Fréttablaðið - 28.08.2015, Qupperneq 26
F
jölmiðlar heims keppast
um þessar mundir við að
fjalla um hina „nýju Vi-
agra“ fyrir konur. Spá-
menn, og þeir sem eiga
peninga í lyfjafyrirtækjum, segja
að þetta muni gjörbreyta kyn-
lífi fyrir konur, og þá væntanlega
líka kallana þeirra, því nú muni
konur langa í kynlíf. Loksins er
komin lausn fyrir þurrkuntur og
kynkaldar teprur þessa heims.
Þú bara poppar eina Addyi (pill-
an heitir það) fyrir svefninn á
hverju kvöldi og ef þú ert heppin
þá langar þig kannski til að njóta
kynlífs einu sinni í þeim mánuði.
Það er samt ekki gulltryggt að þú
náir að fá fullnægingu, hafðu það
hugfast. Það var nefnilega ekki
gerð krafa um slíkt þegar lyfið
var prófað. Bara að kynlífið væri
ánægjulegt. Svona eins og góður
latte.
Ein pilla og klofið opnast?
Þetta er staðreyndin. Lyfið hefur
áhrif á heilann og sér um að stýra
upptöku hormónsins serótóníns.
Það má ekki neita áfengis sam-
hliða inntöku lyfsins (ekki heldur
yfir daginn, bara aldrei sumsé)
og lyfið þarf að taka á hverri
nóttu fyrir svefn. Aukaverkan-
irnar eru svakalegar (lestu fylgi-
seðilinn og fáðu sjokk, ég meina,
yfirlið og skemmdir á miðtauga-
kerfi og þar fram eftir götunum)
og þetta hentar mjög þröngum
hópi kvenna. Þetta lyf er einungis
fyrir þær konur þar sem vanda-
málin í sambandinu hafa ekki
áhrif á kynlífið (!) og þær mega
ekki vera á lyfjum vegna geð-
rænna vandkvæða.
Þannig að, hverjum gagnast
þetta lyf? Getur þetta ekki allt
eins verið hass ef við þurfum
bara að slaka á og krukka aðeins
í heilanum?
Gröð upp úr þurru?
Ég get ekki að því gert að ég á
erfitt með að fjarlægja umhverfi,
sambandið og andlegan líðan frá
upplifun á kynlífi. Það að poppa
pillu breytir því ekki að mak-
inn verði frábær og allt í einu
sérðu viðkomandi í sexí ljósi og
langar að hömpast. Það að þróa
svona lyf er að gera lítið úr þeim
konum sem bara langar alls ekk-
ert að stunda kynlíf. Já, það nefni-
lega má. Það má alveg ekki langa
í kynlíf. Það gerir þig ekki að
slæmri manneskju eða manneskju
sem þarf lyf til að stýra löngun.
Það ber samt að taka fram að
umrætt lyf á að vera fyrir þær
konur sem langar en upplifa samt
ekki greddu. Það er áætlað að það
geti verið um 10% kvenna í þess-
um heimi. Afsakið, en ég fæ ekki
skilið hvernig er hægt að reyna að
skilja konur og þeirra kynferðis-
legu upplifanir þegar samfélagið
sendir frá sér tvöföld skilaboð um
hvað má og hvað á. Þú tekur ekki
manneskjuna úr hennar gildis-
hlaðna umhverfi og segir, þetta
er bara eitt hormón í heilanum
sem þarf að stífla á einum stað en
losa um á öðrum. Þetta er hápóli-
tískt mál og mér líður eins og ég
hafi farið aftur í tímavél þar sem
við eigum bara að liggja undir og
vera rúnkur, stundum hljóðlátar
en stundum með „ó, ó þetta er svo
gott, þú ert svo stór“.
Hormón, helvítis hormónin
Staðreynd málsins er líka sú
að nú er verið að þróa getnað-
arvarnir fyrir karla, aðrar en
smokkinn. Þeirra getnaðar-
varnir innihalda ekki hormón.
Ég endurtek, engin hormón. Það
vill auðvitað enginn raska hinu
fallega jafnvægi testósteróns,
þeir gætu mýkst við það og
jafnvel bara breyst í hið hættu-
legasta af öllu, konur! Í fleiri
tugi ára hafa konur verið pump-
aðar upp af hormónum og okkur
sagt að ef við fílum það ekki þá
er bara að fá sér hettuna eða
lykkjuna og hætta svo að væla.
Hvaða rugl er þetta eiginlega?
Ég segi einfaldlega stopp, ég
tek ekki þátt í þessu rugli og ég
ætla að breyta heiminum.
HVAÐ EF MIG LANGAR EKKERT
TIL AÐ STUNDA KYNLÍF
Þ
að er mun algengara en
okkur grunar að einstak-
lingar stjórni mataræð-
inu eftir tilfinningum.
Þegar okkur líður vel og
við erum í góðu andlegu jafn-
vægi er tiltölulega einfalt að
borða hæfilega stóra skammta,
borða hollt og reglulega en fjöl-
margir glíma við það að borða
yfir sig í sífellu, borða óhollan
mat og vera sífellt að borða eða
narta í mat.
Átköst
Þessir einstaklingar kljást oftar
en ekki við tilfinningar eins og
vonleysi, skömm eða samvisku-
bit og þetta ástand kallast lotu-
ofát (e. binge eating) og lýsir sér
í átköstum þar sem fólk borð-
ar mikið magn af mat á stuttum
tíma. Einstaklingar sem upplifa
átköst glíma einnig í mörgum til-
fellum við stress, kvíða, þung-
lyndi eða einmanaleika. Eftirtal-
in atriði eiga oft við einstaklinga
sem upplifa átköst:
1 Borða þrátt fyrir að finna ekki
fyrir hungurtilfinningu
2 Fara reglulega í megrun eða
aðhald
3 Eiga erfitt með að hætta að
borða þrátt fyrir að vera saddir
4 Þyngjast og léttast til skiptis
og eru sjaldnast í þyngdarjafn-
vægi
5 Kljást í mörgum tilfellum við
þunglyndi
Eftirsjá
Átköst geta veitt einstakling-
um tímabundna ánægju en ekki
löngu seinna upplifa þeir oft
mikla vanlíðan og eftirsjá, finnst
þeir vonlausir og skammast sín
fyrir að borða yfir sig og hafa
ekki betri sjálfsstjórn. Því verr
sem þessum einstaklingum líður
með sjálfa sig því oftar leita þeir
í mat til þess að líða betur. Þetta
ástand veldur því oft vítahring
sem getur haft þyngdaraukningu
og mikla vanlíðan í för með sér.
Vísbendingar um líffræði-
legar ástæður átkasta
Ýmsir líffræðilegir þættir geta
leitt til átkasta. Rannsóknir hafa
sýnt að átköst geta verið afleiðing
af röngum skilaboðum sem koma
frá undirstúku heilans til líkam-
ans um hungur og seddu. Einn-
ig hafa rannsóknarmenn fundið
stökkbreytt gen sem virðist valda
aukinni tíðni átkasta hjá einstak-
lingum sem bera genið. Hemju-
laust át virðist einnig vera al-
gengara vandamál hjá þeim sem
mælast með lágt magn af tauga-
boðefninu og gleðihormóninu
serótóníni í líkamanum.
Raunverulegt hungur eða
tilfinningatengt hungur?
Tilfinningatengt hungur er ekki
það sama og raunverulegt hungur.
Ef þú kannast við þessi einkenni
er gott fyrir þig að byrja að leita
að rót vandans við átköstum því
ástæðan liggur hjá okkur sjálfum
og andlegri líðan okkar. Viðtals-
tími hjá sérfræðingi getur hjálp-
að þér að finna í hverju vandinn
liggur og hvernig þú getur mynd-
að heilbrigt samband við mat sem
stjórnast ekki af neikvæðum til-
finningum.
TILFINNINGATENGT HUNGUR
Ef þú hefur spurningu um
kynlíf þá getur þú sent
Siggu Dögg póst og
spurningin þín gæti birst í
Fréttablaðinu.
sigga@siggadogg.is
VILTU SPYRJA UM KYNLÍF?
„Loksins er komin
lausn fyrir þurrkuntur
og kynkaldar teprur
þessa heims. Þú bara
poppar eina Addyi“
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Verslunin Belladonna
Stærðir 38-58
Nýjar haustvörur
Sunna Björg
Skarphéðinsdóttir
lífeðlisfræðingur, B.Sc.
í næringarfræði
wwww.fjarnaering.is
Heilsuvísir
4 • LÍFIÐ 28. ÁGÚST 2015
2
7
-0
8
-2
0
1
5
2
2
:3
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
5
E
5
-6
8
6
4
1
5
E
5
-6
7
2
8
1
5
E
5
-6
5
E
C
1
5
E
5
-6
4
B
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
5
6
s
C
M
Y
K