Morgunblaðið - 31.12.2014, Side 41
STJÓRNMÁL 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. DESEMBER 2014
Þ
að má kannski líta á Pírata sem upplýsingatækni-
deildina. Hún þjónustar allar aðrar deildir stofn-
unarinnar og gerir þær samkeppnishæfari. Píratar
starfa með öllum sem vilja nýta tækifærin sem
upplýsingatæknin býður upp á til hagnýtingar fyr-
ir öll svið samfélagsins. Samstarfið með meirihlutanum hefur
verið gott á árinu. Ráðandi hlutinn í Reykjavík og ráðherrar
Sjálfstæðisflokksins hafa séð tækifærin í samstarfi og oft haft
frumkvæði að því. Samvinna sem bætir hag almennings er
mikilvæg samhliða aðhaldi með þeim sem fara með almanna-
valdið.
Opið bókhald í borginni
Píratar voru á árinu kosnir í Reykjavík, boðið í borgarstjórn
og hafa tvöfaldað fylgið frá kosningum eins og flokkurinn á
landsvísu. Borgarfulltrúi Pírata, Halldór Auðar Svansson, leið-
ir stjórnkerfis- og lýðræðisráð borgarinnar sem hefur það hlut-
verk að finna og þróa leiðir til að opna stjórnkerfi og bókhald
borgarinnar, bæta skilvirkni og viðmót þjónustunnar og auka
þátttöku íbúa í ákvarðanatöku. Halldór er bjartsýnn á að á
komandi ári verði bókhald borgarinnar opnað, og hefur sú
vinna verið sett í forgang ásamt endurskoðun upplýsingastefnu
Reykjavíkur.
Fíkniefnamisnotkun er heilbrigðisvandamál
Á Alþingi hafa Píratar líka átt gott samstarf við meirihlut-
ann jafnt sem minnihlutann. Tvær þingsályktanir sem Píratar
lögðu fram með þingmönnum úr öllum flokkum voru sam-
þykktar á árinu. Sú fyrri, frá því í vor, snýst um mótun nýrrar
stefnu til að draga úr skaðanum sem misnotkun fíkniefna felur
í sér. Í kjarnann miðar starfið að því að viðurkenna að misnotk-
un fíkniefna sé heilbrigðisvandamál sem þarf að nálgast sem
slíkt. Starfshópurinn sem ályktunin kallaði eftir starfar nú í
umboði heilbrigðisráðherra sem vill halda Pírötum inni í starf-
inu og skipaði því m.a. Helga Hrafn Gunnarsson, þingmann
Pírata, til að starfa í hópnum. Umræðan um nýjar leiðir til að
minnka skaðann af eiturlyfjamisnotkun hefur verið að opnast í
heiminum. Á Alþjóðaefnahagsráðstefnunni (WEF) í janúar
sagði fyrrverandi aðalritari Sameinuðu þjóðanna, Kofi Annan:
„Það er trú mín að eiturlyf hafi eyðilagt líf margra, en röng
stefna stjórnvalda hefur eyðilagt líf miklu fleiri. Við þurfum að
horfa á stefnuna og spyrja okkur einlæglega og heiðarlega;
virkar hún? Ef hún virkar ekki, höfum við hugrekki til að
breyta henni?“
Hagnýting internetsins og réttindavernd netnotenda
Síðari þingsályktun Pírata ásamt þingmönnum úr öllum
flokkum sem samþykkt var samhljóða núna í haust snýr að
hagnýtingu internetsins og réttindavernd netnotenda. Breiður
starfshópur sem ályktunin kallar eftir mun taka til starfa
snemma á nýja árinu. Iðnaðar- og viðskiptaráðherra sem hafði
frumkvæði að þessari vinnu hefur skipað undirritaðan þing-
mann Pírata til að leiða starfshópinn. Hópurinn hefur það hlut-
verk að innleiða heildstæða stefnu til að skapa kjöraðstæður
fyrir hagnýtingu internetsins og annarrar upplýsingatækni,
ásamt vernd á réttindum notenda, og undirbúa svo lagabreyt-
ingar eða nýja löggjöf sem stjórnvöld leggja fram. Tækifærin
eru mikil og á þessu kjörtímabili mun hagkerfi internetsins
nær tvöfaldast og verða fimmta stærsta hagkerfi heims, væri
það þjóðríki. McKinsey Global Institute bendir á að internetið
er í dag orðið grunnþáttur hagvaxtar, áhrif þess séu mikil og
aukast hratt. Í „Internet Matters“-skýrslunni frá þeim kemur
fram að internetið skapi 20% af hagvexti þróaðra hagkerfa og
75% af efnahagslegum áhrifum internetsins eigi sér stað í hefð-
bundnum iðnaði. Jafnframt leiddi rannsókn þeirra í ljós að lítil
og meðalstór fyrirtæki sem nýta internetið í miklum mæli vaxi
tvöfalt hraðar, ráði tvöfalt fleira starfsfólk og tvöfaldi útflutn-
ingstekjur sínar í samanburði við þau sem vanrækja það. The
Boston Consulting Group bendir á stærð tækifæranna með
orðunum: „Hvorki einstaklingar, fyrirtæki né ríkisstjórnir geta
litið fram hjá getu internetsins til að bjóða upp á meiri hagsæld
og verðmæti og það á breiðari grunni en nokkur efnahags-
þróun frá iðnbyltingunni.“ Rétt eins og í iðnbyltingunni, þá
mun velmegun vaxa hraðast í þeim löndum sem fyrst skapa
kjörlendi til að hagnýta nýju tæknina til fulls.
Fyrsta flokks heilbrigðisþjónusta
Nýsamþykkt fjárlög endurreisa ekki heilbrigðiskerfið og
læknar eru í verkfalli í fyrsta skipti í sögu landsins. Framlög til
heilbrigðismála aukast um 6 milljarða en samkvæmt forsvars-
mönnum allra heilbrigðisstofnana á Íslandi vantar enn þá 3
milljarða til að geta veitt nauðsynlega þjónustu. Fjárlögin eru
hallalaus upp á 3,5 milljarða. Við höfum enn þá fyrsta flokks
heilbrigðiskerfi á alþjóðlegan mælikvarða sem við byggðum
upp sem miklu fátækari þjóð. Kaupmáttur á mann er tvöfalt
meiri en hann var fyrir tuttugu árum. Við höfum efni á fyrsta
flokks heilbrigðiskerfi ef skattfé landsmanna er forgangsraðað
í það. Það eru fyrst og fremst sérfræðingarnir okkar sem gera
heilbrigðiskerfið fyrsta flokks en þeim fækkar ört. Þrisvar
sinnum fleiri hætta en hefja störf og vinnuálagið, eins og með-
allaun lækna sýna, er að meðaltali rúmir 13 tímar á dag ef
helgar eru undanskildar. Vinnuálag ekki síður en lág grunn-
laun er ástæðan til landflótta lækna. Þeir eru að brenna út. Án
töluvert hærri grunnlauna mun ástandið aðeins versna og
fyrsta flokks heilbrigðiskerfið okkar verður annars flokks. Það
er afar brýnt og áríðandi að ríkisstjórnin veiti samningsaðilum
ríkisins víðtækari heimildir til að ná samningum við lækna.
Fiskveiðistjórnun sem sátt ríkir um
Stóra málið á vorþinginu verður heildarendurskoðun fisk-
veiðistjórnunar. Frumvarpið er tilbúið að mestu og hefur verið
kynnt þingmönnum. Þó er mögulegt að ríkisstjórnin fresti að
leggja málið fram fyrr en í haust. Það væri mikill sigur fyrir
okkur öll ef landsmenn samþykkja í þjóðaratkvæðagreiðslu
fiskveiðistjórnunarkerfi sem sátt getur þá ríkt um. Kerfi sem
landsmönnum finnst sanngjarnt og skapar skilvirkni, sjálf-
bærni og stöðuleika. Píratar munu leggja sitt á vogarskálarnar
til að tryggja að landsmenn allir fái tillögur ríkisstjórnarinnar
til sín til samþykkis eða synjunar. Það eru tvær leiðir færar.
Ríkisstjórnin setur málið sjálf í þjóðaratkvæðagreiðslu eða
Forseti Íslands vísar málinu til þjóðarinnar. Þegar Ólafur
Ragnar Grímsson skrifaði undir frumvarp um lækkun sér-
stakra veiðigjalda á sumarþinginu í fyrra þá benti hann á að
mótstaðan á þingi hefði ekki verið næg og að ekki væri um
heildarendurskoðun að ræða. Þar sem núna verður um að ræða
heildarendurskoðun þá liggur það í loftinu að forsetinn verði
öryggisventill þjóðarinnar ef málið þæfist í þinginu og þjóðin
kallar það til sín.
Kærar þakkir fyrir samstarfið á árinu sem er að líða. Erum
til þjónustu reiðubúin á nýja árinu.
Jón Þór Ólafsson, þingmaður Pírata
Morgunblaðið/Eggert
Þökkum samstarfið
Við höfum enn þá fyrsta flokks heilbrigðiskerfi á
alþjóðlegan mælikvarða sem við byggðum upp
sem miklu fátækari þjóð. Kaupmáttur á mann er
tvöfalt meiri en hann var fyrir tuttugu árum. Við
höfum efni á fyrsta flokks heilbrigðiskerfi ef
skattfé landsmanna er forgangsraðað í það.