Fréttablaðið - 28.08.2015, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 28.08.2015, Blaðsíða 18
2 8 . á g ú s t 2 0 1 5 F Ö s t U D A g U R18 s p o R t ∙ F R É t t A B L A ð i ðSPORT Í dag 18.00 The Barclays Golfstöðin 18.45 Blackburn - Bolton Sport 2 12.25 Ásdís Hjálmsd. keppir á HM í Peking 18.00 Pólland - Ísland, æfingal. í körfu. Nýjast Bolt stakk Gatlin af Usain Bolt vann sín önnur gullverð- laun á HM í Peking þegar hann bar sigur úr býtum í 200 metra hlaupi í gær. Líkt og í 100 metra hlaupinu var Justin Gatlin helsti andstæðingur Bolts en hann hafði ekki roð við Jamaíkumanninum á lokasprett- inum. Kapparnir voru jafnir eftir 100 metrana en Bolt átti magnaðan endasprett og skildi Gatlin hreinlega eftir. Bolt kom í mark á 19,55 sekúndum sem er besti tími ársins. Þetta voru tíundu gullverðlaun Bolts á HM en enginn hefur unnið fleiri. Bolt gæti bætt ellefta HM-gullinu við en hann á enn eftir að keppa í 4x100 metra hlaupi með sveit Jamaíku. kári Glímir við Zlatan oG Cr7 Dregið var í riðlakeppni Meistara- deildarinnar í fótbolta í gær og íslensku leikmennirnir tveir í Meistaradeildinni fá að glíma við krefjandi mótherja í vetur. Zlatan Ibrahimovic snýr aftur á sinn gamla heimavöll í Meistaradeildinni gegn Kára Árnasyni en Malmö lenti í riðli með PSG og Real Madrid . Ekki varð riðillinn auðveldari hjá Alfreði Finnbogasyni og félögum í Olympiakos sem mæta meðal annars þýsku meisturunum í Bayern München og enska liðinu Arsenal. A-riðill Paris Saint-Germain Real Madrid Shakhtar Donetsk Malmö FF B-riðill PSV Manchester United CSKA Moskva Wolfsburg C-riðill Benfica Atletico Madrid Galatasaray Astana D-riðill Juventus Manchester City Sevilla Mönchengladbach E-riðill Barcelona Bayer Leverkusen Roma Bate Borisov F-riðill Bayern München Arsenal Olympiakos Dinamo Zagreb g-riðill Chelsea Porto Dynamo Kiev Maccabi Tel Aviv H-riðill Zenit Valencia Lyon Gent FótBoLti Það verður ekki bara barist um Íslandsmeistaratitilinn, gullskó- inn, eða það að forðast fallið í síðustu fimm umferðum Pepsi-deildarinnar því margir eru til kallaðir þegar kemur að því að gefa flestar stoð- sendingar í deildinni í sumar. Fréttablaðið hefur tekið saman stoðsendingatölurnar í fyrstu sautján umferðunum og þar kemur í ljós að fjórir leikmenn Pepsi-deildarinnar eru nú efstir og jafnir á toppnum með sjö stoðsendingar. Annað árið í röð hjá Atla? Meðal þessara fjögurra er fastagestur á þessum lista síðustu ár en það er FH- ingurinn Atli Guðnason. Atli var síð- astur í sjö stoðsendingarnar og sá eini af þessum fjórum sem lagði upp mark í 17. umferðinni. Atli lagði þá upp sigur- mark Stevens Lennon í uppbótartíma á móti Leikni í Efra-Breiðholti. Atli var efstur í stoðsendingum í fyrra og á möguleika á því að verða stoðsendingakóngur deildarinnar í þriðja sinn á fjórum árum. Tveir af hinum þremur spila með nýliðunum í deildinni. Skaga- maðurinn Jón Vilhelm Ákason hefur reyndar spilað í mörg ár í deildinni en Leiknismaðurinn Hilmar Árni Halldórsson hefur þegar gefið sjö stoðsendingar á sínu fyrsta ári í deild þeirra bestu. Hátt hlutfall af mörkum nýliðanna Þeir Hilmar Árni og Jón Vilhelm hafa komið að framleiðslunni á stórum hluta marka sinna liða. Hilmar Árni hefur komið að 12 af 15 mörkum Leiknis (80 prósent) og Jón Vilhelm hefur komið að 13 af 24 mörkum Skagamanna (54 prósent). Fjórði og síðastur á listanum og eini varnarmaðurinn er síðan vinstri bakvörður Blika, Kristinn Jónsson. Kristinn var sá leikmaður af þessum fjórum sem var fyrstur til að ná sjö stoðsendingum en því náði hann með því að gefa tvær stoðsendingar í sigri á Keflavík í fyrsta leik eftir versl- unarmannahelgi. Kristinn er stór hluti af sóknarleik Blikanna og stór- hætturlegur þegar hann brunar fram. Það geta auðvitað mun fleiri bland- að sér í baráttuna enda enn fimm umferðir eftir af mótinu og menn í næstu sætum eru líklegir. Guðjón Pétur komið að 11 mörkum Blikinn Guðjón Pétur Lýðsson hefur gefið sex stoðsendingar í sumar en hann hefur átt beinan þátt í undir- búningi ellefu marka Breiðabliksl- iðsins því auk stoðsendinganna þá hefur hann átt fimm svokallaðar hjálparsendingar sem eru sendingar sem eiga stóran þátt í marki en eru ekki síðasta sending. Guðjón Pétur hefur komið að undirbúningi marks í fjórum leikjum Blika í röð og átti meðal annars hjálparsendinguna í sigurmarki Jonathans Glenn á móti Stjörnunni í síðustu umferð. Valsmaðurinn Kristinn Freyr Sig- urðsson og KR-ingurinn Jacob Toppel Schoop eru með fimm stoðsendingar en þeir hafa ekki verið eins áberandi. Annar af markahæstu mönnum Pepsi-deildarinnar, Patrick Pedersen úr Val, hefur hins vegar gefið fjórar af fimm stoðsendingum sínum í Pepsi- deildinni í sumar í síðustu fjórum leikjum sínum og er Daninn því til alls vís á lokasprettinum. Skjótt skipast veður í lofti á þessum listum sem öðrum en það verður spennandi að fylgjast með því hver endar sem stoðsendingakóngur Pepsi-deildarinnar 2015. ooj@frettabladid.is Spenna í stoðsendingunum Fjórir leikmenn eru efstir og jafnir á listanum yfir þá sem hafa gefið flestar stoðsendingar í fyrstu sautján umferðum Pepsi-deildar karla í fótbolta. Atli Guðnason er enn á ný einn af þeim sem leggur flest mörk upp. Hilmar Árni Halldórsson 23 ára miðjumaður í Leikni 1.530 mínútur í 17 leikjum 219 mínútur á milli stoðsendinga 9 mörk undirbúin (stoðsendingar +hjálparsendingar) Hefur skorað 3 mörk sjálfur 5 stoðsendingar í fyrri umferð 2 stoðsendingar í seinni umferð Kristinn Jónsson 25 ára varnarmaður í Breiðabliki 1.511 mínútur í 17 leikjum 216 mínútur á milli stoðsendinga 8 mörk undirbúin (stoðsendingar +hjálparsendingar) Hefur skorað 2 mörk sjálfur 5 stoðsendingar í fyrri umferð 2 stoðsendingar í seinni umferð Jón Vilhelm Ákason 28 ára miðjumaður í ÍA 1.400 mínútur í 17 leikjum 200 mínútur á milli stoðsendinga 10 mörk undirbúin (stoðsendingar +hjálparsendingar) Hefur skorað 3 mörk sjálfur 4 stoðsendingar í fyrri umferð 3 stoðsendingar í seinni umferð Atli Guðnason 30 ára sóknarmaður í FH 1.366 mínútur í 16 leikjum 195 mínútur á milli stoðsendinga 10 mörk undirbúin (stoðsendingar +hjálparsendingar) Hefur skorað 5 mörk sjálfur 4 stoðsendingar í fyrri umferð 3 stoðsendingar í seinni umferð KÖRFUBoLti „Það er auðvitað komin töluverð spenna en hinir reynslu- miklu leikmenn liðsins eru að halda okkur niðri á jörðinni og minna okkur á að halda einbeitingu,“ sagði Ragnar Nathanaelsson, leikmaður íslenska landsliðsins í körfubolta, þegar Fréttablaðið sló á þráðinn til hans í Póllandi í gær. Lokaundirbúningur íslenska liðsins fyrir EM hefst á morgun á æfingamóti í Póllandi en fyrsti leikur Eurobasket er gegn Þýskalandi eftir rúma viku. „Þótt við séum að spila gegn sterk- ustu þjóðum heims vitum við að við þurfum að mæta og spila körfubolta. Þegar við lendum í Þýskalandi þá held ég að kjaftshöggið komi sem minnir okkur á hvað við erum að fara að gera.“ Ragnar gæti reynst liðinu gríðar- lega mikilvægur á mótinu en hann er eini leikmaður liðsins sem er hærri en 2 metrar. Gætu allir 218 sentímetr- arnir hans reynst liðinu mikilvægir inni í teignum. „Við erum búnir að æfa mikið hvar ég á að staðsetja mig ásamt því að æfa vagg og veltu (e. pick and roll) í sóknarleiknum því ég er nokkuð snöggur í fótunum miðað við stærð. Við munum reyna að nota það eitthvað og svo mun ég einblína á stærstu mennina í vörninni,“ sagði Ragnar sem fær að kljást við suma af bestu körfuboltamönnum í heimi í sinni stöðu. „Ég er gríðarlega spenntur fyrir því að spila gegn liði með jafn stórum leikmönnum. Þetta verður góð próf- raun á mig sem leikmann og ég mun gefa allt mitt á þessum mínútum sem ég fæ.“ Ragnar fagnaði ásamt Helga Má Magnússyni óvenjulegum afmælis- degi í gær í Póllandi „Þetta er vissulega töluvert öðruvísi afmælisdagur en vanalega. Ég kom þó afmælispakka á Helga en ég á eftir að fá gjöf á móti,“ sagði Ragnar, léttur í lund að lokum. – kpt Kjaftshöggið kemur þegar við lendum í Þýskalandi Afmælisbörn gærdagsins, Ragnar og Helgi Már, á hótelherbergi í gær. Ragnar sagði að afmæliskakan í ár yrði í minni kantinum. Mynd/KKÍ/Kristinn Geir Real er alltof flottur klúbbur til að vera með litla dúllu frá Kosta Ríka í mark- inu. Svona svipað og Ferrari væru með ökuþór frá Sauðár króki. Hjörvar Hafliðason @hjorvarhaflida 500 Íslenska körfuboltalands- liðið spilar í kvöld sinn fimm hundraðasta leik frá upphafi þegar liðið mætir heima- mönnum á æfingamótinu í Póllandi. Leikurinn fer fram í borginni Bydgoszcz en Pól- verjar eru að undirbúa sig fyrir Evrópumótið eins og Íslendingar. 7 stoðsEnDingAR 7 stoðsEnDingAR 7 stoðsEnDingAR 7 stoðsEnDingAR 2 7 -0 8 -2 0 1 5 2 2 :3 8 F B 0 5 6 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 5 E 5 -5 9 9 4 1 5 E 5 -5 8 5 8 1 5 E 5 -5 7 1 C 1 5 E 5 -5 5 E 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 5 6 s C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.