Breiðholtsblaðið - 01.01.2006, Blaðsíða 10
Ég er rótgróinn Breiðhyltingur.
Fjölskyldan flutti í blokkaríbúð á
4.hæð að Vesturbergi 10 vorið
1971, en flutti svo í raðhús að
Brekkuseli 26, 1. apríl 1976 og
býr þar enn. Haustið 1973 gekk
ég í Alþýðubandalagið og starf-
aði þar mest að borgarmálum.
Fyrsta stóra tækifærið til að hafa
áhrif á gang mála kom, þegar vin-
stri stjórnin var við völd í
Reykjavík 1978 - 1982, en á þeim
árum var ég jafnframt formaður í
Alþýðubandalagsfélaginu í Breið-
holti. Ég fékk samþykki fyrir því
innan vinstri meirihlutans að
gerð yrði skíðabrekka utan í
Vatnsendahvarfi og yrði nýttur
til þess uppgröftur, sem féll til í
hverfinu. Gerð brekkunnar var
mjög þjóðhagslega arðsöm ,
vegna þess að það sparaði gríð-
arlegan akstur með uppgröft,
sem annars hefði orðið að aka
niður á sorphaugana í Gufunesi.
Lætur nærri að gerð skíða-
brekkunnar hafi kostað þjóðar-
búið 150 milljónir króna minna,
en ekki neitt!
Í samvinnu við ágætt flokks-
fólk, tókst mér nú fyrir jólin að fá
loforð núverandi borgarstjóra,
fyrir því að skíðabrekkan yrði
lagfærð, á þann hátt að uppgröft-
ur yrði fluttur í brekkuna, þannig
að efstu 100 metrarnir yrðu
hækkaðir um 0 til 5, metra til að
auka byrjunarhraðann á skíða-
fólkinu. Annað dæmi um, að mér
hafi tekist að koma góðu til leið-
ar fyrir Breiðholtið, eru
undirgöng milli Seljahverfis og
Neðra Breiðholts við Stöng, sem
mér tókst að fá gerð á árunum
1978 til 1982, en þar hafði áður
verið mjög hættulegt fyrir fót-
gangendur að fara yfir Breið-
holtsbrautina.
Auðvitað mun ég vinna fyrir
Reykvíkinga í heild, ef ég fæ til
þess stuðning, en stundum
finnst manni eins og Breiðholtið
vilja gleymast hjá borgarpóli-
tíkusunum. Þar sem ég hef mik-
inn áhuga á umferðaröryggismál-
um mun ég beita mér fyrir því að
gerð verði göngubrú yfir Breið-
holtsbraut, rétt austan við
SHELL stöðina, en göngubrú á
þessum stað myndi einnig auka
tengslin milli Seljahverfis og Efra
Breiðholts.
Eitt helsta baráttumál mitt er
að flugvöllurinn fari úr Vatns-
mýrinni eigi síðar en 2010 og þar
rísi í staðinn þétt og blönduð
miðborgarbyggð. Samkvæmt
könnun, sem gerð var af tveimur
sænskum verðandi verkfræðing-
um í Háskóla Íslands árið 2001 er
það a.m.k. 200 milljarða kr. virði,
reiknað til núvirðis, fyrir þjóðar-
búið að byggja í Vatnsmýrinni
fyrir h.u.b. 25. þús. íbúa og 17
þús. störf.
Þessir 200 milljarða kr. skipt-
ast þannig að 90 milljarðar kr.
eru verðmæti byggingarlóðanna,
20 milljarðar kr. vegna tvínýting-
ar útivistarsvæðanna í nágrenn-
inu (ekki þarf að búa til ný úti-
vistarsvæði) og 90 milljarðar kr.
vegna þess að fasteignir og lóðir
í borginni vestan Kringlumýrar-
brautar munu hækka að meðal-
tali um 15 %.
Þar sem ríkið á h.u.b. þriðjung
lóðanna undir flugvellinum
(h.u.b.30 milljarða kr. virði) er
auðvelt fyrir það að fjármagna
nýjan flugvöll í jaðri höfuðborg-
arsvæðisins (eins og t.d. á Mið-
dalsheiði) en eiga samt h.u.b. 20
milljarð króna í afgang.
Það er ekki einungis þörf á því
að flugvöllurinn fari úr Vatns-
mýrinni, hann þarf að fara þaðan
fljótt, vegna þess að það er dýrt
fyrir þjóðarbúið að láta svona
verðmætt byggingarland liggja
ónotað. Góður mælikvarði á
kostnað þjóðarbúsins af þessu
ráðslagi fæst með því að reikna
vexti af bundnu fé. Ef reiknað er
með 6% ársvöxtum af 200 millj-
örðum kr. fást 12 milljarðar kr. á
ári eða 1.000.000.000 kr. á mán-
uði! Að losna við flugvöllinn og
byggja í staðinn blómlega byggð
mun verða fyrsta skrefið til rót-
tækrar þéttingar byggðar í
borginni og efla mjög miðborg-
ina, sem mikil þörf er á, því hún
er og verður eina miðborg lands-
ins.
Að losna við flugvöllinn er
mesta hagsmunamál Reykvík-
inga, m.a. vegna þess að það
minnkar akstursþörfina, með til-
heyrandi peningasparnaði, tíma-
sparnaði, fækkun umferðarslysa
og minnkaðri mengun. Brottför
flugvallarins mun efla höfuðborg-
ina, sem mun verða til þess að
ungir og vel menntaðir Íslending-
ar yfirgefa landið síður, það er
því fyrir miklu að berjast!
Af öðrum baráttumálum mín-
um má nefna: a) Sundabrautin
verði lögð í ytri leið (Leið 1).
b) Stofnað verði byggðasamlag
á höfuðborgarsvæðinu, sem yfir-
taki frá ríkinu stofnbrautargerð
innan svæðisins og fái til þess
a.m.k. 100 % meira framkvæmda-
fé frá því sem nú er, enda veitir
ekki af. c) Haldið verði áfram
glæsilegu starfi Reykjavíkurborg-
ar að fækkun umferðarslysa
(fækkað hefur um rúmlega 50 %
á tæpum áratug) og verði þeim
fækkað um 25 % til viðbótar á
fimm árum og yrði borgin þá
komin í hóp
þ e i r r a
borga í
he iminum
sem eru
með fæst
umferðar -
slys miðað
við fólks-
fjölda. d)
Ég hef
s t u n d a ð
íþróttir frá
barnsaldri,
aðallega knattspyrnu og lék m.a.
í efstu deild með ÍA og KR. Ég
þekki því af eigin raun gildi þeir-
ra og vil því að íþróttastarfið í
borginni verði eflt á allan hátt
ekki síst þágu barna og almenn-
ings. Í því skyni verði æfinga- og
iðkendagjöld barna í íþróttafé-
lögunum niðurgreidd. Stefnt skal
að því að þetta gildi einnig um
önnur gjöld vegna tómstundar-
iðkunar barna. e) Bæta þarf öldr-
unarþjónustuna fyrir þá sem
kjósa að búa heima t.d. með
samþættingu heimahjúkrunar og
félagslegrar heimaþjónustu.
Gunnar H. Gunnarsson er um-
ferðaröryggisverkfræðingur hjá
borginni og stjórnarmaður í Sam-
tökum um betri byggð, sem stefnir
á 4. til 5. sæti í prófkjöri Samfylk-
ingarinnar í Reykjavík í febrúar
n.k.
JANÚAR 200610 Breiðholtsblaðið
Vinn af auknum krafti fyrir Breiðhyltinga
Gunnar H.
Gunnarsson.
- fái ég til þess nægan stuðning