Fréttablaðið - 28.08.2015, Blaðsíða 33

Fréttablaðið - 28.08.2015, Blaðsíða 33
Fyrirtækið Ankra var stofnað árið 2013 í kringum alveg nýja hugsun þegar kemur að heilbrigði húðar. Ankra notar einstök virk efni úr hafinu í kringum Ísland, ekki ein­ ungis í hágæða húðvörum held­ ur einnig til inntöku, sem saman vinna bæði að innan sem utan að bættu útliti og líðan. Markmið Ankra er að styðja sjálfbæra þróun og leggja sitt af mörkum til að auka verðmæti íslenskra sjávar­ afurða og skapa atvinnu á Íslandi. Aðeins er notað fyrsta flokks hrá­ efni í vörur Ankra en þær eru þró­ aðar úr lífríki Atlantshafsins og eru án skaðlegra aukaefna en troðfull­ ar af kollageni sem er eitt mikil­ vægasta byggingarefni mannslík­ amans. „Kollagen er hluti af því sem byggir upp brjósk í líkam­ anum, til dæmis í hnjám,“ segir Þorbjörg Hafsteinsdóttir, hjúkr­ unarfræðingur og næringarþerap­ isti, sem tekur að sér einkatíma. „Margir kannast við verki í hnjám og mjöðmum og víðar í líkamanum þar sem brjósk og liðir eru. Þess­ ir verkir geta stafað af því að það vanti byggingarefni í brjóskið, öðru nafni kollagen. Þessar flottu stelp­ ur hjá Ankra eru búnar að hanna mjög mikilvæga línu úr roðinu af íslenskum fiski sem er fullt af kollageni.“ Ný og betri hné Þorbjörg kynntist vörunum fyrst fyrir einu og hálfu ári, um það leyti sem þær komu á markað. „Ég hef mikinn áhuga á öllu því sem viðkemur hreysti og heilsu og getur gert okkur ljómandi og yngt okkur upp. Þar af leiðandi er ég mikil áhugamanneskja um það sem getur byggt upp okkar eigin kollagenframleiðslu í líkam­ anum. Þegar nóg er af kollageni í húðinni fær húðin þessa náttúru­ legu fyllingu og ljóma. Með aldr­ inum minnkar kollagenið í húðinni og hún verður slappari og virkar kannski eldri en hún annars myndi gera.“ Þorbjörg hefur tekið Amino Marine kollagenið síðan og hefur af því mjög góða reynslu. „Ég hef til dæmis átt í smá vandræðum með hnén á mér. Ég hreyfi mig mjög mikið og hef gert í mörg ár, það er í mínum lífsstíl að ganga, hlaupa, synda og lyfta. Ég var mikill hlaupari hér áður fyrr og eyðilagði eiginlega hnén á mér á því. Ég fór í aðgerð fyrir fjór­ um árum sem tókst ekkert rosa­ lega vel svo ég gat ekkert treyst á hnéð og hlaupið úti í náttúrunni sem er eitt af því sem mér finnst best í heiminum.“ Þorbjörg fann mikinn mun á sér skömmu eftir að hún byrjaði að taka Amino Mar­ ine. „Eftir þrjá mánuði fór ég að finna fyrir mjög miklum breyting­ um. Áður vissi ég aldrei hvenær hnéð myndi gefa sig og mig færi að verkja. En núna get ég hlaup­ ið. Ég hleyp hæglega mína tíu kíló­ metra á víðavangi og finn ekkert til. Ég er nýbúin í átta daga göngu um Strandir, gekk Fimmvörðuháls um daginn og ég er sannfærð um að það er að einhverju leyti kolla­ geninu að þakka. Ég er búin að endurheimta mikilvægan hluta af mínum lífsgæðum.“ Kollagen kemur fólki á fjöll Þorbjörg bendir á að með aldrin­ um fer ýmislegt að gefa sig í lík­ amanum og þá er mikilvægt að fólk sé meðvitað um mataræði og bætiefni. „Þegar maður er kominn á minn aldur fer ýmislegt að gefa sig í líkamanum og ég sé það á jafnöldrum í kringum mig. Sjálf er ég mjög ánægð með það sem ég fæ áorkað miðað við aldur. Í minni daglegu rútínu borða ég vel af al­ vöru mat og ekki neitt sem getur skapað bólgur sem setjast í liðina. Kollagenið er orðið hluti af minni fyrirbyggingu og ég ætla að ganga á fjöll þangað til ég verð níræð ef guð lofar, með kollagenið í vasan­ um.“ Kollagen viðheldur raka í húðinni Þorbjörg viðurkennir líka fúslega að útlitið skipti hana máli. „Ég vil líta vel út og skammast mín ekk­ ert fyrir það. Ég nota bæði hylkin Age Rewind Skin Therapy og Be Kind Age Rewind­serumið til að byggja upp kollagenið í húðinni. Í hylkjunum er líka hyaluron­sýra sem er líka styðjandi fyrir liðamót­ in, smyr þau og viðheldur rakan­ um og bindur vökvann sem gefur þessa náttúrulegu fyllingu í húðinni. Það er alls konar bónus sem fylgir hyaluron­sýrunni og svo má ekki gleyma að allt sem er gott fyrir liða­ mót er líka gott fyrir húð. Serumið er kannski ekki gott fyrir liðamótin en það nær vel inn undir húðina og gefur henni raka. Eitt af því sem ég legg áherslu á í mínum fræðum er að nota raka, að vörurnar fari inn í húðina og hjálpi henni að endur­ nýja sig og Be Kind Age Rewind­ serumið er svo sannarlega góður bandamaður í þeirri baráttu,“ segir Þorbjörg Hafsteinsdóttir að lokum. Þorbjörg býður bæði upp á nám­ skeið og einkatíma i næringar­ og lífsstílsráðgjöf en hægt er að fá nánari upplýsingar í gegnum net­ fangið thorbjorg@rthorbjorg.dk. Kollagenvörurnar frá Ankra fást í helstu apótekum og heilsuvöruverslunum nema and- lits-serumið sem fæst í Systra- seli, Madison Ilmhúsi og Gló. AUGLÝSING: ANKRA KYNNIR ÆSKUBRUNNURINN KOLLAGEN Þorbjörg Hafsteinsdóttir, hjúkrunarfræðingur og næringarþerapisti, hefur góða reynslu af Feel Iceland-vörunum. Þorbjörg Hafsteinsdóttir mælir eindregið með kollageni frá Feel Iceland til að bæta útlit og líðan. Be Kind Age Rewind Serum Age Rewind Skin Therapy Amino Marine kollagenduft Uppskrift frá Þorbjörgu að góðum drykk þar sem kol lagenduft ið kemur við sögu 1­2 dl sykurlaus möndlu­ eða kókosmjólk 1 dl granateplasafi 1 mæliskeið Feel Iceland Coll­ agen duft ½ tsk. kanelduft 1/6 tsk. vanilluduft ¼ banani 150­200 g frosin jarðarber eða íslensk ber. Allt er sett í blandarann og keyrt í 1­2 mín. Feel Iceland­vörurnar eru framleidd­ ar úr íslenskum sjávarafurðum í hæsta gæðaflokki. LÍFIÐ 28. ÁGÚST 2015 • 11 2 7 -0 8 -2 0 1 5 2 2 :3 8 F B 0 5 6 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 5 E 5 -7 C 2 4 1 5 E 5 -7 A E 8 1 5 E 5 -7 9 A C 1 5 E 5 -7 8 7 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 0 5 6 s C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.