum. Með kaupsamningnum verður HS Orka meirihlutaeigandi í félaginu og Vesturverki verður kleift að vinna áfram að rannsóknum og þróun virkjunarinnar í Hvalá. „Samningurinn við HS Orku gerir okkur kleift að halda áfram rann- sóknum og þróun Hvalárvirkjunar. Virkjunin mun hafa víðtæk og veru- lega jákvæð áhrif á atvinnulíf á Vest- fjörðum,“ segir Gunnar Gaukur Magnússon, framkvæmdastjóri Vesturverks, í tilefni samningsins. Ásgeir Margeirsson, forstjóri HS Orku, tekur í sama streng. „Orku- öryggi á Vestfjörðum hefur verið eitt helsta baráttumál íbúa þar um langt skeið enda hafa orkumál staðið at- vinnulífinu fyrir þrifum.“ Hvalárvirkjun verður líklega um 50 megavött og með orkugetu upp á 320 gígavött á ári. Virkjunin er á að- alskipulagi Árneshrepps og í nýting- arflokki rammaáætlunar ríkisstjórn- arinnar um nýtingu orkuauðlinda Íslands. Með tengingu til Ísafjarðar er virkjunin talin sá virkjunarkostur á Vestfjörðum sem tryggir orkuöryggi Vestfirðinga hvað best. brynja@mbl.is HS Orka kaupir hlut í Vesturverki Orkufyrirtæki Hér má sjá aðstand- endur félaganna tveggja. Kínverjar hyggjast opna nýja markaði í Austur- og Suðaustur- Evrópu. Þetta sagði Li Keqiang, forsætisráðherra Kína, á leið- togafundi í Belgrað í Serbíu þar sem voru samankomnir leiðtogar 16 landa á þeim slóðum. Li tilkynnti að því er fram kom hjá fréttastofunni Reuters að Kínverjar ætluðu samtals að leggja þrjá milljarða dollara í nýjan fjárfestingarsjóð. Einkum væri stefnt að því að fjárfesta í byggingu innviða, hvort sem það væri fyrir lestir, bíla eða skip. Hann vísaði til þess að Kínverjar ættu digra gjald- eyrissjóði og væru því viðskipta- félagar til fram- búðar. Hann lýsti einnig yfir ánægju með mikinn vöxt í viðskiptum Kína við löndin sextán. Þau myndu á þessu ári verða meiri en 60 milljarðar doll- ara. Kínverjar hyggjast auka umsvif sín í Austur-Evrópu Li Keqiang

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.