Fréttablaðið - 16.10.2015, Page 24
Friðrika Hjördís
Geirsdóttir
umsjónarkona Lífsins | rikka@365.is
Nú þegar myrkrið færist yfir þá
kveikja margir á kertum innan-
dyra og gera huggulegt heima
hjá sér. Nýleg dönsk rannsókn
leiddi í ljós að hefðbundin kerti
menga mjög mikið og voru sum
dönsk heimili svo sótug og meng-
uð að það mátti líkja þeim við
fjölfarna umferðargötu. Því skipt-
ir það máli að velja kerti af kost-
gæfni og eru kerti sem eru gerð
úr náttúrulegum efnum líkt og tólg
eða vaxi frá býflugum bæði betri
fyrir umhverfið og heilsuna.
HeilsusamleGum
kertum
Í
dag verður Bleiki dagurinn
haldinn hátíðlegur á landinu en
hann er hápunktur árvekni- og
fjáröflunarátaks Krabbameins-
félag Íslands. Tilgangurinn er
að vekja athygli á krabbameini hjá
konum. Í upphafi var mánuðurinn
helgaður brjóstakrabbameini en
undanfarin ár hefur Krabbameins-
félagið beint athyglinni að öllum
þeim krabbameinum sem greinast
í konum. Í fyrra var einblínt á leg-
hálskrabbamein og konur hvattar
til þess að mæta í leghálskrabba-
meinsleit.
Skipuleg hópleit
Núna í ár er það krabbamein
í ristli sem fær alla athyglina.
„Ristilkrabbamein er eitt af þeim
fáu krabbameinum sem hægt er
að koma í veg fyrir með því að
greina það á frumstigi,“ segir
Lára G. Sigurðardóttir, læknir og
fræðslustjóri Krabbameinsfélags-
ins. „Undanfarna mánuði hefur
Krabbameinsfélagið unnið að hug-
myndum til að finna góðan farveg
fyrir skipulega hópleit að ristil-
krabbameini hér á landi. Dr. Sunna
Guðlaugsdóttir meltingarlækn-
ir hefur leitt þá vinnu í samstarfi
við landlæknis og að beiðni vel-
ferðarráðuneytis. Nýgengi ristil-
krabbameins hefur aukist undan-
farna áratugi en nú síðustu ár
erum við farin að sjá lækkun á
tíðni þessa sjúkdóms. Það má lík-
lega þakka þeirri staðreynd að hér
fer fram óskipuleg skimun að ein-
hverju leyti. Sem dæmi, þá niður-
greiða nokkur stéttarfélög kostnað
við leit að ristilkrabbameini fyrir
sína félagsmenn,“ segir Lára.
Einkennin lúmsk
Ristilkrabbamein er þriðja
algengasta dánarorsök af völd-
um krabbameina á Íslandi en ár-
lega greinast að meðaltali 135
einstaklingar og 52 látast úr sjúk-
dómnum. Ætla má að um 2.000
Íslendingar séu nú þegar með
í sér ógreint ristilkrabbamein
eða sepa sem munu þróast yfir í
ristilkrabbamein á næstu 10-15
árum. Af þeim greinast um 600
með sjúkdóminn á lokastigi og
um 800 munu deyja úr sjúkdómn-
um. „Ristilkrabbamein er ein-
kennalaust til að byrja með en
eftir því sem það stækkar geta
komið fram einkenni eins og blóð
í hægðum, breytingar á hægða-
venjum, til dæmis niðurgang-
ur sem varir vikum saman. Kvið-
verkir eða krampi sem hætt-
ir ekki auk blóðleysis, þreytu og
þrekleysis,“ segir Lára. Þessi ein-
kenni geta verið af völdum ein-
hvers annars en krabbameins en
rétt er að leita álits læknis.
Slaufan er samfélag
Átakinu var hleypt af stokkunum
fyrir 15 árum með sölu á bleiku
slaufunni og hefur vaxið og dafn-
að með hverju árinu. Núna í ár
var það gullsmiðurinn Erling Jó-
hannesson sem hannaði slaufuna
en hann lýsir henni sem litlu sam-
félagi sem stendur með þér þegar
á bjátar og er hann þar að tala um
Krabbameinsfélagið.
Bleika slaufan er seld fyrstu
tvær vikurnar í október en hægt
er að kaupa slaufur fyrri ára á
vefsíðunni bleikaslaufan.is. Einn-
ig er hægt að styrkja átakið og
gerast velunnari.
Ristillinn í sviðsljósinu
Bleiki dagurinn er í dag. Hann er hápunktur fjáröflunarátaks Krabbameinsfélags Íslands.
Lára G. Sigurðardóttir er læknir og fræðslustjóri Krabbameinsfélagsins.
25%- afsláttur af öllum vörum á opnunartilboði -
Reykjarvíkurvegi 66 - Sími: 611 - 8800
- -
líFið mælir með
ÚtGáfuféLaG 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000
umsjón Friðrika Hjördís Geirsdóttir rikka@365.is l ábyrgðarmaður Kristín Þorsteinsdóttir
Hönnun Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is l forsíðumynd Stefán Karlsson
auglýsingar Atli Bergmann atlib@365.is
Lífið
www.visir.is/lifid
ugla Stefanía er baráttukona
mikil fyrir réttindum hinseg-
in fólks og transfólks. Hér deil-
ir hún sínum uppáhaldslögum
sem eru kjörin fyrir kertaljós
og huggulegheit þegar kólna
tekur í veðri.
TroLLabundin
Eivör
ró
MaMMút
rauðiLækur
MaMMút
roads
PortishEad
i’LL drown
sólEy
G.u.Y.
lady GaGa
The ChanGe
EvanEscEncE
LiThium
EvanEscEncE
androGYnous
Joan JEtt, laura JanE
GracE & MilEy cyrus
ParT of Your
worLd
littlE MErMaid
„Ristilkrabbamein
er eitt af þeim fáu
krabbameinum sem
hægt er að koma
í veg fyrir með því
að greina það á
frumstigi.“
2 • LÍfIÐ 16. oKtóbER 2015
Notalegir
tóNar
0
2
-1
1
-2
0
1
5
1
0
:2
1
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
C
1
-4
E
1
0
1
6
C
1
-4
C
D
4
1
6
C
1
-4
B
9
8
1
6
C
1
-4
A
5
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
5
6
s
_
1
5
1
0
2
0
1
5
C
M
Y
K