Fréttablaðið - 28.08.2015, Síða 2
FRÁBÆRT GRILL
Smiðjuvegi 2, Kóp - S. 554 0400 Opið til kl. 16 á laugardag
• Orka 8 KW = 27.300 BTU
• 2 brennarar úr ryðfríu stáli
• Postulínsemalerað eldhólf
• Grillgrindur úr pottjárni
• Stór postulínsemaleruð efri grind
• PTS hitajöfnunarkerfi sem
skapar einstaklega jafnan hita
• Kveiking í báðum tökkum
• Niðurfellanleg hliðarborð
• Tvöfalt einangrað lok m. mæli
• Auðveld þrif - Bakki fyrir fitu
undir öllu grillinu - 4 hjól
• Grillflötur: 46 x 44 cm
• Stærð: BxHxD 123/79 x 121 x 55 cm
* Yfirbreiðsla fylgir í takmarkaðan tíma
Er frá Þýskalandi
FULLT VERÐ
79.900
69.900
Sérsnið
in
yfirbre
iðsla
að verð
mæti
kr.5.99
0,-
fylgir*
Skoðið úrvalið á
www.grillbudin.is
Niðurfellanleg
hliðarborð
Veður
Áfram hvöss norðanátt norðvestan-
og vestanlands í dag, en dregur úr
vindinum þegar líður á daginn. Annars
staðar hægari norðlæg átt og víða
rigning, þar á meðal úrhelli á Ströndum.
Sunnan- og suðvestanlands er hins
vegar útlit fyrir léttskýjað sumarveður.
Kólnar vel fyrir norðan og vestan, en
áfram hlýjast sunnanlands með hita
upp í 17 stig. Sjá Síðu 24
MenntaMál „Það er svo erfitt að
byggja upplýsta umræðu á sölutölum
á nýjum bókum þar sem skiptibóka-
markaðir fara fram mikið innan
nemendafélaganna. Auk þess eru
Facebook-grúppur þar sem bækur
ganga kaupum og sölum,“ segir Aron
Ólafsson, formaður Stúdentaráðs
Háskóla Íslands.
Fréttablaðið fjallaði í vikunni um
áhyggjur kennara við skólann af því
að einungis 40% nemenda við skól-
ann keyptu skyldulesefni sitt nýtt frá
Bóksölu stúdenta. „Ég tel að áður en
við förum að bregðast við eða kalla
þetta yfirborðsnám eða hvað sem við
viljum segja eigum við að spyrja nem-
endur hvort þeir útvegi sér náms-
efnið,“ segir Aron.
„Mér finnst að við verðum að afla
fleiri gagna til að geta lýst yfir neyðar-
ástandi vegna þessa. Það eru léleg
akademísk vinnubrögð að fókusera
bara á þennan hluta,“ bætir hann við
og segir að til þess að tryggja að nem-
endur séu með skyldulesefni gæti
verið snjallt að auka símat og vinna
fleiri verkefni upp úr námsefninu.
„Í fyrsta lagi er kannski rétt að taka
fram að sölutölur Bóksölunnar eru
ekki nægur grunnur til að álykta um
hverjir kaupa hvaða bækur og hvort
þeir lesi þær,“ segir Nanna Elísa Jak-
obsdóttir, formaður Landssamtaka
íslenskra stúdenta (LÍS). „Hins vegar
er staðreyndin sú að þegar kemur
að sumum fögum er bókakostnaður
svimandi hár, hann hleypur oft á
tugum þúsunda,“ bætir hún við.
„Það veldur oft kvíða á haustin
og eftir jól því bókalánið hjá LÍN er
einfaldlega ekki í samræmi við raun-
kostnað,“ segir Nanna.
Hún segir nemendur þá leita ódýr-
ari leiða til að koma höndum yfir
námsefnið. Meðal annars með því
að kaupa notaðar, eldri bækur, sem
hún segir oft nánast alveg eins og
fyrri útgáfur. „Það sýnir ekki slæmar
námsvenjur eða yfirborðslærdóm að
bjarga sér með öðrum leiðum,“ segir
Nanna og skorar LÍS á skólayfirvöld
og kennara að íhuga stöðu nemenda
þegar námskeið eru undirbúin.
María Dóra Björnsdóttir, deildar-
stjóri náms- og starfsráðgjafar hjá
skólanum, segir allar líkur á að nem-
endur kaupi eða fái lánaðar náms-
bækur frá öðrum nemendum.
„Síðan heyrir maður af og til að
þau séu dugleg að hala niður bókum.
Að verða sér úti um þær á einn eða
annan hátt á netinu,“ segir María.
Hún segir að Bóksala stúdenta
muni halda úti skiptibókamarkaði á
næstunni í fyrsta skipti í fimmtán ár
og geti nemendur þá nálgast ódýrari
bækur þar. „Ég er ekki viss um að töl-
urnar um sölu á nýjum bókum segi
alla söguna. En auðvitað gefa þær
ákveðna mynd og maður á að velta
því fyrir sér hvað þetta þýðir.“
thorgnyr@frettabladid.is
Telja ekki tímabært að
lýsa yfir neyðarástandi
Forsvarsmenn stúdenta og deildarstjóri náms- og starfsráðgjafar í HÍ segja tölur
um hnignun bókasölu ekki lýsa neinu neyðarástandi í menntakerfinu. For-
maður LÍS segir óásættanlegt að bókakostnaður sé of hár fyrir suma nemendur.
MenntaMál Miðstöð skólaþróunar við
Háskólann á Akureyri hefur ákveðið
að efna til málþings um læsi í október
til þess að færa umræðuna um læsi og
læsiskennslu á hærra plan en birst hefur
almenningi í fjölmiðlum undanfarna
daga.
Þetta segir í fréttatilkynningu frá
háskólanum og er Illuga Gunnarssyni
menntamálaráðherra og Arnóri Guð-
mundssyni, forstjóra Menntamála-
stofnunar, sérstaklega boðið að taka
þátt í pallborðsumræðum um þetta
mál.
„Markmið með læsi eru mörg en í
umræðunni hefur athyglin einkum
beinst að niðurstöðum samræmdra
prófa sem einungis meta hluta af þeim
markmiðum sem unnið er að í nútíma
skólastarfi,“ segir enn fremur í tilkynn-
ingunni og að háskólinn standi við sína
gagnrýni um hvernig gögn Mennta-
málastofnunar um árangur byrjenda-
læsis hafa verið sett fram og túlkuð.
„Vaxandi fjöldi skóla sem hefur valið
byrjendalæsi staðfestir að gott orð hefur
farið af því starfi.“ – ebg
Bjóða ráðherra
til umræðu
um læsi
StjórnSýSla Afgangur af rekstri
A- og B-hluta Reykjavíkurborgar
nam 303 milljónum króna á fyrri
helmingi ársins en áætlun gerði
ráð fyrir að afgangurinn yrði
2.141 milljón króna. Rekstrar-
niðurstaðan er því 1.838 milljónum
króna lakari en gert var ráð fyrir.
Í afkomutilkynningu frá Reykjavikur-
borg segir að ástæðurnar megi rekja
til minni hagnaðar Orkuveitu Reykja-
víkur vegna lækkandi álverðs og
hins vegar til lakari afkomu A-hluta
heldur en áætlun gerði ráð fyrir. Þar
ræður hækkun launakostnaðar og
minni sala á byggingarrétti mestu.
„Niðurstaða sex mánaða upp-
gjörsins kemur ekki á óvart og und-
irstrikar að það er áskorun að eiga
fyrir nýgerðum kjarasamningum
og mikilvægi þess að árangur náist
í endurmati á málaflokki fatlaðs
fólks og daggjöldum hjá hjúkrunar-
heimilum,“ segir Dagur B. Eggertsson
borgarstjóri í tilkynningu.
Rekstrarniðurstaða A-hluta var
neikvæð um 3.038 mkr en áætlun
gerði ráð fyrir að hún yrði neikvæð
um 1.865 mkr á tímabilinu. Lakari
rekstrarniðurstaða skýrist meðal
annars af lægri tekjum af sölu bygg-
ingarréttar og sölu fasteigna eða 552
mkr undir áætlun og hækkun launa-
kostnaðar umfram áætlun um 403
milljónir króna.
Rekstur Reykjavíkurborgar skiptist
í A-hluta og B-hluta. Til A-hluta telst
starfsemi sem að hluta eða öllu leyti
er fjármögnuð með skatttekjum. – aí
Niðurstaðan
langt undir
væntingum
Hluti háskólanema sækir námsefni sitt á netið líkt og þessi gæti verið að gera.
Fréttablaðið/Ernir
Gísli Pálmi hitaði upp fyrir Rae Sremmurd á tónleikum sem haldnir voru í Höllinni í gær. Gísli Pálmi nýtur sívaxandi vinsælda en hann sló fyrst í gegn árið 2011, með
lagið sitt Set mig í gang. Fréttablaðið/Ernir
Það veldur oft kvíða á
haustin og eftir jól því að
bókalánið hjá LÍN er ein-
faldlega ekki í samræmi við
raunkostnað.
Nanna Elísa Jakobs-
dóttir, formaður LÍS
Mér finnst að við
verðum að afla fleiri gagna
til að geta lýst yfir neyðar-
ástandi vegna þessa. Það eru
léleg akademísk vinnubrögð
að fókusera bara á þennan
hluta.
Aron Ólafsson, for-
maður Stúdentaráðs
Rífandi stemmning á rapptónleikum
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segir
niðurstöðuna ekki koma á óvart.
2 8 . á g ú S t 2 0 1 5 F Ö S t u D a g u r2 F r é t t i r ∙ F r é t t a B l a ð i ð
2
7
-0
8
-2
0
1
5
2
2
:3
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
5
E
5
-3
B
F
4
1
5
E
5
-3
A
B
8
1
5
E
5
-3
9
7
C
1
5
E
5
-3
8
4
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
5
6
s
C
M
Y
K