Fréttablaðið - 28.08.2015, Síða 34

Fréttablaðið - 28.08.2015, Síða 34
Lífið HEIMASÍÐAN BLÁBER ERU TIL ÞESS AÐ BORÐA Tískudrottning www.instagram.com/olivi- apalermo Olivia Palermo er án efa ókrýnd drottning tískuheimsins í dag. Það virðist vera sem svo að allt sem hún gerir sé smekklegt og spennandi. Nýverið hannaði hún línu fyrir breska snyrtivörumerk- ið Ciate. Ekki spillir fyrir að eigin- maður hennar er alveg óskaplega myndar legur og fyrirmynd annarra karlmanna í klæðaburði. Máttur sveppanna /powerofmushroom Nú er tími sveppanna. Þeir eru farnir að springa út um allar triss- ur og ekki seinna vænna að næla sér í nokkur væn eintök, þurrka eða frysta, og láta svo ljós sitt skína í eldhúsinu. Sumir halda að úr sveppum sé bara hægt að gera sósu, súpu eða henda í kjötrétt en því fer fjarri eins og þessi síða sýnir með ógrynni af hugmyndum um hvernig megi nýta þessa auð- lind. Krúttaðu þig í gang /LittleThingsStories Suma daga vantar mann bara eitt- hvað sætt og krúttlegt til að koma manni í gegnum vinnudaginn. Þá kemur þessi síða til sögunn- ar. Afrek hvunndagshetjunnar fær hvert auga til að vökna ögn, nú eða krúttlegar myndir og frásagnir af hetjudáðum dýra og dýravina. Stundum er of mikið af leiðindum í heiminum og því er gott að minna sig á fegurðina í hinum litlu atvik- um hversdagsleikans. Bláber á pitsu, hamborg- arann og í morgunsafann www.blueberrycouncil.org Það veit hvert mannsbarn að bláber eru holl og að nú sé tíminn til að byrja að tína þau. Hins vegar eru bláber sem hráefni í matreiðslu oft tak- mörkuð við sæta rétti líkt og bökur, kökur og safa en vissu- lega má víkka út möguleik- ana og þar kemur þessi síða sterk inn. Hér má læra hvernig má gera safaríka og saðsama bláberjapitsu, konfektmola og sósu sem passar á hamborg- ara. Þú getur fengið ráð um hvernig megi rækta þín eigin bláber, hvernig sé best að matreiða þau og fengið snið- ug ráð til að virkja krakkana við matreiðsluna. Nú er mál að nýta bláberin. Skelltu þér út að tína, frysta og njóta. Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • jsb@jsb.is • www.jsb.is Velkomin í okkar hóp! Við höfum um áraraðir boðið konum á öllum aldri fjölbreytta og heilsueflandi líkamsrækt sem byggir upp og viðheldur hreysti og vellíðan. Æfingakerfi okkar miðast við að koma jafnt til móts við ólíkar þarfir og getustig þannig að bæði byrjendur og lengra komnir fái framúrskarandi þjónustu. E F LI R a lm an na te ng s l / H N O T S K Ó G U R g ra f í sk h ön nu n Staðurinn - Ræktin Opna kerfið 1-2-3 Þjálfunarkerfi JSB Við bjóðum röð af fjölbreyttum og krefjandi 25 mínútna tímum sem henta jafnt byrjendum sem lengra komnum. Unnið er út frá eigin getustigi og tekið vel á því. Hægt er að taka einn eða fleiri tíma í einu. Hver tími er sniðinn til að mæta þörfum þeirra sem eru í kapphlaupi við klukkuna. Vertu þinn eigin styrktaraðili! Bjóðum hagstæð kort sem ná yfir styttri tímabil, stuðla að betri mætingu og ákveðnari markmiðum. 15 vikur = 45.000 - 10 vikur = 30.000 - 5 vikur 15.000 Besta verðið - 16 vikur á 39.900 kr. Vellíðan sem stafar af uppbyggingu og árangri Nú er haustkortið komið í sölu - Gildir til 30. desember! Verð: 39.900 kr. - Tilboðið stendur til 7. september! Sjá nánar á jsb.is Öll námskeið hefjast 31. ágúst Innritun í fullum gangi í síma 581 3730 og á jsb.is 2 7 -0 8 -2 0 1 5 2 2 :3 8 F B 0 5 6 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 5 E 5 -8 1 1 4 1 5 E 5 -7 F D 8 1 5 E 5 -7 E 9 C 1 5 E 5 -7 D 6 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 0 5 6 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.