Fréttablaðið - 18.08.2015, Síða 40
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR · SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 DREIFING: dreifing@postdreifing.is
EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VÍSIR
RITSTJÓRN 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Ísafoldarprentsmiðja
Opið allan sólarhringinn
í Engihjalla,
Vesturbergi og
Arnarbakka
Allt sem þú þarft ...
Höfuðborgarsvæðið, meðallestur á
tölublað 18–49 ára. Prentmiðlakönnun
Gallup, jan.– mar. 2015
YFIRBURÐIR
Fréttablaðsins staðfestir
53,7%
19,6%
FB
L
M
BL
Við karlmenn eigum það flest-ir til að gleyma okkur við þá
óra að við séum eitthvert kynlífs-
lostæti og alveg ómótstæðilegir
sem slíkir. Eina meðalið sem lífið
hefur til að uppræta þennan mis-
skilning er að slá okkur utanund-
ir, mætti jafnvel kalla það reið-
arslag. En ég fékk einmitt eitt
slíkt fyrir skömmu.
ÉG dvel nefnilega þessa dag-
ana í Zújar, þorpi konu minnar,
sem er ágætt þorp fyrir utan
þann urmul útigangshunda sem
halda þar til. Þeir eru gjarnir á
að flaðra upp um mann þar til
bæjarbúar bregðast við en þá
hrópa þeir: „Túva!“ og skella svo
tvívegis í góm. Það bregst ekki,
hundarnir láta umsvifalaust
af sínum ljóta ósið og hverfa á
braut, skömmustulegir á svip.
ÉG veit ekki til annars þorps þar
sem íbúar eru með sína sérstöku
aðferð við að reka af sér rakkana
en hvergi annars staðar á byggðu
bóli hef ég heyrt þetta „túva“
sem ríður húsum hér í Zújar.
Ekki hef ég heldur heyrt heima-
mann segja hundi að hypja sig
með öðru móti, slíkt virðist bara
ekki hvarfla að nokkrum Zújar-
búa. Ég ákvað því að prófa þessa
aðferð sjálfur.
ÞEGAR ég skokka verð ég venju-
lega fyrir nokkrum hundaágangi.
Hef ég prófað að segja þeim að
snáfa, uppá íslenskuna, en ekk-
ert gerist. Það er ekki fyrr en ég
hrópa „túva“ og skelli í góm að ég
fæ einhvern frið.
SVO var það eina nótt að ég gat
ekki sofið og gleymdi ég mér
þá við fyrrnefnda óra. Gerðist
ég þá heitfengur mjög, svo ég
snéri mér að konu minni sem
var einhvers staðar milli svefns
og vöku. Ég beitti mínum losta-
brögðum og strýk um kvenlegu
línurnar af mikilli kostgæfni. Þá
allt í einu hrópar hún úr svefn-
móki að hætti heimamanna:
„Túva!“ Og svei mér þá ef hún
skellti ekki líka í góm.
EFTIR slíkt reiðarslag er best
að snúa sér á hina hliðina eins
og rakki, með skottið milli lapp-
anna.
Reiðarslag
í rúminu
BAKÞANKAR
Jóns Sigurðar
Eyjólfssonar
1
7
-0
8
-2
0
1
5
2
2
:3
9
F
B
0
4
0
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
5
C
B
-F
C
C
4
1
5
C
B
-F
B
8
8
1
5
C
B
-F
A
4
C
1
5
C
B
-F
9
1
0
2
7
5
X
4
0
0
1
A
F
B
0
4
0
s
C
M
Y
K