Fréttablaðið - 18.08.2015, Side 10
18. ágúst 2015 ÞRIÐJUDAGURSKOÐUN
HALLDÓR
FRÁ DEGI
TIL DAGS
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞRÓUNARSTJÓRI: Tinni Sveinsson tinni@365.is HELGARBLAÐ: Erla Björg Gunnarsdóttir erla@frettabladid.is MENNING: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is
LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir FORSTJÓRI: Sævar Freyr
Þráinsson ÚTGEFANDI OG AÐALRITSTJÓRI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRAR:
Andri Ólafsson andri@365.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is.
Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er
hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í
stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871
Þótt mörgum þyki sem í óefni sé komið
á húsnæðismarkaði á höfuðborgarsvæð-
inu eru þeir fáir sem átta sig á að ástand-
ið má að miklu leyti rekja til óæskilegra
ríkisinngripa í áranna rás og heimatilbú-
ins lóðaskorts í höfuðborginni frekar en
til markaðslögmála og gráðugra kapítal-
ista. Hugmyndin um þak á leiguverð er
því miður enn eitt dæmið um slík pólitísk
afskipti og ber að hafna af tveimur megin-
ástæðum.
Siðgæðisrökin
Fyrri ástæðan snýr að siðferðissjónarmið-
um því vart getur það talist eðlilegt, að
hið opinbera grípi fram fyrir hendurnar
á fullveðja einstaklingum í frjálsum við-
skiptum og knýi leigusalann til að leigja
íbúð sína vel undir markaðsverði. Hvað
leigusala og leigjanda semst um kemur
vitaskuld engum öðrum við, a.m.k. ekki
þannig að réttlæti ofbeldi ríkisvalds. Hér
væri því um afar vafasama lögþvingunar-
aðgerð að ræða frá sjónarhóli almenns sið-
gæðis og mannréttinda.
Hagfræðirökin
Hin ástæðan lýtur að hagfræði. Að beygja
verð undir vilja markaðarins mun hafa
í för með sér skekkju, sem með tíman-
um mun valda enn alvarlegri húsnæðis-
skorti en áður. Ástæðurnar eru m.a. þær,
að eignum er síður viðhaldið, minna er
byggt, húsnæði sjaldnar gert upp, fólk
dvelst of lengi í óþarflega stóru húsnæði,
og ungt fólk, sem að öðrum kosti byggi
lengur hjá foreldrum, flyst fyrr í húsnæði
sem fjölskyldufólk hefði brýnni þörf fyrir.
Því er hætt við, að lögskipað þak á leigu-
verð geri ekki einungis vanda þeirra, sem
mest þurfa á sómasamlegu húsnæði að
halda, stærri en áður, heldur því sem næst
óbærilegan.
Losum um markaðinn
Til að kljást við húsnæðisvandann á
höfuð borgarsvæðinu þarf að leita lausna
sem byggja á lögmálum markaðarins.
Þannig þyrfti að auka framboð lóða og
nýbygginga í samræmi við aukna eftir-
spurn, draga úr íþyngjandi byggingar-
reglugerðum, afnema allar verðbólgu-
hvetjandi niðurgreiðslur ríkisins á
húsnæðismarkaði eins og vaxta- og húsa-
leigubætur og lækka fasteignagjöld og
skatta á leigutekjur til muna. Væri þetta
gert, kæmist á jafnvægi á húsnæðismark-
aði mun fyrr en ella.
Þak á leiguverð – alls ekki
HÚSNÆÐISMÁL
Guðmundur
Edgarsson
málmennta-
fræðingur
➜ Hvað leigusala og leigjanda
semst um kemur vitaskuld engum
öðrum við, a.m.k. ekki þannig að
réttlæti ofbeldi ríkisvalds.
G
erðardómur hefur nú kveðið upp úrskurð sinn og
ákvarðað kjör félagsmanna í Félagi íslenskra hjúkr-
unarfræðinga og aðildarfélögum BHM. Úrskurðarins
var beðið með nokkurri eftirvæntingu, enda til
gerðardómsins skipað með lagasetningu á verkfallið
sem hefur verið svo umdeild að ekki er loku fyrir það skotið að
leitað verði til mannréttindadómstóls Evrópu um að kanna lög-
mæti laganna.
Nú þegar úrskurðurinn liggur fyrir er ekki úr vegi að rifja
aðeins upp hvers vegna hann yfirhöfuð var upp kveðinn. Verk-
föll hjúkrunarfræðinga og félaga BHM voru boðuð í kjölfarið á
því að kjaradeilur sigldu í strand.
Sjaldan veldur einn þá tveir deila,
segir máltækið, en það verður að
segjast eins og er að samningsvilji
ríkisins virtist ekki sérstaklega
mikill þegar fyrir lá að kjara-
samningar væru að losna, um það
vitna kærur vegna formgalla við
boðun verkfalls. Það virtist frekar
vera þannig að í lengstu lög væri dregið að semja við þær stéttir
sem voru á leið í verkföll.
Eftir að í verkfall var komið var ljóst að mikið bar á milli
deiluaðila, svo mikið að á stundum virtist sem viðræðurnar væru
bara formsatriði áður en gripið væri til lagasetningar. Bjarna
Benediktssyni fjármálaráðherra varð enda tíðrætt um ósann-
gjarnar kröfur og að ekki kæmi til greina að verða við þeim. Í
umræðum um lögin sem sett voru á verkföllin í júní sagði Bjarni:
„Það samkomulag verður hins vegar að vera innan þess ramma
sem okkur er settur almennt af öðrum samningum sem ríkið er að
gera og getur gert og samið er um á almennum markaði og að öðru
leyti væri hægt að horfa til þess hvaða áherslur stjórnvöld geta
komið með inn í þá málaflokka sem hér eru undir sérstaklega.“
Þarna var Bjarni enn bjartsýnn á að samkomulag næðist, enda
þyrftu hjúkrunarfræðingar og aðildarfélagar BHM ekki annað
en að sætta sig við þær hækkanir sem orðið hefðu í samningum á
almennum markaði.
Tilboð ríkisins sem hjúkrunarfræðingar höfnuðu hljóðaði upp
á 19% hækkun launa. Hjúkrunarfræðingar sögðu það ekki nóg og
því fór sem fór; Alþingi samþykkti frumvarp ríkisstjórnarinnar
um verkföll.
Gerðardómur hefur nú talað og úrskurður hans kveður á
um 25% hækkun launa hjúkrunarfræðinga. Hjúkrunarfræðingar
eru tiltölulega sáttir og formaður þeirra talar um eins góðan
úrskurð og hægt hefði verið að vonast til miðað við aðstæður.
Sex prósentustig skilja að síðasta tilboð ríkisins og úrskurð
gerðardóms. Varla er hægt annað en að velta því fyrir sér hvað
hefði gerst ef fjármálaráðherra, Bjarni Benediktsson, hefði boðið
þessi sex aukaprósent. Hefði starfsemi Landspítalans ekki öll
gengið úr skorðum? Hefðu hundruð uppsagna ekki litið dagsins
ljós? Hefðu mýmargar fjölskyldur ekki tekið sig til og flutt
búferlum til Noregs í leit að betri launum?
Þessum spurningum verður seint svarað, en það er þó morgun-
ljóst að úrskurður gerðardóms er langt fyrir ofan þær almennu
hækkanir á vinnumarkaðnum sem Bjarni Benediktsson fjármála-
ráðherra taldi enn að gætu verið viðmið við samningagerðina, í
miðjum umræðum um lög á verkföllin. Gerðardómurinn er því
áfellisdómur yfir fjármálaráðherra.
Áfellisdómur
Kolbeinn
Óttarson Proppé
kop@frettabladid.is
Utanríkisstefnan felldi stjórnir
Hér áður fyrr var það gjarnan utan-
ríkisstefna sem einkenndi meginstefnu
flokkanna. Sjálfstæðisflokkurinn var
iðulega helsti talsmaður vestrænnar
samvinnu á meðan aðrir flokkar settu
aðra utanríkisstefnu á oddinn. Utan-
ríkisstefna var svo sterkur þáttur í ís-
lenskum stjórnmálum að dæmi eru um
að hún hafi orðið ríkisstjórnum að falli.
Það kann þó að vera að utanríkisstefna
Íslands hafi á árunum eftir kalda
stríðið dvínað
að nokkru
leyti sem
sterkur skil-
greiningarþátt-
ur í stjórnmálalífi
fólks ef umræða um
Evrópusambandið er
undanskilin.
Gömlu línurnar horfnar
Í fyrsta sinn í langan tíma ristir djúpt
í öryggis- og varnarmálum. Með við-
skiptabanni Rússa er kominn nýr tónn
í umræðuna. Þegar á hólminn er komið
er ljóst að gömlu átakalínurnar eru ekki
lengur til staðar. Þingmenn Sjálfstæðis-
flokksins virðast ekki jafn einhuga um
vestræna samstöðu og áður. Þrír þing-
menn flokksins, þau Brynjar Níelsson,
Ásmundur Friðriksson og Valgerður
Gunnarsdóttir, hafa lýst sig andsnúin
þvingunaraðgerðum Vesturlanda
gegn Rússlandi en fleiri þing-
menn telja að Ísland eigi enn
að styðja þvinganirnar. Einn
þeirra, Sigríður Á. Andersen,
sagði í kvöldfréttum RÚV í gær
að það væri óhugsandi að
Sjálfstæðisflokkurinn léti
af stuðningi sínum.
Munnsöfnuður valdsins
Vigdís Hauksdóttir tók djúpt í árinni
um helgina og kallaði Láru Hönnu
Einarsdóttur, pistlahöfund, viðrini á
Facebook-síðu sinni vegna pistils sem
Lára skrifaði fyrir tveimur árum. Vigdís
varði afstöðu sína í Reykjavík síðdegis í
gær en hún sagðist vilja taka hressi-
lega til orða vegna pistils Láru. „Það er
hreint dæmalaust hvað fólk er farið að
leyfa sér að skrifa í nafni þess að það
sé samfélagsrýnar. Maður verður bara
þreyttur á þessu,“ sagði hún. Skiljanlega
þreytast stjórnmálamenn yfir því
að margoft sé gerð atreið að þeim.
En þeir eiga þó vitaskuld að vera
yfir formælingar spjallborða hafnir.
Almenningur má ekki eiga von á
því að verða fórnarlömb óvægins
munnsafnaðar úr æðstu emb-
ættum. stefanrafn@frettabladid.is
1
7
-0
8
-2
0
1
5
2
2
:3
9
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
5
C
C
-1
0
8
4
1
5
C
C
-0
F
4
8
1
5
C
C
-0
E
0
C
1
5
C
C
-0
C
D
0
2
7
5
X
4
0
0
3
A
F
B
0
4
0
s
C
M
Y
K