Fréttablaðið - 18.08.2015, Qupperneq 34
SPORT 18. ágúst 2015 ÞRIÐJUDAGUR
Mörkin: 1-0 Atli Viðar Björnsson (11.), 2-0 Bjarni
Þór Viðarsson (23.), 3-0 Atli Guðnason (49.), 4-0
Emil Pálsson (67.).
FH (4-4-2): Róbert Örn Óskarsson 6 - Jonathan
Hendrickx 7 (76. Jón Ragnar Jónsson -), Pétur
Viðarsson 6, Davíð Þór Viðarsson 6, Böðvar Böðv-
arsson 7 - Jeremy Serwy 6, Bjarni Þór Viðarsson 6,
Emil Pálsson 7, Þórarinn Ingi Valdimarsson 6 (82.
Kristján Flóki Finnbogason -) - *Atli Guðnason 8,
Atli Viðar Björnsson 7 (76. Steven Lennon -).
STJARNAN (4-3-3): Gunnar Nielsen 4 - Jóhann
Laxdal 5, Daníel Laxdal 4, Hörður Árnason 3,
Pablo Punyed 4 - Þorri Geir Rúnarsson 4, Heiðar
Ægisson 3, Guðjón Baldvinsson 3 (84. Kári Péturs-
son -) - Þórhallur Kári Knútsson 4 (57. Arnar Már
Björgvinsson 5), Ólafur Karl Finsen 6 (65. Halldór
Orri Björnsson 4), Jeppe Hansen 3.
Skot (á mark): 15-8 (8-4) Horn: 5-3
Varin skot: Róbert 3 - Gunnar 4
4-0
Kaplakriki
Áhorf.: 2.097
Erlendur
Eiríksson (7)
Mörkin: 0-1 Halldór Smári Sigurðsson sjálfsmark
(88.), 1-1 Ívar Örn Jónsson (víti, 90+4).
VÍKINGUR (4-3-3): Thomas Nielsen 7 - Dofri
Snorrason 7, Igor Taskovic 6, Halldór Smári
Sigurðsson 5, Davíð Örn Atlason 6 - Ívar Örn
Jónsson 5, Viktor Bjarki Arnarsson 5 (41. Finnur
Ólafsson 6), *Rolf Toft 7 - Arnþór Ingi Kristinsson
5(83. Andri Rúnar Bjarnason -), Hallgrímur Mar
Steingrímsson 4 (65. Agnar Darri Sverrisson 5),
Vladimir Tufegdzic 5.
LEIKNIR (4-3-3): Eyjólfur Tómasson 6 - Charley
Fomen 6, Óttar Bjarni Guðmundsson 6, Halldór
Kristinn Halldórsson 7, Gestur Ingi Harðarson 6
- Brynjar Þór Hlöðversson 6 (81. Sindri Björnsson
-), Atli Arnarson 5, Hilmar Árni Halldórsson
6 - Kristján Páll Jónsson 4 (65. Ólafur Hrannar
Kristjánsson 5), Elvar Páll Sigurðsson 4, Danny
Schreurs 3 (65. Kolbeinn Kárason 5).
Skot (á mark): 14-9 (5-3) Horn: 2-6
Varin skot: Thomas 3 - Eyjólfur 3
1-1
Víkingsvöllur
Áhorf.: 1.030
Þóroddur
Hjaltalín (6)
Mörkin: 0-1 Hólmar Örn Rúnarsson (6.), 1-1
Ingimundur Níels Óskarsson (12.), 1-2 Martin
Hummervoll (14.), 2-2 Albert Brynjar Ingason
(19.), 3-2 Albert Brynjar (21.), 3-3 Magnús Þórir
Matthíasson (víti, 76.).
FYLKIR (4-3-3): Ólafur Íshólm Ólafsson 5 - Andri
Þór Jónsson 5, Tonci Radovinkovic 6, Ásgeir
Eyþórsson 5, Tómas Joð Þorsteinsson 6 - Ásgeir
Börkur Ásgeirsson 6, Jóhannes Karl Guðjóns-
son 7, Ásgeir Örn Arnþórsson 6 - Andrés Már
Jóhannesson 6, Ingimundur Níels Óskarsson 6
(73. Kolbeinn Birgir Finnsson -), *Albert Brynjar
Ingason 8.
KEFLAVÍK (4-3-3): Sindri Kristinn Ólafsson 7 -
Guðjón Árni Antoníusson 5, Paul Junior Bignot
6, Unnar Már Unnarsson 6, Samuel Jimenez
Hernandez 5 - Magnús Þórir Matthíasson 6 (76.
Hörður Sveinsson -), Abdel-Farid Zato-Arouna
5 (60. Sigurbergur Elísson 5), Hólmar Örn
Rúnarsson 6 - Jóhann Birnir Guðmundsson 5
(69. Leonard Sigurðsson 5), Chukwudi Chijindu 6,
Martin Hummervoll 7.
Skot (á mark): 9-5 (7-3) Horn: 10-5
Varin skot: Ólafur 0 - Sindri 4
3-3
Fylkisvöllur
Áhorf.: 810
Vilhjálmur
Þórarinsson (8)
Mörkin: 1-0 Jonathan Glenn (46.), 1-1 Albert Haf-
steinsson (84.), 2-1 Glenn (88.), 3-1 Glenn (90+2).
BREIÐABLIK (4-3-3): Gunnleifur Gunnleifsson
7 - Arnór Sveinn Aðalsteinsson 7, Elfar Freyr
Helgason 7, Damir Muminovic 7, Kristinn Jónsson
8 - Oliver Sigurjónsson 8, Guðjón Pétur Lýðsson 7
(88. Davíð Kristján Ólafsson -), Arnþór Ari Atlason
5 (67. Andri Rafn Yeoman 6) - Ellert Hreinsson 6
(69. Atli Sigurjónsson 6), Höskuldur Gunnlaugsson
6, *Jonathan Glenn 9.
ÍA (3-5-2): Árni Snær Ólafsson 5 - Gylfi Veigar
Gylfason 4 (46. Ásgeir Marteinsson 7), Ármann
Smári Björnsson 6, Arnór Snær Guðmundsson 6 -
Þórður Þ. Þórðarson 4, Ingimar Elí Hlynsson 6 (81.
Ólafur Valur Valdimarsson -), Arnar Már Guðjóns-
son 7, Albert Hafsteinsson 7 (86. Hallur Flosason
-), Darren Lough 5 - Garðar B. Gunnlaugsson 5,
Jón Vilhelm Ákason 5.
Skot (á mark): 11-4 (5-3) Horn: 8-5
Varin skot: Gunnleifur 1 - Árni Snær 2
3-1
Kópavogsvöllur
Áhorf.: 1.725
Valdimar
Pálsson (6)
PEPSI-DEILDIN 2015
STAÐAN
FH 16 11 3 2 37-19 3 6
Breiðablik 16 9 5 2 26-10 32
KR 15 9 3 3 25-13 30
Valur 15 7 3 5 24-18 24
Fjölnir 15 7 3 5 22-20 24
Fylkir 16 5 6 5 18-23 21
Stjarnan 16 5 5 6 18-21 20
Víkingur 16 4 6 6 24-24 18
ÍA 16 4 5 7 20-26 17
Leiknir 16 3 5 8 15-22 14
ÍBV 15 4 2 9 17-26 14
Keflavík 16 1 4 11 17-41 7
MARKAHÆSTU MENN
Jonathan Glenn, Breiðablik - 9 mörk
Patrick Pedersen, Valur - 8 mörk
Þórir Guðjónsson, Fjölnir - 7 mörk
Atli Viðar Björnsson, FH - 7 mörk
Jeppe Hansen, Stjarnan - 6 mörk
NÆSTU LEIKIR
Fimmtudagur 20. ágúst: 18.00 Fjölnir - Valur,
18.00 ÍBV - KR.
HANDBOLTI „Það er búið að leggja
mjög mikla vinnu í þetta lið, við
erum búnir að vera saman í tæpa
tvo mánuði og þeir eru búnir að
leggja á sig mikla vinnu sem er að
skila sér núna,“ sagði Einar Guð-
mundsson, þjálfari íslenska U-19
árs landsliðsins, sigurreifur eftir
32-27 sigur á Brasilíu á heims-
meistaramótinu í handknattleik.
Strákarnir hans Einars tryggðu
sér með sigrinum sæti í undanúr-
slitum þar sem þeir mæta Slóven-
íu á morgun en íslenska liðið hefur
enn ekki tapað leik á mótinu.
„Ég er búinn að vera með þetta
lið núna í fjögur ár og við höfum
markvisst unnið að sömu þátt-
um aftur og aftur. Þetta er orðið
mjög skipulagt hjá liðinu, það er
lítið um sveiflur í leik liðsins og
við erum mjög öruggir á okkar
hraða.“
Erfiður riðill
Ísland lenti í riðli með sterkum
liðum á borð við Noreg, Spán og
Þýskalandi en fyrir vikið fékk
Ísland auðveldari mótherja í 16-
og 8-liða úrslitunum.
„Við vorum í erfiðasta riðlinum
og við vissum að þar yrðu fjórir,
jafnvel fimm leikir mjög jafnir.
Okkur tókst að vinna þá alla og
fyrir vikið fengum við örlítið auð-
veldari mótherja í Suður-Kóreu og
Brasilíu. Sem betur fer er þetta
mjög agaður hópur og þeir fram-
kvæma allt það sem ég bið þá um
eins og sést á frammistöðunni,“
sagði Einar en liðið hefur átt góðu
gengi að fagna undanfarna mán-
uði.
„Strákarnir eru búnir að vinna
tuttugu leiki í röð sem sýnir
hversu gott leikskipulag við erum
með. Við vitum að við munum ekki
eiga stórkostlegan leik einn dag og
afspyrnu slakan leik daginn eftir.
Frammistaða liðsins er alltaf stöð-
ug.“
Einar var óánægður með kæru-
leysið í leik íslenska liðsins í gær
en Brasilía náði að jafna metin í
seinni hálfleik eftir að hafa verið
átta mörkum undir.
Erum góðir í hraðaupphlaupum
„Þetta var kæruleysi af okkar
hálfu. Við nýttum okkur þessar
nýju reglur að leika með sjö úti-
leikmenn sem gekk vel framan
af gegn 3-3 vörninni þeirra en í
seinni hálfleik kom meira kæru-
leysi í sendingar og skotin. Það
hleypti þeim aftur í leikinn en þá
settum við aftur í gír og sigldum
þessu örugglega heim.“
Glæsilegur lokakafli íslenska
liðsins í gær gerði á endan-
um útslagið en þetta er í
annað skiptið sem góður
lokakafli íslenska liðs-
ins gerir gæfumuninn.
„Við erum með mjög gott
hraðaupphlaupslið sem
sést eflaust best á því
að Óðinn Ríkharðs-
son er markahæst-
ur á mótinu og hann
er ekki vítaskytta.
Vegna þess vitum
við að við eigum
alltaf tækifæri á að
taka rispur eins
og þessar. Við
nýtum okkur
mistök ann-
arra liða
og erum
sérstak-
lega
dug-
legir
í að
refsa séum við manni fleiri,“
sagði Einar sem vildi klára
leik inn í fyrri há lf leik .
„Vörnin var frá-
bær í leiknum,
við settum þá
í va nd ræði
trekk í trekk.
Ég hefði viljað
klára þennan
leik í fyrri
hálf-
leik.
Hefðum við nýtt
dauðafærin
okkar þá hefð-
um við farið
inn í hálfleikinn
með tíu marka
forskot en ekki
fimm.“
Fá vonandi stærri
hlutverk í vetur
Einar sagðist hafa verið
vonsvikinn yfir því hversu
lítil hlutverk leikmenn hans
fengu hjá liðum sínum í Olís-deild-
inni síðasta vetur.
„Ég var hálf svekktur yfir því
hvað þeir fengu lítið af tækifær-
um í vetur, að mínu mati gátu
þeir fengið mun fleiri mínútur og
ennþá stærra hlutverk. Þeir sátu
mikið á bekknum að mínu mati
þótt sumir væru meiddir. Kannski
var ég eigingjarn, ég vil náttúru-
lega að þeir standi í stykkinu,“
sagði Einar sem vonaðist til þess
að frammistaða leikmannanna á
mótinu yrði til þess að þeir fengju
aukin tækifæri.
„Þeir eru búnir að fá gríðarlega
reynslu í sumar. Við erum búnir
að spila sextán landsleiki í sumar
og eigum tvo eftir sem skilar sér
vonandi í því að þeir komi inn með
gríðarlegt sjálfstraust og reynsl-
unni ríkari.“
Tilbúnir í kynslóðaskiptin
Einar var þjálfari U-19 ára liðs-
ins sem nældi í silfur á sama
móti fyrir sex árum en á mótinu
skutust leikmenn á borð við Aron
Pálmarsson og Ólaf Guðmundsson
fram á sjónarsviðið.
„Ég var með þá í sex ár og af
þeim eru tíu leikmenn komnir í
atvinnumennsku. Ég held að við
eigum eftir að sjá annað eins í
þessum hópi. Þessir hópar eru
svolítið mismunandi, bestu leik-
mennirnir komu eiginlega allir
úr Selfossi og FH en í ár er ég
með leikmenn úr 12 liðum,“ sagði
Einar sem fagnaði fjölbreytileik-
anum.
„Það er mjög óvenjulegt, vissu-
lega jákvætt að mörgu leyti en
það tók tíma hjá sumum af þess-
um strákum að byggja upp sigur-
hefð. Þeir voru margir að vinna
sinn fyrsta titil á European-Open
æfingamótinu í sumar í Svíþjóð.“
Einar hefur fulla trú á því að
þessir leikmenn geti tekið við kefl-
inu þegar kynslóðaskipti verða í
handboltalandsliðinu.
„Þeir verða alveg klárlega til-
búnir til þess að gera það. Aginn
og vinnusemin í þessum strákum
er algjörlega til fyrirmyndar og
það skiptir mjög miklu máli. Þetta
eru algjörir fyrirmyndardrengir.“
kristinnpall@365.is
Framkvæma allt sem ég segi
Þjálfari U-19 ára landsliðsins í handbolta segist vera stoltur af strákunum sem hafa slegið í gegn í Rússlandi.
Hann segir sína menn tilbúna til þess að taka að sér stór hlutverk hjá íslenska landsliðinu í framtíðinni.
FÓTBOLTI Fjórir leikir fóru fram í 16.
umferð Pepsi-deildar karla í gær. FH-
ingar rústuðu Stjörnunni í Kaplakrika
en þessi lið mættust sem kunnugt
er í lokaumferðinni í fyrra þar sem
Garðbæingar tryggðu sér Íslands-
meistaratitilinn.
Jonathan Glenn skoraði þrennu
þegar Breiðablik komst upp í 2. sæti
deildarinnar með 3-1 sigri á ÍA. Glenn
er nú orðinn markahæstur í deildinni
með níu mörk. Víkingur og Leiknir
gerðu 1-1 jafntefli í fallslag í Víkinni
og Fylkir og Keflavík gerðu sömu-
leiðis jafntefli, 3-3, í Árbænum.
FH rúllaði yfi r
Stjörnuna
MIKLIR YFIRBURÐIR Stjörnumenn sáu aldrei til sólar gegn öflugum FH-ingum í Kaplakrika í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
1
7
-0
8
-2
0
1
5
2
2
:3
9
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
5
C
C
-2
9
3
4
1
5
C
C
-2
7
F
8
1
5
C
C
-2
6
B
C
1
5
C
C
-2
5
8
0
2
7
5
X
4
0
0
5
B
F
B
0
4
0
s
C
M
Y
K