Morgunblaðið - 31.12.2014, Side 60
60 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. DESEMBER 2014
Smiðjuvegi 68-72, Rvk Hjallahrauni 4, Hfj Fitjabraut 12, Njarðvík Eyrarvegi 33, Selfossi Barðinn, Skútuvogi 2
Við tökum að okkur: Peruskipti, rafgeymaþjónustu,
bremsuviðgerðir, stýrisenda, spindilkúlur, kerti,
kertaþræði, hjólalegur, fjöðrunarbúnað, viftureimar,
hjólastillingar og margt fleira.
LAGFÆRUM
BÍLINN
VIÐ
www.solning.is
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það er of auðvelt að væla bara þegar
maður er óánægður. Þú ákveður að láta ekk-
ert buga þig. Taktu þér frí ef þú getur.
20. apríl - 20. maí
Naut Í dag gætir þú dregið að þér fólk sem
býr ekki yfir andlegum stöðugleika. Reyndu
að fá sem mest út úr samskiptum við börnin
þín. Gefðu þér tíma fyrir áhugamál þín.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Í dag breytist allt í gull sem þú
snertir. Ekki vera hissa þótt vinsældir þínar
eigi eftir að stigmagnast. Sýndu þolinmæði
og þá lagast allt af sjálfu sér.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þegar lífið flýtur áfram er enginn tími
til að bera fram spurningar. Reyndu að láta
gott af þér leiða og leggja þannig lífinu lið,
ekki veitir af.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Það er stutt í einhvern stóratburð sem
þú þarft að vera reiðubúin/n fyrir – hvað sem
það kostar. Hugsaðu fyrst og fremst um það
að hætta einhverju sem er skaðlegt heilsunni.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú átt ekki annars úrkosta en taka því
sem að þér er rétt þessa dagana. Finnist þér
þú vera að bogna skaltu fá aðra til liðs við
þig.
23. sept. - 22. okt.
Vog Nú ert lag til að betrumbæta umhverfið.
Gakktu glaður til verka, því þú átt í vændum
skemmtileg verkefni, sem gera kröfur til
hæfileika þinna.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú vonaðist til að geta gleymt
vandamáli sem þú hefur löngu leyst úr. Fullur
ísskápur veitir þér gleði.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Veltu fyrir þér nýju sambandi,
helst með einhverjum sem er erfitt að reikna
út. Þolinmæði er ekki þín sterkasta hlið.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú hefur djarfar og ákveðnar hug-
myndir um að græða pening í dag, og ert
mjög kraftmikil/l í vinnu. Gættu þess að gefa
ekki svo mikið frá þér að þú eigir ekkert af-
lögu handa þér. Þú hefur heppnina með þér
fyrstu daga ársins.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Hafðu ekki áhyggjur ef þú nennir
ekki vera framsækinn og uppfinningasamur í
vinnunni. Láttu andstöðu samstarfsfélaga
ekki verða þér fjötur um fót.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Það er hætt við einhverjum ruglingi í
vinnunni og einnig varðandi fyrirhugað ferða-
lag í dag. Gakktu úr skugga um hvern mann
kunningjar hafa að geyma áður en þú
ákveður að bæta þeim í vinahópinn.
Þessa japönsku tönku íslenskaðiHelgi Hálfdanarson:
Hvern dag hugsa ég:
víst getur þessi dagur
orðið síðastur.
Og sjá, einnig þetta ár
hef ég lifað til enda!
Ólafur Stefánsson skrifaði
skemmtilegan pistil á Leirinn, svo-
hljóðandi:
„Sumir strengja heit um áramót
og flest eiga þau það sameiginlegt
að vera brotin fyrr en varir. Það er
ekki að furða, því að þau ganga
flest út á að neita sér um eitthvað
gott og gómsætt eða leggja niður
gróinn vana og svokallaða ósiði,
sem eru orðnir hluti af sjálfinu, –
lífið sjálft. Það getur því verið
hrein lífsbjörg að brjóta slík heit
sem fyrst og snúa til sinna gömlu
lífshátta og verða normal á ný.
Aftur á móti er saklaust að bera
fram frómar óskir, – í hljóði, – til
almættisins, hvað maður vildi að
nýja árið bæri í skauti. Ekki biðja
um of mikið, ég sagði það ekki,
heldur gæta hófs. Þá er meiri von
um að óskirnar rætist.
Eyða vil ég árinu,
uppfullur af vonum.
Halda líka hárinu
og hafa sinnu á konum.
En áramót eru líka tími umhugs-
unar og uppgjörs. Það er ekki bara
Skatturinn sem vill hafa hreint
borð á þeim tímapunkti, heldur
hneigist einstaklingurinn líka til
þess að taka til í hugarranni og
horfa ýmist fram eða aftur eins og
guðinn Janus með andlitin tvö. Þá
skiptir máli á hvaða lífsskeiði mað-
urinn er staddur. Ungur maður lif-
ir fyrir framtíðina. Allt er í vonum
og lífið snýst um að byggja upp.
Starf, fjölskyldu, frama og
bankainnistæðu. Fortíðin er ekki
til, dagurinn í dag er of stuttur, en
allt það eftirsóknarverða er í fram-
tíðinni.
En þegar árum fjölgar og um
hægist þá snýst dæmið við. Fram-
tíðin er ekki til, fortíðin seiðir, en
það er varasamt að festast í henni.
Hún gerir menn leiðinlega, eig-
inlega alveg óþolandi. En þá er það
núið, hin líðandi stund, sem öllu
gildir.
Njóta þess sem dagurinn leyfir
okkur að grípa og una við það sem
við höfum.
Eftir því sem árin streyma
örar burt frá mér
er auðveldara öðru að gleyma
og una sæll hjá þér.“
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Gamlárs-skeggið hoggið
en nýtt tekur að vaxa
Í klípu
„MEÐ FULLRI VIRÐINGU, DÓMARI, ÞÁ
MYNDI ÞETTA EKKI GERAST SVONA OFT
EF ÞÚ LÉTIR RÉTTARHÖLDIN ÞÍN EKKI
DRAGAST SVONA LENGI.“
LEIÐINLEGT!
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÞEGAR VIÐ KOMUM AFTUR Í LAND ÆTLA
ÉG AÐ KÆRA ÞIG FYRIR UPPREISN.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að sættast alltaf eftir
netrifrildi áður en þið
farið af netinu.
AF HVERJU GRAFA
HUNDAR BEIN?...
ENGINN
VEIT
BÍDDU
NÚ VIÐ...
GRAF
GRAF
GRAF
SVAFSTU
VEL?
EKKI
SVO...
LÆRÐIRÐU
EITTHVAÐ?
ÉG BÝST
VIÐ ÞVÍ...
ÞÚ HEFUR BÆTT „HÁUM HROTUM“ VIÐ
BANNLISTANN MINN...
Reglugerðir virðast stundumstækka og fjölga sér líkt og
væru þær lífrænar. Þar gildir ná-
kvæmnin, skilgreina þarf hvernig
gúrkur og bananar eigi að vera í lag-
inu þannig að neytendum sé boðlegt.
Víkverji hefur stundum velt því fyrir
sér hvort það sé sérstök keppnis-
grein hjá embættismönnum að gera
reglugerðir þannig úr garði að þær
skapi sem mest umstang og ama og
geri hið einfalda flókið. Maðurinn
hafi fundið upp reglugerðina, en hún
síðan tekið völdin og stjórni nú
manninum.
x x x
Winston Churchill sagði að meðþví að setja tíu þúsund reglu-
gerðir yrði virðingin fyrir lögunum
að engu gerð.
x x x
George Bernard Shaw sagði aðþað væri aðeins ein gullin regla
og hún væri sú að það væru engar
gullnar reglur.
x x x
Víkverji fékk fróðlegan póst ný-verið um þróun reglugerðar-
innar og stenst ekki mátið að rekja
efni hans.
x x x
Kenning Pýþagórasar er 24 orð.
x x x
Faðirvorið er 64 orð.
x x x
Lögmál Arkimedesar er 67 orð.
x x x
Boðorðin tíu eru 281 orð.
x x x
Sjálfstæðisyfirlýsing Bandaríkj-anna er 1.300 orð.
x x x
Stjórnarskrá Íslands er 3.904 orð.
x x x
Stjórnarskrá Bandaríkjanna er7.818 orð með viðbótum.
x x x
Reglugerð Evrópusambandsinsum sölu káls er 26.911 orð.
víkverji@mbl.is
Víkverji
Orð dagsins: Breyttu ekki eftir því,
sem illt er, minn elskaði, heldur eftir
því, sem gott er. (3. Jh 11.)