Morgunblaðið - 31.12.2014, Side 45
Morgunblaðið/Kristinn
UMRÆÐAN 45
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. DESEMBER 2014
1.7.2014 Jón L. Árnason
Hugleiðið að nýta
4% heimildina frá 1. júlí
Nú er kjörið tækifæri til þess
að gera eitthvað í málunum,
nýta sér 4% heimildina frá 1.
júlí og leiðréttinguna næstu
þrjú árin.
2.7.2014 Víglundur Þorsteinsson
Bréf til Ögmundar og Brynjars
Fyrst af öllu vil ég hvetja ykk-
ur til þess að kalla eftir þess-
um gögnum svo þau liggi fyr-
ir með lögformlegum hætti
svo Alþingi geti fjallað um
þau.
3.7.2014 Helgi Sigurðsson
Allir skulu vera jafnir
fyrir lögum
Með framgöngu sinni við
hleranir braut sérstakur sak-
sóknari gegn grundvall-
arreglum réttarríkisins um
réttarvernd sakborninga.
4.7.2014 Ásmundur Einar Daðason
Hvar eiga opinberar
stofnanir að vera?
Flutningur höfuðstöðva Fiski-
stofu er jákvætt og eðlilegt
skref í þá átt að því að jafna
dreifingu opinberra starfa.
7.7.2014 Sigrún Magnúsdóttir
COSTCO - Kostir og gallar
að er gott ef umræðan um
komu verslunarrisans
COSTCO til landsins verður
til þess að við kryfjum til
mergjar matvöru- og olíu-
markaðinn, sem og áfengissölu í almenn-
um matvöruverslunum.
8.7.2014 Þórunn Egilsdóttir
Styrking landsbyggðar - sterk-
ari höfuðborg?
En við hljótum að geta verið
sammála um það að til að
byggja hér upp sterkt sam-
félag þurfa innviðirnir að vera
sterkir um allt land.
9.7.2014 Óskar Axel Óskarsson
Ein stærsta viðskiptastund
Íslendinga er runnin upp
Íslendingar eru mjög fram-
arlega í tækni, nýsköpun og í
tísku en á sama tíma skortir
Kínverja þessa þekkingu en
eru aftur á móti með mjög
áreiðanlegt og gott vinnuafl og ekki vantar
nú fjöldann.
11.7.2014 Haukur Arnþórsson
Ný innri gerð í samgöngum
á Íslandi
Lestarsamgöngur myndu
dreifa álagi af ferðamönnum
um landið og opna nýja
möguleika í ferðaþjónust-
unni. Þá má nefna minna slit
á vegum vegna minni vöruflutninga milli
viðkomustöðva lestarinnar.
12.7.2014 Þórður Tómasson
Horft til baka um farinn veg
Aldrei get ég þakkað að full-
um verðleikum hinni gömlu
kynslóð sem leiddi mig fyrstu
fetin og gaf mér ást sína og
menningu sem ég bý að til
dagsins í dag.
14.7.2014 Jón Bjarnason
Heilbrigðisstofnunum á lands-
byggðinni látið blæða út
Mér þykir sárt að sjá heil-
brigðisstofnanirnar og þjón-
ustu þeirra á landsbyggðinni
molna niður og blæða út í
ákvörðunum stjórnvalda.
15.7.2014 Friðrik Friðriksson
Costco - aðdáunarvert fyrirtæki
Þrátt fyrir þá staðreynd að
Costco greiði hærri laun en
margir samkeppnisaðilar er
sala og hagnaður á starfs-
mann hærri en í viðmið-
unarfyrirtækjum.
16.7.2014 Björn Jónsson
Flutningur Fiskistofu - nokkur
lagaleg sjónarmið
Hefur verið staðið rétt að
málum og samkvæmt lögum
varðandi flutning Fiskistofu
til Akureyrar? Svarið er ein-
falt. Nei.
18.7.2014 Sindri Sigurgeirsson
Hvað fá neytendur
fyrir tollvernd?
Ef opnað er fyrir ótakmark-
aðan tollfrjálsan innflutning á
vörum sem við getum sinnt
framleiðslu á hérlendis er
ólíklegt að staðan breytist og
við yrðum því líklega að treysta á innflutn-
ing á þessum vörum til frambúðar.
19.7.2014 Ögmundur Jónasson
ÁTVR þjónar skattgreiðendum
og neytendum
Ef grundvallarbreyting á
þessu fyrirkomulagi verður
gerð á kostnað heilbrigð-
issjónarmiða, með tapi fyrir
ríkissjóð, minna úrvali, hærra
verði og lakari þjónustu fyrir neytendur,
þá spyr ég til hvers er unnið?
21.7.2014 Jón Steinar Gunnlaugsson
Sjálfsafgreiðsla?
Heimildin til hlerunar er ekki
hugsuð til að rannsakendur
megi löngu eftir að ætlað
brot er framið njósna um
sakborninga í von um að eitt-
hvað falli til sem stutt geti sakargiftir.
22.7.2014 Yngvi Örn Kristinsson
Danska húsnæðislánakerfið -
framför eða skref til baka?
Þessar breytingar þýða að í
raun búa dönsku fasteigna-
veðlánastofnanirnar við veru-
lega lausafjár- eða endur-
fjármögnunaráhættu þrátt
fyrir jafnvægisregluna.
23.7.2014 Sveinn Rúnar Hauksson
Ekki láta eins og ekkert sé
Getum við verið í stjórnmála-
sambandi við ríki sem hagar
sér einsog Ísrael, virðir al-
þjóðalög, mannslíf og mann-
réttindi nágranna að engu?
24.7.2014 Ari Trausti Guðmundsson
Gagnlegt bókvit um nýsköpun
Lykilgreinar um fjármögnun
nýsköpunar er að finna í bók-
inni, ásamt greinum um
klasastarfsemi nýmæli sem
hefur sýnt mátt sinn í jarð-
hita- og sjávarútvegsklösum.
25.7.2014 Ágústa Hildur Gizurardóttir
Hæstiréttur og orðheng-
ilsháttur
Gæti slík afgreiðsla Hæsta-
réttar staðist... er hann ekki
bundinn af ákveðinni jafn-
ræðisreglu í dómum sínum,
eða telur hann að tilgreining
lánsfjárhæðarinnar ein geti réttlætt þessa
mismunun?
26.7.2014 Ámundi Ólafsson
Því ver reynast ...
Það er mjög brýnt að skyldu-
aðild að lífeyrissjóðum verði
afnumin og launþegar fái
frelsi til að ráðstafa sínum líf-
eyri eftir breyttum reglum en
halda áður áunnum réttindum.
29.7.2014 Gústaf Níelsson
Steinn úr húsi Egils
Svo rammt kveður að hatri
Egils á Morgunblaðinu að
skopmyndateikningar blaðs-
ins lýsa að hans mati beiskju
en ekki húmor.
30.7.2014 Guðrún Kvaran
Íslensk málnefnd 50 ára
Fjölmargar tillögur um bætta
stöðu íslenskrar tungu er að
finna í bæklingnum Íslenska
til alls þar sem málstefnan er
kynnt.
31.7.2014 Leifur Þorsteinsson
Betur má ef duga skal
Það er sem sé deginum ljós-
ara að við verðum að taka til
hendinni til að geta tekið á
móti öllu þessu fólki, annars
fer illa fyrir okkur.
1.8.2014 Ólafur Örn Haraldsson
Íslenski fáninn á Þingvöllum
Við sinnum því níu fána-
stöngum á hverjum degi þar
af fimm þjóðfánum og fjórum
heimsminja- og Unesco-
fánum og er það drjúgur tími af föstum
morgunstörfum landvarða og starfs-
manna að sinna því á háannatíma.
2.8.2014 Guðmundur Ingi Þóroddsson
Refsistefna eða betrunarvist?
Taka verður fram að með því
að skipta um kerfi eins og
aðrar þjóðir hafa gert þýðir
það ekki að fangar sleppi fyrr
út eða taki út minni refsingu.
6.8.2014 Guðmundur G. Þórarinsson
Bandaríkin gera bara það
sem Ísrael leyfir þeim
Hér kemur ljóslega í ljós galli
kapítalíska kerfisins, þegar
auðugir aðilar fjármagna
kosningabaráttu valinna að-
ila. Gamla máltækið: Hvers
greiða þú nýtur, þess þræll ertu. Ábyrgð
Bandaríkjanna er mikil í þessum átökum.
9.8.2014 Pétur Magnússon
Gera þarf betur en að
halda bara í horfinu
Fjölgun í hópi veikra aldraðra
sem bíða eftir hjúkr-
unarrýmum bitnar á þjón-
ustu sjúkrahúsanna, einkum
Landspítala sem hýsir fjölda
veikra aldraðra einstaklinga sem hjúkr-
unarheimilin í landinu ættu að vera búin
að taka við.
11.8.2014 Marinó G. Njálsson
Lífeyriskerfi á krossgötum
Hið mikla tap lífeyrissjóð-
anna þýðir að ekki eiga allir
fyrir áunnum réttindum sjóð-
félaga. Lausnin er ekki að
senda komandi kynslóðum
reikninginn.
12.8.2014 Bjarni Th. Bjarnason
Í tilefni Fiskidagsins
mikla árið 2014
Fiskurinn er okkar að-
alsmerki og með þessum
degi viljum við sýna þann
styrk sem lítið samfélag sem
byggir að stórum hluta af-
komu sína á gæðum hafsins býr að.
13.8.2014 Vigdís Hauksdóttir
Kyrrstaðan rofin
Sú kyrrstaða sem ríkt hefur
hér undanfarin ár hefur verið
rofin á einungis fjórtán mán-
uðum í valdatíð þessarar rík-
isstjórnar.
14.8.2014 Lárus H. Bjarnason
Menntun, póltík og
menntapólitík
Við þurfum sárlega á því að
halda að hefja íslensk stjórn-
mál yfir það að einn flokkur
eða ein ríkisstjórn tefli fram
aðgerðaáætlun sem þurfi að
framkvæmast á einu kjörtímabili en verða
ella ómerk með öllu.
15.8.2014 Unnur Brá Konráðsdóttir
Framkvæmdaáætlun um upp-
byggingu heilbrigðiskerfisins
Uppbygging og framtíð-
arskipulag heilbrigðiskerf-
isins er ekki síður mikilvægt
en uppbygging samgangna
og því tel ég rétt og tímabært
að stíga þetta skref.
16.8.2014 Margrét Jónsdóttir
Valdníðsla Icelandair
í skjóli einokunar
Ánægja viðskiptavina er í fyr-
irrúmi hjá fyrirtækjum sem
eiga í samkeppni. Einok-
unarfyrirtækið Icelandair veit
hins vegar að ég verð að
fljúga með því áfram, hvort sem mér líkar
betur eða verr.
18.8.2014 Páll Torfi Önundarson
„Skítamix“ á Landspítalalóð
Tillaga okkar Magnúsar er
fullnægjandi lausn fyrir bráð-
astarfsemina og rannsókn-
arstofurnar til nokkurra ára-
tuga og ásýnd Þingholtanna
breytist ekki mikið.
19.8.2014 Ásmundur Friðriksson
Þjóðmenning og bænir
Þessi ákvörðun er hins vegar
algjörlega úr takti við góða
hefð, siði og hlutverk Rík-
isútvarpsins frá upphafi.
Þetta getur ekki gerst á okk-
ar vakt.
20.8.2014 Helga Dögg Sverrisdóttir
Kjarasamningur, hvað er það?
Ekki er ýkja langt síðan að
þrír þingmenn lögðu fram
frumvarp um lágmarkslaun í
landinu og að um lögbrot
væri að ræða ef lægri laun
væru greidd.
21.8.2014 Haukur Hjaltason
Minningu Einars Ben
verði sýndur sómi
Það er sannarlega við hæfi
að sýna þjóðskáldinu tilhlýði-
legan sóma af þessu tilefni
og þarft að kynna verk hans
og frumkvæði fyrir þjóðinni.
22.8.2014 Sölvi Sveinsson
Skólinn: Mikilvægasta stofnun
samfélagsins?
En til hvers eru þá skólar?
Kannski blasir það við, en
það er ei að síður gagnlegt
að spyrja þessarar spurn-
ingar því að svarið er ekki
einhlítt.
23.8.2014 Haraldur Einarsson
Fíkniefnið sykur
Umræða um hækkun virð-
isaukaskatts á matvæli teng-
ist einnig inn í lýðheilsu-
umræðuna, þar sem varast
verður að matarkarfan hækki
almennt í verði á meðan sykur og syk-
urvörur lækka hlutfallslega á móti.
26.8.2014 Hörður Harðarson
Gjaldeyrissparnaður og
innlend matvælaframleiðsla
Núverandi aðstæður í þjóð-
arbúskapnum sýna að rétt
væri að skoða með hvaða
hætti væri hægt að auka
framleiðslu á matvælum.
27.8.2014 Jón Ragnar Ríkharðsson
„Við eigum að skrifa
söguna sjálfir“
Ekki má gleyma lofgreinum
viðskiptaráðherrans, úr
vinstri armi flokksins, þar
sem hann dásamaði stjórn-
endur bankanna og sagði þá
vaxtarsprota Íslands.
28.8.2014 Ragnar Aðalsteinsson
Embættismaður fer að lögum
Þessi orðræða lögmannsins
er afar huglæg og einhliða og
hún einkennist ekki af þeirri
hlutlægni og jafnaðargeði,
sem ætla má að menn til-
einki sér með aldrinum.
29.8.2014 Geir Ágústsson
Barbararíkið Danmörk
og áfengið
Að heimila sölu á bjór og létt-
víni í matvöruverslunum er
jákvætt skref í þá áttina, og
ég vona að það verði tekið,
og að hið næsta, sem er tek-
ið alla leið, fylgi skammt á eftir.