Morgunblaðið - 31.12.2014, Síða 34
34 STJÓRNMÁL
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. DESEMBER 2014
Á
gætu landsmenn.
Um þessi áramót er bjartara yfir landinu okkar
en verið hefur um langan tíma, myrkur erfiðleika
í þjóðlífi og efnahagsmálum að baki og fram-
undan tími uppbyggingar og aukinnar velsældar.
Um leið og við gleðjumst yfir hækkandi sól og því sem vel hef-
ur til tekist á liðnu ári megum við ekki gleyma, að margir eiga
um sárt að binda vegna slysa, veikinda, ástvinamissis eða ann-
arra erfiðleika.
Viljinn til að rétta þeim sem minna mega sín hjálparhönd er
sterkur í samfélagi okkar og við getum líklega flest verið sam-
mála um að lengi megi gera betur í þeim efnum.
Í ríkisbúskap er í mörg horn að líta og verðug verkefni fleiri
en hægt er að gera sér í hugarlund í fljótu bragði. En það er
sama hversu gott málefnið er, ríkissjóður getur ekki frekar en
fjölskylda leyft sér til lengdar að eyða um efni fram. Rík-
isstjórnin er einhuga um að forgangsraða í þágu velferðar,
heilbrigðismála og heimilanna í landinu. Með þeim fjárlögum
sem samþykkt voru á Alþingi fyrir jól er lögð rík áhersla á að
verja og efla þessar grunnstoðir samfélagsins.
Heilbrigðismál eru málaflokkur sem snertir okkur öll og
veraldleg gæði mega sín lítils í samanburði við þau gæði sem
felast í góðri heilsu. Sem fámenn þjóð stöndum við vissulega
frammi fyrir mikilli áskorun þegar kemur að því að viðhalda
hér framúrskarandi heilbrigðisþjónustu um ókomin ár.
Eftir harkalegan niðurskurð á undangengnum árum var
heilbrigðiskerfið vissulega komið að þolmörkum en nú hefur
langvarandi vörn verið snúið í sókn og breyttar áherslur frá
niðurskurði fyrri ára birtast í fjárlögum þessa árs og þess
næsta. Rekstrarframlög til heilbrigðisstofnana hafa verið auk-
in og fjárveitingar til Landspítalans á árinu 2015 verða hærri
en nokkru sinni fyrr, jafnvel hærri en útgjaldaárin miklu 2007
og 2008. Auk þess hafa fjárveitingar til kaupa á lækninga-
tækjum verið sjöfaldaðar borið saman við fjárframlög til
tækjakaupa árin 2007 til 2012.
Þótt við viljum öll gera betur megum við ekki gleyma, að
sem þjóð höfum við lengi getað státað af einu öflugasta heil-
brigðiskerfi og samtryggingu í veröldinni. Þrátt fyrir fámenni
hefur okkur tekist að vera í hópi þeirra þjóða sem bjóða upp á
gott heilbrigðiskerfi sem allir eiga jafnan aðgang að, hvort
sem viðkomandi hefur efni á dýrum sjúkratryggingum eða
ekki.
Efnahagslegur bati og sögulegt tímabil stöðugleika
Íslensk heimili og atvinnulíf hafa á liðnu ári búið við ein-
stakt tímabil stöðugleika í efnahagsmálum. Verðbólga, einn
helsti óvinur launafólks, hefur nú í fyrsta sinn á öldinni haldist
stöðug og verið í næstum heilt ár fyrir neðan viðmið Seðla-
banka Íslands. Það er sögulegur árangur sem margir hafa átt
þátt í að skapa. Lág verðbólga, ásamt skynsamlegum ákvörð-
unum í ríkisfjármálum og kjarasamningum, varð til þess að
kaupmáttur jókst meira á árinu en bjartsýnustu menn þorðu
að vona. Aukning kaupmáttar á síðustu 12 mánuðum mælist
nú 5,5% og hefur hann aðeins einu sinni áður mælst meiri á
öldinni. Erfitt er að finna stærra hagsmunamál íslenskra
heimila og samfélagsins alls, en aukningu kaupmáttar og ráð-
stöfunartekna heimila. Í fjárlögum komandi árs er enn ýtt
undir þessa þróun, þar sem ýmsar beinar aðgerðir og breyt-
ingar á skattkerfinu eiga að leiða til enn frekari aukningar
ráðstöfunartekna heimilanna. Þar er sérstaklega hugað að því
að rétta hlut lágtekjufólks og fólks með millitekjur.
Fljótlega eftir áramót fara viðræður aðila vinnumarkaðarins
um nýja kjarasamninga af stað af fullum þunga. Væntingar
eru miklar en ekki er að efa að aðilar vinnumarkaðar skilja vel
þá ábyrgð sem á þeim hvílir. Það væri mikil synd ef einstakt
tækifæri til að verja verðlagsstöðugleika og halda áfram að
bæta kjör almennings á Íslandi færi forgörðum vegna átaka á
vinnumarkaði.
Öflug þjóð í gjöfulu landi
Íslendingar eru lánsöm þjóð, landið er gjöfult með miklar
náttúruauðlindir sem langt er frá að hafi verið nýttar til fulls.
Ungri og vel menntaðri þjóð sem býr við slík skilyrði frá nátt-
úrunnar hendi eru allir vegir færir. Ríkisvaldið þarf að veita
framsæknu, þróttmiklu og hugmyndaríku fólki skilyrði til að
reyna sig við stofnun og rekstur nýrra fyrirtækja sem skapa
þjóðinni aukna velsæld. Mikill gróska er nú í nýsköpun í at-
vinnulífinu og fjöldi nýrra fyrirtækja er til vitnis um þrótt, þor
og sköpunargleði þjóðarinnar. Í þeirri öflugu flóru nýsköp-
unarfyrirtækja sem nú auka fjölbreytni atvinnulífsins eru
mörg fyrirtæki sem hafa þegar náð að skara fram úr í al-
þjóðlegri samkeppni.
Náðst hefur mikill árangur í efnahags- og atvinnumálum
sem ríkisstjórnin mun byggja á til framtíðar til að skapa heil-
brigt umhverfi fyrir þróttmikið atvinnulíf og auðvelda þá
auknu framleiðslu verðmæta sem við þurfum til að standa
undir aukinni velferð á Íslandi. Samhliða því að fyrirtækjum
séu sköpuð sem best skilyrði til vaxtar er eðlilegt að gera þá
kröfu til atvinnulífsins að það láti launþega njóta árangursins
þegar vel gengur. Í því sambandi er mikilvægt að minnast
þess að rekstur fyrirtækja, eins og heilu samfélaganna, geng-
ur best ef hugað er að jafnræði.
Gríðarlegir hagsmunir eru í húfi fyrir þjóðina um ókomin ár
að vel takist til við framkvæmd afnáms gjaldeyrishafta. Ein
stærsta hindrunin eru þau miklu verðmæti í eigu þrotabúa
föllnu bankanna sem talin eru munu leita úr landi ef umbreyt-
ing krónueigna í erlendan gjaldmiðil verður gefin frjáls. Ríkis-
stjórnin mun hér eftir sem hingað til hafa afkomu og heill al-
mennings í landinu að leiðarljósi við allar ákvarðanir sem lúta
að afnámi hafta. Þeir sem vonast til að tíminn vinni gegn ríkis-
stjórninni í tengslum við uppgjör hinna föllnu banka fara villir
vegar. Ríkisvaldið mun ekki gera skuldir einkaaðila að sínum
eða setja stöðugleika í efnahagsmálum í uppnám með því að
gefa eftir í baráttu fyrir farsælli lausn þessara mála.
Gleðin
Stjórnmálamenn hvar í flokki sem þeir standa eiga það
sameiginlegt að við þá talar mikill fjöldi fólks, oft með góðar
ábendingar og athugasemdir um það sem má betur fara. Á
göngu upp Laugaveg á Þorláksmessu vatt ókunnug kona sér
að fjölskyldunni og sagðist vilja þakka fyrir það sem áunnist
hefði við landsstjórnina. Hún bætti við að það væri verst hvað
hinn þögli meirihluti væri óduglegur að láta í sér heyra meðan
„háværum nöldurseggjum“, eins og hún orðaði það, væri að
takast að ræna þjóðina gleðinni. Við eigum það flest sameigin-
legt að geta glaðst á góðri stundu og líða betur innan um þá
sem búa yfir gleði og lífshamingju frekar en nöldri og úr-
tölum. Víst er að lífið er of dýrmætt til að eyða því í formæl-
ingar og illmælgi. Gleði í samskiptum fólks bætir andrúmsloft
og gerir lífið skemmtilegra.
Magnús Ásgeirsson þýddi á snilldarlegan hátt ljóð frá ýms-
um löndum og eitt þeirra, ljóð eftir danska skáldið Axel Juel,
fjallar um gleði, hryggð og hamingju. Fyrsta erindið fjallar
um gleðina og hljóðar þannig:
Ljúfasta gleði allrar gleði
er gleði yfir því, sem er alls ekki neitt,
engu, sem manni er á valdi eða í vil,
gleði yfir engu og gleði yfir öllu,
gleðin: að vera til.
Með þessum ljóðlínum óska ég landsmönnum öllum gleði-
legs og gæfuríks nýs árs og þakka ánægjuleg samskipti á
liðnu ári.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra og formaður Framsóknarflokksins
Morgunblaðið/Eggert
Áramót
Íslendingar eru lánsöm þjóð í gjöfulu landi með
miklar náttúruauðlindir. Ungri og vel menntaðri
þjóð sem býr við slík skilyrði eru allir vegir færir.