Fréttablaðið - 28.08.2015, Blaðsíða 33
Fyrirtækið Ankra var stofnað árið
2013 í kringum alveg nýja hugsun
þegar kemur að heilbrigði húðar.
Ankra notar einstök virk efni úr
hafinu í kringum Ísland, ekki ein
ungis í hágæða húðvörum held
ur einnig til inntöku, sem saman
vinna bæði að innan sem utan
að bættu útliti og líðan. Markmið
Ankra er að styðja sjálfbæra þróun
og leggja sitt af mörkum til að
auka verðmæti íslenskra sjávar
afurða og skapa atvinnu á Íslandi.
Aðeins er notað fyrsta flokks hrá
efni í vörur Ankra en þær eru þró
aðar úr lífríki Atlantshafsins og eru
án skaðlegra aukaefna en troðfull
ar af kollageni sem er eitt mikil
vægasta byggingarefni mannslík
amans. „Kollagen er hluti af því
sem byggir upp brjósk í líkam
anum, til dæmis í hnjám,“ segir
Þorbjörg Hafsteinsdóttir, hjúkr
unarfræðingur og næringarþerap
isti, sem tekur að sér einkatíma.
„Margir kannast við verki í hnjám
og mjöðmum og víðar í líkamanum
þar sem brjósk og liðir eru. Þess
ir verkir geta stafað af því að það
vanti byggingarefni í brjóskið, öðru
nafni kollagen. Þessar flottu stelp
ur hjá Ankra eru búnar að hanna
mjög mikilvæga línu úr roðinu
af íslenskum fiski sem er fullt af
kollageni.“
Ný og betri hné
Þorbjörg kynntist vörunum fyrst
fyrir einu og hálfu ári, um það
leyti sem þær komu á markað.
„Ég hef mikinn áhuga á öllu því
sem viðkemur hreysti og heilsu
og getur gert okkur ljómandi og
yngt okkur upp. Þar af leiðandi
er ég mikil áhugamanneskja um
það sem getur byggt upp okkar
eigin kollagenframleiðslu í líkam
anum. Þegar nóg er af kollageni í
húðinni fær húðin þessa náttúru
legu fyllingu og ljóma. Með aldr
inum minnkar kollagenið í húðinni
og hún verður slappari og virkar
kannski eldri en hún annars myndi
gera.“ Þorbjörg hefur tekið Amino
Marine kollagenið síðan og hefur
af því mjög góða reynslu.
„Ég hef til dæmis átt í smá
vandræðum með hnén á mér. Ég
hreyfi mig mjög mikið og hef gert
í mörg ár, það er í mínum lífsstíl
að ganga, hlaupa, synda og lyfta.
Ég var mikill hlaupari hér áður fyrr
og eyðilagði eiginlega hnén á mér
á því. Ég fór í aðgerð fyrir fjór
um árum sem tókst ekkert rosa
lega vel svo ég gat ekkert treyst
á hnéð og hlaupið úti í náttúrunni
sem er eitt af því sem mér finnst
best í heiminum.“ Þorbjörg fann
mikinn mun á sér skömmu eftir að
hún byrjaði að taka Amino Mar
ine. „Eftir þrjá mánuði fór ég að
finna fyrir mjög miklum breyting
um. Áður vissi ég aldrei hvenær
hnéð myndi gefa sig og mig færi
að verkja. En núna get ég hlaup
ið. Ég hleyp hæglega mína tíu kíló
metra á víðavangi og finn ekkert
til. Ég er nýbúin í átta daga göngu
um Strandir, gekk Fimmvörðuháls
um daginn og ég er sannfærð um
að það er að einhverju leyti kolla
geninu að þakka. Ég er búin að
endurheimta mikilvægan hluta af
mínum lífsgæðum.“
Kollagen kemur fólki á fjöll
Þorbjörg bendir á að með aldrin
um fer ýmislegt að gefa sig í lík
amanum og þá er mikilvægt að
fólk sé meðvitað um mataræði og
bætiefni. „Þegar maður er kominn
á minn aldur fer ýmislegt að gefa
sig í líkamanum og ég sé það á
jafnöldrum í kringum mig. Sjálf er
ég mjög ánægð með það sem ég
fæ áorkað miðað við aldur. Í minni
daglegu rútínu borða ég vel af al
vöru mat og ekki neitt sem getur
skapað bólgur sem setjast í liðina.
Kollagenið er orðið hluti af minni
fyrirbyggingu og ég ætla að ganga
á fjöll þangað til ég verð níræð ef
guð lofar, með kollagenið í vasan
um.“
Kollagen viðheldur raka í húðinni
Þorbjörg viðurkennir líka fúslega
að útlitið skipti hana máli. „Ég vil
líta vel út og skammast mín ekk
ert fyrir það. Ég nota bæði hylkin
Age Rewind Skin Therapy og Be
Kind Age Rewindserumið til að
byggja upp kollagenið í húðinni.
Í hylkjunum er líka hyaluronsýra
sem er líka styðjandi fyrir liðamót
in, smyr þau og viðheldur rakan
um og bindur vökvann sem gefur
þessa náttúrulegu fyllingu í húðinni.
Það er alls konar bónus sem fylgir
hyaluronsýrunni og svo má ekki
gleyma að allt sem er gott fyrir liða
mót er líka gott fyrir húð. Serumið
er kannski ekki gott fyrir liðamótin
en það nær vel inn undir húðina og
gefur henni raka. Eitt af því sem ég
legg áherslu á í mínum fræðum er
að nota raka, að vörurnar fari inn
í húðina og hjálpi henni að endur
nýja sig og Be Kind Age Rewind
serumið er svo sannarlega góður
bandamaður í þeirri baráttu,“ segir
Þorbjörg Hafsteinsdóttir að lokum.
Þorbjörg býður bæði upp á nám
skeið og einkatíma i næringar og
lífsstílsráðgjöf en hægt er að fá
nánari upplýsingar í gegnum net
fangið thorbjorg@rthorbjorg.dk.
Kollagenvörurnar frá Ankra
fást í helstu apótekum og
heilsuvöruverslunum nema and-
lits-serumið sem fæst í Systra-
seli, Madison Ilmhúsi og Gló.
AUGLÝSING: ANKRA KYNNIR
ÆSKUBRUNNURINN KOLLAGEN
Þorbjörg Hafsteinsdóttir, hjúkrunarfræðingur og næringarþerapisti, hefur góða reynslu af Feel Iceland-vörunum.
Þorbjörg Hafsteinsdóttir mælir eindregið með kollageni frá Feel Iceland til að bæta
útlit og líðan.
Be Kind Age Rewind Serum
Age Rewind Skin Therapy
Amino Marine kollagenduft
Uppskrift frá Þorbjörgu
að góðum drykk þar
sem kol lagenduft ið
kemur við sögu
12 dl sykurlaus möndlu eða
kókosmjólk
1 dl granateplasafi
1 mæliskeið Feel Iceland Coll
agen duft
½ tsk. kanelduft
1/6 tsk. vanilluduft
¼ banani
150200 g frosin jarðarber eða
íslensk ber.
Allt er sett í blandarann og
keyrt í 12 mín.
Feel Icelandvörurnar eru framleidd
ar úr íslenskum sjávarafurðum í hæsta
gæðaflokki.
LÍFIÐ 28. ÁGÚST 2015 • 11
2
7
-0
8
-2
0
1
5
2
2
:3
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
5
E
5
-7
C
2
4
1
5
E
5
-7
A
E
8
1
5
E
5
-7
9
A
C
1
5
E
5
-7
8
7
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
5
6
s
C
M
Y
K