Fréttablaðið - 18.08.2015, Side 13

Fréttablaðið - 18.08.2015, Side 13
A pr il 20 15 Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24 alla virka daga frá kl. 9-17. ...góðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn... Blaðberinn bíður þín Þrátt fyrir að mikið hafi áunnist í rekstri Hafnar- fjarðarbæjar eftir efna- hagshrun er mikilvægt að tryggja áframhald- andi aðhald og alltaf er svigrúm til að gera betur. Um það held ég að allir geti verið sam- mála og fulltrúar allra flokka í bæjarstjórn séu meðvitaðir um. Okkur greinir aftur á móti á um forgangsröðun, aðferðir og leiðir. Stjórnunarað- ferðir nýs bæjarstjóra og framkoma núverandi meirihluta gagnvart starfsfólki bæjarins er meðal þess sem við í minnihlut- anum getum ekki sætt okkur við eða tekið þátt í. 28% launahækkun bæjarstjóra Á sama tíma og gengið er fram af mikilli hörku gagnvart starfs- fólki og allar mögulegar leiðir farnar í þeim tilgangi að skerða starfskjör þess hefur launa- kostnaður vegna embættis bæj- arstjóra hækkað um tæplega 28% á milli ára, eða sem nemur um fimm milljónum króna á ársgrundvelli. Það er meira en margt af starfsfólki Hafnar- fjarðarbæjar hefur í árslaun, fyrir störf sem eru svo sannar- lega ekkert síður merkileg eða mikilvæg. Bifreiðahlunnindi bæjarstjór- ans hafa reyndar hækkað enn meira en launin eða um 86% á einu ári. Það eitt og sér er næg ástæða til að krefja meirihluta bæjarstjórnar skýringa. Hroki og virðingarleysi Okkar upplifun er sú að innleidd hafi verið stefna og aðferða- fræði í mannauðsmálum sem einkennist af hroka og virðing- arleysi gagnvart þeim sem eiga að sinna þjónustu við bæjarbúa. Í því samhengi er ástæða til að benda á að flestir þeirra starfs- manna sem hafa misst vinnuna eiga langan og farsælan starfsferil að baki í þjónustu við bæj- arbúa. Meðalstarfsaldur þeirra er 16 ár og stór hluti á aðeins nokkur ár í áætluð starfslok. Auk þess virðist full- komlega óljóst hvort þessar aðgerðir muni skila raunverulegum sparnaði þegar upp er staðið en kostnaðurinn við upp- sagnirnar og samninga þeim tengda hleypur á tugum milljóna króna. Nú þegar hafa líka verið auglýstar nokkrar nýjar stöður lausar til umsóknar sem vænt- anlega mun hafa einhver útgjöld í för með sér. Það er heldur ekki ósennilegt að hluti þess starfs- fólks sem hefur verið sagt upp leiti réttar síns hjá dómstólum og því verður ekki spurt fyrr en að leikslokum um endanlegan kostnað bæjarins. Nóg komið Meirihluti bæjarstjórnar getur ekki skammtað einum manni tugprósenta launahækkun á sama tíma og það er verið að svipta fólk atvinnu og krefj- ast þess af öðru starfsfólki að það taki á sig launalækkanir. Í hugum flestra segir þetta sig sjálft og því óskiljanlegt að meirihluti Bjartrar fram- tíðar og Sjálfstæðisflokks skuli ekki sjá að þetta gengur ekki upp. Hafnarfjörður er nefni- lega samfélag en ekki Excel- skjal og starfsfólk bæjarins er manneskjur en ekki tölur á blaði. Samfélag eða Excel-skjal SVEITAR- STJÓRNARMÁL Gunnar Axel Axelsson bæjarfulltrúi og oddviti Samfylkingar- innar í Hafnarfi rði ➜ Á sama tíma og gengið er fram af mikilli hörku gagnvart starfsfólki og allar mögulegar leiðir farnar í þeim tilgangi að skerða starfskjör þess hefur launa- kostnaður vegna embættis bæjarstjóra hækkað um tæplega 28% á milli ára, eða sem nemur um fi mm millj- ónum króna á ársgrundvelli. ÞRIÐJUDAGUR 18. ágúst 2015 | SKOÐUN | 13 1 7 -0 8 -2 0 1 5 2 2 :3 9 F B 0 4 0 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 5 C C -1 A 6 4 1 5 C C -1 9 2 8 1 5 C C -1 7 E C 1 5 C C -1 6 B 0 2 7 5 X 4 0 0 4 A F B 0 4 0 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.