Fréttablaðið - 28.08.2015, Síða 21

Fréttablaðið - 28.08.2015, Síða 21
KOM SJÁLFUM SÉR Á ÓVART Hrafnkell Hjörleifsson varð fyrstur Íslend- inga í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka. Hann hefur hollan mat í hávegum. Síða 2 Ég var búinn að ganga með þessa hug­mynd um Úllendúllen í maganum í nokkur ár. Ég á sjálfur mjög erfitt með að skipuleggja eitthvað með mínum börn­ um og fannst óþægilegt að þurfa að leita út um allar trissur að einhverju sem væri í boði. Þá fékk ég þá flugu í höfuðið að búa til vefsíðu sem væri einn miðlægur grunn­ ur yfir viðburði fyrir börn og fjölskyldur,“ segir Jón Aðalsteinn Bergsveinsson. Að lokum ákvað Jón Aðalsteinn að gera hugmyndina að veruleika, gerði með að­ stoð vinar síns lista yfir fjöldamargar hug­ myndir að því sem er ókeypis í boði fyrir fjölskyldur. Efnið var afar yfirgripsmikið og því velktist það fyrir Jóni hvernig best væri að koma því frá sér. „Það var síðan ekki fyrr en ég fór að vinna með Hallgrími Arnarsyni gagnasérfræðingi að hugmyndin varð að veruleika,“ segir Jón Aðalsteinn en þeir Hallgrímur ýttu www.ullendullen.is saman úr vör þann 10. ágúst. EIN FRÉTT Á DAG Á síðunni má finna viðburðaplan hálfan mánuð eða svo fram í tímann. Þá er þar einnig að finna skemmtilegar fréttir um ýmislegt það sem hægt er að taka sér fyrir hendur og viðtöl um það sem fjöl­ skyldum finnst gaman að gera. „Við birtum eina frétt á dag og byggjum þannig smám saman upp gagnagrunn um afþreyingu, leiki og viðburði,“ segir Jón Aðalsteinn en aðaláhersla síðunnar er á það sem öll fjölskyldan getur gert saman. „Þetta er mjög fjölbreytt. Við bendum á áhugaverða staði, sem dæmi litla sundlaug úti á landi, segjum frá skemmtilegum leikjum sem allir geta tekið þátt í, bendum á leikvelli, hvar hægt er að hjóla eða ganga saman og margt fleira.“ Flestir þeir viðburðir sem Úl­ lendúllen fjallar um á síðunni eru ókeypis en ef eitthvað kostar þá er bent sérstak­ lega á það. VILJA FÁ SENDAR HUGMYNDIR Þeir Jón Aðalsteinn og Hallgrímur hafa fengið aðstoð við hugmyndaöflun og vilja endilega hvetja fólk til að senda sér hug­ myndir og upplýsingar um viðburði. „Best er að senda texta og mynd á ullendullen@ ullendullen.is. Fólk þarf ekki að vera hrætt við að skrifa vitlaust því við vinnum allt upp á nýtt fyrir síðuna,“ lýsir Jón sem var blaðamaður til fjölda ára áður en hann hóf störf sem ráðgjafi hjá boðmiðlunar­ fyrirtækinu Cohn og Wolfe. Úllendúllen er reyndar ekki tengt Cohn & Wolfe heldur áhugamál þeirra Hallgríms sem þeir sinna í frítíma sínum. „Þetta er okkar frístunda­ prjón,“ segir hann glettinn.  nsolveig@365.is DÚLLAST MEÐ FJÖLSKYLDUNNI NÝR FJÖLSKYLDUVEFUR Úllendúllen er nýr hugmynda-, tillögu- og fréttavefur þar sem finna má upplýsingar um margt skemmtilegt sem fjölskyldan getur gert saman. MARGT Í BOÐI UM HELGINA Jón Aðalsteinn og Hall- grímur geta bent á ýmis- legt skemmtilegt sem er að gerast um helgina. Til dæmis bæjarhátíðina Í túninu heima í Mos- fellsbæ, Akureyrarvöku og útimarkað í Laugar- dal. MYND/GVA Kveðjum frunsuna með bros á vör Einstök tvíþætt verkun: meðhöndlar + fyrirbyggir • Má nota á öllum stigum frunsu • Rakagefandi • Sólarvörn www.sorefix.comFÆST Í ÖLLUM APÓTEKUM Vertu vinur á Facebook Vertu vinur á Facebook Yfirhafnir Laugavegi 63 • S: 551 4422 Skoðið Laugavegi 63 • S: 551 4422 Vertu vinur á Facebook lægri verð v/gen gis- lækku nar VETRARYFIRHAFNIRNAR KOMNAR Skoðið www.laxdal.is yfirhafnir, Lúsasjampó eyðir höfuðlús og nitV irk ni s tað fes t í klín ísk um pró fun um * Öflugt - fljótvirkt - auðvelt í notkun Virkar í einni meðferð Fljótvirkt: Virkar á 10 mínútum 100% virkni gegn lús og nit Náttúrulegt, án eiturefna * Abdel-Ghaffar F et.al; Parasitol Res. 2012 Jan; 110(1):277-80. Epub 2011 Jun 11. FÆST Í ÖLLUM APÓTEKUM Fyrir 2 ára og eldri Mjög auðvelt að skola úr hári! Íslenskar upplýsingar er að finna á www.licener.com/IS 2 7 -0 8 -2 0 1 5 2 2 :3 8 F B 0 5 6 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 5 E 5 -7 C 2 4 1 5 E 5 -7 A E 8 1 5 E 5 -7 9 A C 1 5 E 5 -7 8 7 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 0 5 6 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.