Morgunblaðið - 17.12.2014, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 17.12.2014, Blaðsíða 22
22 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2014 www.smyrilline.is Stangarhyl 1 · 110 Reykjavík Sími: 570-8600 · info@smyril-line.is Fjarðargötu 8 · 710 Seyðisfjörður Sími: 472-1111 · austfar@smyril-line.is Færeyjar 2 fullorðnir með fólksbíl Netverð á mann frá 34.500 Danmörk 2 fullorðnir með fólksbíl Netverð á mann frá 74.500 10% afsláttur Fullgreitt fyrir 1. marsÁ ferðum fram og til baka,gildir ekki með öðrum tilboðum. Bókaðu núna! Taktu bílinn með til Færeyja og Danmerkur 2015 Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Sex talibanar urðu að minnsta kosti 141 manni að bana, þar af 132 börn- um, þegar þeir réðust inn í barna- skóla í borginni Peshawar í Pakistan í gær. Yfirvöld sögðu þetta mann- skæðasta hryðjuverk í sögu landsins. Mörg barnanna létu lífið í mikilli sprengingu þegar einn árásarmann- anna sprengdi sjálfan sig í loft upp. Hinir árásarmennirnir fimm gengu á milli kennslustofa og skutu börn og kennara til bana. Skólinn er á meðal 146 barna- og framhaldsskóla sem her Pakistans rekur fyrir börn hermanna. Flestir þeirra sem létu lífið í árásinni í gær voru tólf til sextán ára. Foreldrar nemenda skólans söfn- uðust saman við sjúkrahús í Peshaw- ar og hágrétu þegar lík barnanna voru flutt þangað. Ein mæðranna, sem missti tólf ára son, sló sjálfa sig í andlitið í örvæntingu og lagðist á götuna fyrir framan sjúkrabíl. „Ó Guð, hversu vegna tókstu son minn frá mér? Hvaða synd hafa öll þessi börn drýgt?“ hrópaði hún. Heimskuleg dráp Talsmaður hreyfingar talibana sagði að hún hefði staðið fyrir árás- inni til að hefna drápa á talibönum og fjölskyldum þeirra í sókn hersins í Norður-Waziristan, sunnan og suð- vestan við Peshawar. „Við gerðum þetta vegna þess að við viljum að þeir finni það sjálfir hversu sárt það er að missa fjölskyldu sína. Við gríp- um til þessara aðgerða til að fjöl- skyldur þeirra þurfi að syrgja eins og fjölskyldur okkar.“ Þúsundir manna hafa beðið bana í uppreisn sem talibanar hófu árið 2007. Herinn hóf stórsókn gegn ísl- ömsku hreyfingunni í júní og yfir 1.600 talibanar hafa beðið bana í árásunum. Talat Masood, ráðgjafi í öryggis- málum og fyrrverandi hershöfðingi, segir að markmiðið með árásinni sé að draga úr baráttuvilja hersveit- anna. Talibanarnir viti að þeir geti ekki ráðist á herstöðvar og velji þess vegna „auðveld skotmörk“. „Slíkar árásir hafa mikil sálræn áhrif,“ hefur fréttaveitan AFP eftir honum. Fréttaskýrandi breska ríkisút- varpsins segir að stjórnmálamenn í Pakistan hafi hingað til verið tregir til að styðja sókn hersins gegn talib- önum. Hann telur að með því að myrða svo mörg börn hafi talibanar líklega „sameinað stjórnmálamenn- ina og herinn“ í baráttunni gegn öfgasamtökunum. Allir helstu stjórnmálaleiðtogar Pakistans fordæmdu drápin á skóla- börnunum. Nawaz Sharif forsætis- ráðherra sagði að árásin væri „þjóðarharmleikur af völdum villi- manna“. Stjórnarandstöðuleiðtoginn Imran Khan, fyrrverandi fyrirliði landsliðs Pakistans í krikket, for- dæmdi einnig árásina, lýsti henni sem „villimennsku“. Malala Yousafzai, handhafi friðar- verðlauna Nóbels, kvaðst vera harmi lostin vegna þessara „heimskulegu og grimmilegu drápa á saklausum börnum“. Malala er sautján ára og lifði af banatilræði talibana í október 2012 þegar þeir reyndu að ráða hana af dögum vegna baráttu hennar fyrir rétti stúlkna til að ganga í skóla. Þóttist vera dáinn Um 500 börn voru í barnaskólan- um þegar talibanarnir réðust inn í hann, klæddir herbúningum, klukk- an 10.30 að staðartíma í gærmorgun, kl. 5.30 að íslenskum tíma. Um átta klukkustundum eftir að árásin hófst sagði talsmaður hersins að allir árásarmennirnir væru fallnir. Sextán ára nemandi í skólanum bjargaði lífi sínu með því að fela sig undir borði og þykjast vera dáinn þegar árásarmennirnir réðust inn í stofu hans. „Líkaminn skalf,“ sagði hann. „Ég sá dauðann svo nálægt mér og á aldrei eftir að gleyma svörtu stígvélunum koma nær mér – mér fannst að dauðinn væri að nálg- ast mig.“ Drápu 132 börn í árás á skóla  Mannskæðasta hryðjuverk í sögu Pakistans  132 nemendur og níu starfsmenn biðu bana í árás talibana á skóla fyrir börn hermanna  Blóðbaðinu lýst sem „þjóðarharmleik af völdum villimanna“ Svæði á valdi ættbálka AFGANISTAN INDLAND Arabíuhaf 200 km ÍSLAMABAD Tugir barna létu lífið Karachi Peshawar Árás á skóla Talibanar réðust á skóla sem her Pakistans rekur AFP Blóðbað Særður nemandi borinn úr barnaskólanum eftir árás talibana. 141 beið bana í árásinni og meira en 110 særðust. Alls voru um 500 börn í skólanum þegar sex talibanar réðust inn í hann, vopnaðir sprengjum og byssum. Svívirðileg árás huglausra manna » „Þetta er hryllingur og það er til marks um algert hugleysi að ráðast á varnar- laus börn þegar þau eru að læra,“ sagði Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Samein- uðu þjóðanna, um dráp talib- ana á skólabörnunum. » „Með því að ráðast á nemendur og kennara í þess- ari svívirðilegu árás hafa hryðjuverkamennirnir enn einu sinni sýnt óeðli sitt,“ sagði Barack Obama, forseti Bandaríkjanna. Pönduþríburarnir, sem fæddust í dýragarði í kínversku borginni Gu- angzhou 29. júlí, hafa nú loksins fengið nöfn við hæfi. Elsta pandan fékk nafnið Mengmeng (Sæt) og bræður hennar heita Kuku (Flottur) og Shuai- shuai (Föngulegur). Þríburarnir fengu nöfnin við athöfn í dýragarðinum í fyrradag og kín- verski píanóleikarinn Li Yundi fékk þann heiður að leika fyrir þá nokkur lög. Hann hefur einnig verið sæmdur nafnbótinni „pöndusendiherra“. Fæðingu þríburanna var lýst sem kraftaverki vegna þess hversu fá af- kvæmi risapöndur eignast og þeir eru einu pönduþríburarnir sem vitað er um í heiminum. Pöndur hafa verið í útrýmingarhættu en nýjustu rann- sóknir benda til þess að þeim hafi fjölgað umtalsvert á síðustu árum. Talið er að um 1.600 villtar pöndur séu nú í Kína, að sögn fréttaveitunnar AFP. Pönduþríburarnir hafa fengið nöfn AFP Sæt og bræður hennar Flottur og Föngulegur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.