Morgunblaðið - 31.12.2014, Side 46
46 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. DESEMBER 2014
1.9. Margrét Sanders
Ákall eftir skynsamlegri
umræðu um skynsamlega
skatttöku
Flókið skattaumhverfi felur í
sér óskilvirka og kostn-
aðarsama stjórnsýslu, hvort
sem það varðar álagningu
eða eftirlit.
2.9. Guðmundur Karl Jónsson
Hver sveik fögur loforð?
Án jarðganganna sem sam-
gönguáætlun gerir ráð fyrir á
suðurfjörðunum og í Fjarða-
byggð verða deilurnar um
staðsetningu Fjórðungs-
sjúkrahússins í Neskaupstað aldrei settar
niður.
3.9. Össur Skarphéðinsson, Þorsteinn
Stefánsson, Elías Pétur Þórarinsson
Marmaraurriðinn
Í Þingvallaurriðanum eiga Íslendingar ein-
stakan urriðastofn sem hvergi er að finna
á heimsvísu. Hann hefur lifað einangraður
í níu þúsund ár og varðveitt sérstaka eig-
inleika.
4.9. Róbert H. Haraldsson
Áfengi er ekki einkamál
Við eigum vitaskuld að virða
frelsi fullveðja einstaklinga
til að ráða eigin lífi sjálfir en
líka rétt samfélagsins til að
takmarka skaðann sem
áfengi veldur einstaklingum, fjölskyldum,
atvinnulífinu og samfélaginu öllu.
6.9. Kristinn E. Hrafnsson
Hvað tefur ráðherrann?
Hvað felst í svoleiðis skila-
boðum til annarra starfs-
manna skólans og hver eru
skilaboðin til starfandi lista-
manna fyrir utan skólann og
hvernig hljómar rökstuðningurinn fyrir
svona vinnubrögðum?
9.9. Vilhjálmur Bjarnason
Standa Fluggarðar Háskóla
Íslands fyrir þrifum?
Fluggarðar í Reykjavík eru
forsenda fyrir menntun og
þjálfun flugmanna í dag.
Þarna er aðstaða fyrir
kennsluflugvélar og viðhald
og geymsla einkaflugvéla.
10.9. Áslaug Briem
Gæði og fagmennska
í íslenskri ferðaþjónustu
Sjaldan hefur gæðavitund
ferðamanna verið meiri en í
dag og þeir hafa öflug vopn í
höndum með útbreiðslu
samfélagsmiðla.
11.9. Ingvar Gíslason
Skotland er líka fagurt og frítt
En nú vík ég loks aftur að því
sem mér er efst í huga: undr-
un minni á því hversu Íslend-
ingar eru fáfróðir um Skot-
land og skoska menningu.
12.9. Einar Örn Ólafsson
Laxeldi þar sem ekki eru villtir
laxastofnar
Fjarðalax er fylgjandi þeim
ströngu kröfum sem ríkja á
Íslandi hvað varðar laxeldi og
þeim miklu takmörkunum
sem gilda um staðsetningu
þess í sjó.
13.9. Heimir Örn Herbertsson
Ráðherra, rannsókn og RÚV
Skýringar ríkissaksóknara
sem fram hafa komið um að
lögreglustjóri höfuðborg-
arsvæðisins hafi stjórnað
rannsókninni ganga í ber-
högg við frásögn hans sjálfs.
16.9. Hallgrímur Helgason
Bókaþjóð með búrastjórn?
Við rithöfundar og bókaútgefendur erum
ekki að heimta nein forréttindi eða und-
anþágur frá sköttum og
skyldum. Þetta er meira
spurning um sjálfsagða tillits-
semi gagnvart viðkvæmum
hlut.
17.9. Finnur Árnason
Bætum hag bænda
Ég hef ítrekað bent á það að
íslenskir garðyrkjubændur
tókust á við aukið frelsi í við-
skiptum á þeirra markaði,
þegar tollvernd var afnumin.
18.9. Andrés Magnússon
Sameinumst um að
hafna vörugjöldum
Það er því ákall verslunar-
innar að þingheimur missi
ekki sjónar á þeim hags-
munum sem honum er falið
að gæta; að bæta lífsskilyrði
íslenskra neytenda.
19.9. Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson
Landsbyggðarvæl?
Þetta mál snýst ekki um ölm-
usur eða bitlinga til einstakra
gæluverkefna. Þetta mál
snýst ekki um kjördæmi eða
landshluta. Þetta mál snýst
um að skapa lífvænleg búsetu- og at-
vinnuskilyrði um land allt.
20.9. Sigurgeir Sindri Sigurgeirsson
Höldum staðreyndum
til haga
Það er orðinn árviss við-
burður að ýmsir, sem rýna í
fjárlögin, telja að þarna sé
ríkissjóður að styrkja hags-
munagæslustarf Bænda-
samtakanna. Það er fjarri lagi.
22.9. Silja Dögg Gunnarsdóttir
Flugið heillar - en hverjir hafa
ráð á því?
Flugmiði innanlands kostar í
sumum tilfellum jafnvel
meira en flugmiði til Kaup-
mannahafnar. Þetta er ekki
eðlilegt en hvað er til ráða?
24.9. Einar Sveinbjörnsson
Tíminn vinnur ekki með
okkur í loftslagsmálum
Lækkað sýrustig sjávar getur
með sama áframhaldi haft
gríðarmikil áhrif á lífríki sjáv-
ar. Súrnun sjávar tengist
ýmsum lífeðlisfræðilegum
ferlum.
25.9. Guðríður Arnardóttir
Hvítbók menntamálaráðherra
Hér hefur verið tekin pólitísk
ákvörðun án alls samráðs við
fagstéttirnar sem best og
gleggst þekkja skólastarf í
landinu.
29.9. Axel Kristjánsson
Tekur ASÍ völdin?
Engum kemur á óvart að
stuðningsmaður ríkisstjórnar
Jóhönnu Sigurðardóttur hóti
að beita verkfallsvopninu í
þeim pólitíska tilgangi að
knésetja ríkisstjórn og hindra að hún geti
unnið sín verk.
29.9. Stefán Einar Stefánsson
Jafnlaunavottun VR virkar vel
Nú þurfa fleiri aðilar að axla
ábyrgð og taka þau skref
sem endanlega munu gera út
af við kynbundinn launamun
á hinum almenna vinnumark-
aði.
1.10. Jón Magnússon
Ólyginn sagði mér
Með gagnályktun hefðu að-
dróttanir Þorvaldar verið
meiðyrði ef beinst hefðu að
öðrum dómurum Hæsta-
réttar.
2.10. Hrefna Kristmannsdóttir
Hvers á landsbyggðin að gjalda?
Mikilvægt er að gæðakröfur í
kennslu og rannsóknum séu
samræmdar og tryggt sé að
þær séu af sömu gæðum í há-
skólum á landsbyggðinni og í höfuðborginni.
3.10. Ólína Þorvarðardóttir
Bráðaaðgerðir í byggðamálum
Þegar ljóst er að tiltekin
svæði sitja á hakanum í öllu
því tilliti sem nú hefur verið
nefnt er það sjálfsögð og
eðlileg krafa til upplýstra
stjórnmálamanna að þeir leiðrétti þá
skekkju.
4.10. Svana Helen Björnsdóttir
Stjórnarhættir
Ef lífeyrissjóður á þess kost,
á grundvelli eignarhalds, ætti
hann að leitast við að tilnefna
vel hæfa fulltrúa í stjórnir fé-
laga, annað hvort einn og sér
eða í samstarfi við aðra aðila.
6.10. Skúli Magnússon
Ófjárráða dómstólar?
Íslenska dómskerfið er ódýrt
í alþjóðlegum samanburði en
nú eru flestir sammála um að
brýnt sé að huga að viðhalds-
og uppbyggingarstarfi eftir
áralangan niðurskurð.
8.10. Árni Gunnarsson frá Reykjum
Vandi Landspítalans
og vannýtt auðlind
Auðlindin er stórlega vannýtt
og býður upp á að í hana séu
sótt þau verðmæti sem
skortir til að viðhalda traust-
um rekstri Landspítalans.
9.10. Árni Páll Árnason
Aðför ríkisstjórnarinnar að
landsbyggðunum
Og enn keppist ríkisstjórnin
við að ala á óvild milli höf-
uðborgar og landsbyggðar.
Hún getur bara sundrað,
aldrei sameinað.
10.10. Ugla Stefanía Kristjönudóttir
Jónsdóttir og Andrea Dagbjörg Páls-
dóttir
Hin þráláta kynjaskipting
Það að fara á
klósettið getur
orðið að víg-
velli fyrir
marga þar
sem þau upplifa daglegt áreiti, bæði and-
legt og jafnvel líkamlegt áreiti.
11.10. Gunnar Bragi Sveinsson
Í nýtingu jarðvarma
felast tækifæri
Framtíðarsýn Alþjóðabank-
ans er útrýming fátæktar og
tekur Ísland virkan þátt í að
sú sýn verði að veruleika.
Verkefnið er stórt og glíma
þarf við margs konar áskoranir.
13.10. Svanur Guðmundsson
Ódýrt leiguhúsnæði og lausnir
Það er skylda ríkis og sveitar-
félaga að leysa vandann á
húsnæðismarkaði sem allra
fyrst og það er til lausn.
14.10. Bjarni Kristjánsson
Nokkrar staðreyndir um RÚV að
marggefnu tilefni
Stjórnin og núverandi út-
varpsstjóri kusu hins vegar
að fylgja framkvæmdinni
ekki eftir og efndu þar að
auki til mikilla útgjalda sem
ekki voru á áætlun. Veldur sá er á heldur.
15.10. Anna Sigríður Arnardóttir
Var ég heppin?
220 konur greinast með
brjóstakrabbamein á hverju
ári. Við þurfum að standa
saman um öflugt heilbrigð-
iskerfi, sem býður fólki upp á
lífsgæði og val.
16.10. Sigríður Jóhannsdóttir
Stytting stúdentsbrauta
í þrjú ár
Þá vaknar spurningin: Hvað á
að fella brott? Á að draga úr
kennslu í hverri grein til þess
að þurfa ekki að fækka
námsgreinum?
17.10. Matthías Arngrímsson
Heilinn sjálfur breytist við
neyslu kannabisefna
Það er nokkuð skýrt að full-
orðnir sem vita af ungu fólki í
neyslu verða að taka á vand-
anum af festu og ákveðni til
að reyna að forða næstu kyn-
slóðum frá þessum vágesti.
18.10. Helgi Hrafn Gunnarsson
Upplýsingin gegn illskunni
En tjáningarfrelsið snýr í báð-
ar áttir; það er ekki réttur
þeirra til að tjá sig sem ég
hef áhyggjur af, heldur okkar
eigin réttur til að heyra.
20.10. Friðrik Friðriksson
Fernt um RÚV
Rekstur RÚV er verri en áður,
aðallega vegna hækkunar
gjalda. RÚV á ekki heilagan
rétt á útvarpsgjaldinu
óskiptu, ráðstöfun þess er
pólitísk ákvörðun.
21.10. Eyþór H. Ólafsson
Aðgát skal höfð í nærveru sálar
Í Kastljósinu var reitt mjög
hátt til höggs og í raun voru
þessi tvö félög og þá þar með
starfsmenn þeirra dæmd sek
um alvarleg brot á sam-
keppnislögum.
22.10. Gréta Björg Egilsdóttir
Það sjá það allir að það
er nákvæmlega ekkert
að gerast þarna
Lokun brautarinnar myndi
hafa í för með sér lokun í 16
daga á ári umfram það sem
nú er og hefði slík lokun um-
talsverð áhrif á sjúkraflugið
til Reykjavíkur.
23.10. Heiðrún Lind Marteinsdóttir
Samkeppnislög eru
torskilin án leiðbeininga
Ef umferðarlög væru hins
vegar áþekk samkeppn-
islögum, þá gæti ákvæði um
hámarkshraða verið á þá leið
að óheimilt væri að aka
stórum bílum of hratt.
24.10. Jakob Frímann Magnússon
Hlúa ber að vöggu íslenskrar
menningar
Nýr útvarpsstjóri er á hár-
réttri braut er hann leitar
samstarfs við Reykjavík-
urborg um frekari nýtingu
Efstaleitislóðarinnar og losar
um helming RÚV-hússins í hagræðing-
arskyni.
25.10. Ólafur Stephensen
Evrópustefna og eftirfylgni
Í því ljósi hlýtur að vekja
furðu forsvarsmanna fyr-
irtækja, sem eiga mikið undir
greiðum milliríkjaviðskiptum
og aðgangi að Evrópumark-
aðnum, að Evrópustefnu stjórnvalda skuli
ekki hafa verið fylgt fastar eftir.
27.10 Erna Bjarnadóttir
ESB-umsóknin þarf að koma
aftur heim
Ef litið er til greinargerð-
arinnar sem fylgdi með
þingsályktun alþingis um að
sækja skyldi um aðild að ESB
sést að Ísland var í raun að
gera kröfur um frávik eða breytingar á
sjávarútvegsstefnu sambandsins.
30.10 Halldór Auðar Svansson
Gústaf Níelsson og hlutverk
borgarfulltrúa
Þó að ég telji aðhald borg-
aranna gagnvart valdsviði
kjörinna fulltrúa í fínasta lagi
verð ég hreinlega að lýsa mig
ósammála þessu tiltekna að-
haldi.
31.10 Erla Kristbjörg Sveinsdóttir
Er pláss fyrir tengdó
heima hjá þér?
Til að mæta breytingum sem
fylgja hækkuðum meðalaldri
þjóðarinnar þarf að gera
áætlanir í takt við þessa
breyttu aldurssamsetningu.
1.11 Ásmundur Stefánsson
Verjum jöfnuð og velferð
Ójöfnuður er óæskileg afleið-
ing af ótrufluðu markaðskerfi
rétt eins og mengun. Til að
markaðskerfið skili sínu þarf
hið opinbera að styrkja stoðir
velferðarkerfisins.