Fréttablaðið - 16.10.2015, Page 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —2 4 2 . t ö l u b l a ð 1 5 . á r g a n g u r f ö s t u d a g u r 1 6 . o k t ó b e r 2 0 1 5
Fréttablaðið í dag
skoðun Þórólfur Árnason skrifar
um öruggar samgöngur. 19
sport Helgi ætlar að kasta yfir
60 metra í Doha. 20
Menning Borgarleikhúsið frum-
sýnir Mávinn. 28-32
lÍfið Tekur lítil skref frá Euro-
vision-Maríu. 36-38
plús 1 sérblað l fólk
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015
Bleikir októbervendir
3.550kr
lÍfið
Réttur er settur
Birna Rún Eiríks-
dóttir er Hanna
í Rétti sem
hefur göngu
sína á Stöð 2 á
sunnudaginn.
Föstudagsviðtalið
Halldóra Gunnarsdóttir
er framkvæmdastjóri
Barnaverndar Reykjavíkur,
sem hún segir gefandi starf
en vanþakklátt. Hún segir
starfsmönnum oft hótað
líkamsmeiðingum en
alvarlegast sé þegar veist er
að börnum þeirra. Hún segir
mikilvægt að horfast í augu
við það að sum börn glími við
slíkan vanda að þau jafni sig
aldrei. Halldóra kallar eftir
fleiri fósturfjölskyldum á
höfuðborgarsvæðinu.
Síða 16
Okkur
er mjög
reglulega
hótað
Fréttablaðið/SteFán
viðskipti Framkvæmdastjóri Mílu,
Jón Ríkharð Kristjánsson, keypti
hlut í Símanum fyrir tæplega tíu
milljónir króna í ágúst á genginu
2,5 krónur á hlut. Um þriðjungi
lægra verði en bréfin voru seld á í
almennu hlutafjárútboði sem lauk
í síðustu viku.
Af samkeppnisástæðum fá
starfsmenn Mílu, sem er dóttur-
félag Símans, ekki að kaupa hlut
á sömu kjörum og aðrir almennir
starfsmenn Símasamstæðunnar.
Ástæðan er sú að starfsemi Mílu er
undirstaða fjarskiptaþjónustu um
allt land. Jón Ríkharð telur hins
vegar að sér hafi verið heimilt að
kaupa bréf í samstæðunni í ágúst.
Almennir starfsmenn Símans
eiga þess kost að kaupa bréf í Sím-
anum á genginu 2,5 fyrir allt að
600 þúsund krónur á ári í þrjú ár.
Þetta er samkvæmt valréttarkerfi
sem samþykkt var á hluthafafundi
Símans snemma í september. Að
sögn Orra Haukssonar, forstjóra
Símans, byggist ákvörðunin um að
heimila þessi kaup á kerfi frá ríkis-
skattstjóra.
„Vonandi verða sem flestir starfs-
menn hér í samstæðunni orðnir
eigendur að hlutabréfum innan árs.
Auðvitað með þeirri undantekn-
ingu að við megum, samkvæmt
sátt við Samkeppniseftirlitið, ekki
bjóða upp á slíkt prógramm fyrir
starfsfólk Mílu, sem er mjög stórt
og mikilvægt félag en sjálfstætt
innan samstæðunnar,“ sagði Orri
við skráningarathöfn Símans í gær.
Fyrsti dagur viðskipta með bréf
í Símanum á aðallista Nasdaq
Iceland gekk vel. Veltan nam 622
milljónum króna. ih, jhh / sjá síðu 4
Forstjóri Mílu fékk að kaupa í Símanum
Vonandi verða sem
flestir starfsmenn
hér í samstæðunni orðnir
eigendur að hlutabréfum
innan árs. Auðvitað með
þeirri undantekningu að við
megum, samkvæmt sátt við
Samkeppniseftirlitið, ekki
bjóða upp á slíkt prógramm
fyrir starfsfólk
Mílu.
Orri Hauksson,
forstjóri Símans
0
2
-1
1
-2
0
1
5
1
0
:2
1
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
B
F
-8
7
D
0
1
6
B
F
-8
6
9
4
1
6
B
F
-8
5
5
8
1
6
B
F
-8
4
1
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
5
6
s
_
1
5
1
0
2
0
1
5
C
M
Y
K