Morgunblaðið - 31.12.2014, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. DESEMBER 2014
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Um og yfir 400 krónur hafa fengist
fyrir kíló af óslægðum þorski á fisk-
mörkuðum síðustu daga. Framboð
hefur verið lítið þessa daga, enda
yfirleitt ekki nema 40-50 skip á sjó,
stór og smá. Árið í heild verður
talsvert lakara á fiskmörkuðunum í
ár heldur en í fyrra, en 2013 var eitt
hið besta á fisk-
mörkuðunum.
Samkvæmt
upplýsingum frá
Eyjólfi Þór Guð-
laugssyni, fram-
kvæmdastjóra
Reiknistofu fisk-
markaðanna, er
líklegt að sala
ársins endi í tæp-
um 103 þúsund
tonnum fyrir um
27 milljarða. Sala gærdagsins og
dagsins í dag er ekki inni í þessum
tölum.
Talsverður samdráttur hefur orð-
ið miðað við síðasta ár þegar seld
voru tæplega 110 þúsund tonn fyrir
rúmlega 28 milljarða. Miklar sveifl-
ur einkenna það magn sem fer um
fiskmarkaðina frá ári til árs og
sömuleiðis er meðalverð mjög
breytilegt. Í ár er meðalverðið um
2% hærra en það var í fyrra.
Eyjólfur segir að þrátt fyrir sam-
drátt sé salan á fiskmörkuðum um-
fram þær áætlanir sem gerðar voru
fyrir árið, en þar var miðað við tæp-
lega 100 þúsund tonn. Áætlanir geri
síðan ráð fyrir að árið sem bíður
handan við hornið verði svipað og
það sem kveður í dag.
27 starfsstöðvar um allt land
Desember hefur verið einstak-
lega erfiður til sjósóknar, þrálátar
brælur og lítið framboð á mörk-
uðunum. Eyjólfur segir að um 12-
1300 tonnum muni á desember í ár
og í fyrra, en eins og gjarnan þegar
lítið framboð er þá hefur verðið ver-
ið mun hærra heldur en í fyrra.
Munar um 30 krónum á meðalverði
desembermánaðanna eða nálægt
10%.
Reiknistofa fiskmarkaðanna þjón-
ar öllum fiskmörkuðunum, en fyrir-
tæki á þessu sviði eru nú 13.
Stærstu markaðirnir eru með mörg
útibú víða um land og með útibúum
eru starfsstöðvarnar 27. Eigendur
að RSF eru Fiskmarkaður Íslands,
Fiskmarkaður Suðurnesja og Fisk-
markaður Vestmannaeyja.
Tveir þeir fyrrnefndu eru
stærstu markaðirnir með 35% og
24% hlutdeild eða saman með tæp-
lega 60% hlutdeild í fyrra. Í næstu
sætum á eftir koma fiskmarkaðir
Vestmannaeyja, Siglufjarðar og
Vestfjarða með 6-7% hlutdeild hver
á síðasta ári.
Sala á fiskmörkuðum 2007-2013
*áætlun
2007 2009 2011 20132008 2010 2012 2014*
Magn (kg)
Verðmæti
Meðalverð
97.723.866
15.573.553.073
159,36
94.263.342
16.927.702.754
179,58
103.466.375
21.780.760.000
210,51
96.621.392
26.191.646.847
271,08
91.502.313
26.051.197.409
284,71
102.115.784
28.672.695.337
280,79
109.817.028
28.102.807.058
255,91
103.000.000
27.000.000.000
261,71
Samdráttur á mörkuðum,
sala samt umfram áætlun
Selt fyrir um 27 milljarða á árinu Desember erfiður
Ljósmynd/Alfons Finnsson
Á Arnarstapa Góðum afla landað úr línubátnum Tryggva Eðvarðs SH 2.
„Við fáum send bréf hvaðanæva úr
heiminum,“ segir Guðrún Ólafía
Brynleifsdóttir, framkvæmdastjóri
Mývatnsstofu, en þangað berast fjöl-
mörg bréf ár hvert stíluð á jóla-
sveininn. Jólasveinarnir í Dimmu-
borgum hafa þar aðsetur og taka að
sér að svara bréfunum sem berast.
Vekur það mikla lukku á meðal
barnanna en mörg þeirra hafa áður
lagt leið sína í Dimmuborgir og hitt
jólasveinana þar, að sögn Guðrúnar
en hún segir bréfin berast allt árið
en þó aðallega í desember.
„Mörg barnanna eru að láta jóla-
sveininn vita að þau séu flutt,“ segir
Guðrún, aðspurð hvers efnis bréfin
séu en yfirleitt sé þó um að ræða
óskalista yfir leikföng, teikningar af
þeim eða úrklippur svo ekki fari á
milli mála hvaða leikfang átt er við.
Börnin láta svo heimilisfang sitt
fylgja með svo jólasveinninn geti
svarað.
Þurfa aðstoð við þýðingar
„Við lendum þó oft í algjörum
vandræðum með að lesa heimilis-
föngin,“ bætir Guðrún við og segir
bréfin koma jafnt utan úr heimi og
frá íslenskum börnum. Skemmtileg-
asta tilvikið segir hún vera bréf sem
barst frá kínversku barni á móð-
urmáli þess sem jólasveinarnir áttu í
mestu vandræðum með að ráða
fram úr en það hafi þó tekist á end-
anum með dyggri utanaðkomandi
aðstoð. Jólasveinarnir lýsa gjarnan
fjölskylduhögum sínum ásamt jóla-
hefðum hér á landi í svörum sínum
ef viðtakendurnir eru af erlendu
bergi brotnir. Þeir lauma líka inn
sögum af sér og uppátækjum sínum.
„En þeir lofa þó aldrei neinum gjöf-
um“ segir Guðrún.
Ljósmynd/Ingvar Einarsson
Bréf til jólasveinsins Þetta bréf barst frá kínversku barni á móðurmáli
þess og áttu jólasveinarnir í mestu vandræðum með að ráða fram úr því.
Íslensku jólasvein-
arnir fá jólapóst
Óskalistar og flutningstilkynningar
Fyrstu tilfelli inflúensu þennan vet-
urinn greindust hér á landi um hátíð-
irnar. Þetta staðfestir Þórólfur
Guðnason, staðgengill sóttvarna-
læknis, í samtali við mbl.is. Jafn-
framt greindust fyrstu tilfelli RS-
veirunnar um jólin.
„Þetta eru þær veirusýkingar sem
koma á hverjum vetri og yfirleitt á
þessum tíma,“ segir Þórólfur. „Inflú-
ensan fer að herja á landsmenn á
komandi vikum, hún byrjar yfirleitt
hægt en fer síðan á skrið.“
10-15% smitast af inflúensu
Þórólfur segir að um 10 til 15%
þjóðarinnar smitist af inflúensu í
hverjum umgangi.
„Hún er yfirleitt ekki alvarleg hjá
frískum einstaklingum en þeir sem
eru með undirliggjandi vandamál
eins og lungna- eða hjartasjúkdóma
geta fengið alvarlega inflúensu. Þess
vegna hvetjum við fólk til þess að
láta bólusetja sig og það er ekki of
seint að láta gera það núna þó að hún
sé byrjuð að greinast.“
RS-veiran herjar einkum á lítil
börn og getur verið þungbær fyrir
þau yngstu að sögn Þórólfs. „RS-
veiran herjar á öndunarfærin og lýs-
ir sér í kvefi og hósta. Getur hún
einnig valdið astmaeinkennum hjá
litlum börnum,“ segir Þórólfur. „Það
getur verið ansi erfitt og stundum
þarf að leggja lítil börn inn á sjúkra-
hús.“
Ekki til bóluefni gegn RS
RS-veiran er smitandi og er ekki
til bóluefni gegn henni.
„En að öðru leyti eru þessar
venjulegu pestir í gangi. Má þar
nefna öndunarfærasýkingar og nið-
urgangspestir sérstaklega. En þetta
er bara eins og venjulega,“ segir
Þórólfur. audura@mbl.is
Inflúensa og RS-
veira greinast
Embætti land-
læknis hvetur fólk til
að láta bólusetja sig
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Bólusetning Bólusett við inflúensu.
Eyjólfur Þór
Guðlaugsson
ÞVOTTAHÚS – EFNALAUG – DÚKALEIGA
Háaleitisbraut 58-60 • 108 Reykjavík www.bjorg.is • Sími 553 1380
Gleðilegt ár
GÆÐI – ÞEKKING – ÞJÓNUSTA
Jesús segir við
hann: „Ég er vegurinn,
sannleikurinn og lífið.
Enginn kemur til
föðurins nema
fyrir mig.“