Morgunblaðið - 31.12.2014, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. DESEMBER 2014
HARÐSNÚINN
• blandari •
Verið velkomin í verslun okkar að Síðumúla 16. Opið mán - fös 8.30 - 17.00
Síðumúli 16 • 108 Reykjavík • Sími 580 3900 • www.fastus.is
Veit á vandaða lausn
Nýr öflugur 1000 vatta blandari frá Dualit sem hentar vel fyrir
heimili sem og smærri fyrirtæki. Ný tækni, svokölluð VortecS
tryggir að ekkert botnfall myndast og því blandast hráefnið
betur saman. Dualit blandarinn er með sérstaka ísmulnings
stillingu sem mylur jafnt ísmola sem og frosna ávexti.
• 2ja lítra harðplastkanna - sterk og höggþolin
• Auðvelt að losa könnu - létt og þægileg
• Má fara í uppþvottavél
Verð kr. 41.722,- m.vsk.
Umræða um lausatök í rekstriríkisins nú á síðustu dögum
ársins er ánægjuefni. Ekki vegna
þess að lausatök séu ánægjuleg,
heldur þvert á
móti.
Nú er það aðvísu svo að
núverandi fjár-
málaráðherra
kannast ekki við
nein lausatök og
bendir á að frum-
útgjöld fari lækkandi í hlutfalli við
landsframleiðslu. Það er gott svo
langt sem það nær.
Á hinn bóginn hefur ekki fariðframhjá almenningi að á sum-
um sviðum að minnsta kosti hafa
lausatökin verið viðhöfð.
Eitt áberandi dæmi um það erhækkun fjárframlaga til Rík-
isútvarpsins, sem nýtur einhverra
óútskýrðra sérkjara þegar kemur
að úthlutun skattfjár.
Þá hefur ekki heldur fariðframhjá almenningi hvernig
fulltrúar stjórnarflokkanna í fjár-
laganefnd hafa talað og þær
áhyggjur sem þeir hafa lýst af
skorti á hagræðingaraðgerðum.
Fyrir skattgreiðendur skiptirmiklu máli að hagræðingar-
áform nái fram að ganga og að
stofnanir og kerfi hafi ekki betur í
glímunni við stjórnmálamenn um
skattfé.
Enginn heldur því fram að þaðsé létt verk að hagræða í rík-
isrekstri, en stjórnvöld þurfa að
gera allt sem þau geta til að ná ár-
angri á því sviði. Til þess er lág-
mark að til staðar sé vilji til að tak-
ast á við fámenna en háværa
þrýstihópa.
Mikilvæg umræða
um lausatök
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 30.12., kl. 18.00
Reykjavík 3 skýjað
Bolungarvík 3 alskýjað
Akureyri 3 léttskýjað
Nuuk -6 léttskýjað
Þórshöfn 10 þoka
Ósló -6 heiðskírt
Kaupmannahöfn 2 skýjað
Stokkhólmur 0 skýjað
Helsinki 1 slydda
Lúxemborg 1 skýjað
Brussel 2 skýjað
Dublin 7 heiðskírt
Glasgow 6 léttskýjað
London 6 léttskýjað
París 3 skýjað
Amsterdam 2 léttskýjað
Hamborg 3 skýjað
Berlín -1 þoka
Vín -2 skýjað
Moskva -15 heiðskírt
Algarve 13 heiðskírt
Madríd 11 heiðskírt
Barcelona 11 heiðskírt
Mallorca 8 léttskýjað
Róm 2 heiðskírt
Aþena 5 súld
Winnipeg -27 heiðskírt
Montreal -12 léttskýjað
New York 0 heiðskírt
Chicago -8 skýjað
Orlando 21 alskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
31. desember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 11:21 15:42
ÍSAFJÖRÐUR 12:04 15:08
SIGLUFJÖRÐUR 11:49 14:49
DJÚPIVOGUR 10:59 15:02
Átta starfsmönnum fjölmiðlafyrir-
tækisins 365 var sagt upp á mánu-
dag. Forstjóri 365 segir uppsagnirn-
ar lið í því að hagræða í rekstri og
einfalda skipulag. Fólkið starfaði á
sölu-, þjónustu- og fjármálasviði.
Mikil uppstokkun hefur átt sér
stað á 365 miðlum eftir að Sævar
Freyr Þráinsson tók við sem for-
stjóri og Kristín Þorsteinsdóttir
gerðist útgáfustjóri. Í lok október
var tíu fastráðnum starfsmönnum
sagt upp auk átta verktaka og í sept-
ember hafði enn fleiri starfsmönnum
verið sagt upp störfum.
Nýtt skipulag kynnt bráðlega
Sævar segir að ekki sé von á frek-
ari uppsögnum og gerir hann ráð
fyrir að nýtt skipulag fyrirtækisins
verði kynnt snemma á nýju ári. Sam-
keppniseftirlitið heimilaði samruna
365 miðla og Tals undir merki 365
fyrr í mánuðinum. Af því tilefni var
haft eftir Sævari í tilkynningu að í
kjölfar sameiningarinnar yrði unnt
að bjóða nýjungar, sem ekki hefðu
sést áður á fjarskiptamarkaðnum.
Samkeppniseftirlitið setti þó skil-
yrði fyrir sameiningunni og verður
m.a. óheimilt að gera það að skilyrði
fyrir kaupum á þjónustu á fjölmiðla-
markaði að fjarskiptaþjónusta fylgi
með í kaupunum. sunnas@mbl.is
Átta sagt upp störfum hjá 365
Fólkið starfaði á sölu-, þjónustu- og fjár-
málasviði Hagrætt og skipulag einfaldað
Morgunblaðið/Ómar
365 Höfuðstöðvar fjölmiðlafyrir-
tækisins 365 við Skaftahlíð.
Herdís Stor-
gaard, verkefn-
isstjóri slysa-
varna barna,
segir að hlífar
um augu og
eyru séu nauð-
synlegir fylgi-
hlutir um ára-
mótin. Slys
vegna augnskaða og heyrnarskaða
berast reglulega eftir áramót og vill
Herdís árétta að hlífarnar séu ekki
slæm fjárfesting. „Ég veit til þess að
þau hjá heyrnarvernd hafa lengi bar-
ist fyrir þessu málefni. Mér finnst
eins og það sé að verða breyting á við-
horfi fólks því þessi öryggistæki eru
ódýr og ekki slæm fjárfesting.“ Her-
dís bendir einnig á að gott sé fyrir þá
að sem eru að skjóta upp að vera í ull
og með leðurhanska enda þau efni
minna eldfim en önnur. „Svo er líka
gott að áminna fólk að það er ekki
leyfilegt að skjóta upp við brennur.
Við fáum alltof margar tilkynningar
um slys sem verða á brennum vegna
fólks sem kveikir á flugeldum þar.“
Hlífar um
augu og
eyru nauð-
synleg
Bannað að skjóta
upp á brennum