Breiðholtsblaðið - 01.09.2005, Side 2
SEPTEMBER 20052 Breiðholtsblaðið
Útgefandi: Borgarblöð ehf.
Vesturgötu 15 • 101 Reykjavík
Sími: 511 1188 • 561 1594
Fax: 561 1594
Auglýsingasími: 511 1188 • 561 1594 • 895 8298
Netfang: borgarblod@simnet.is
Ritstjóri: Jón Birgir Pétursson, Sími: 891 8121
Netfang: jonbp@simnet.is
Framkvæmda- og auglýsingastjóri: Kristján Jóhannsson
Umbrot: Valur Kristjánsson
Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins
Dreifing: Íslandspóstur
8. tbl. 12. árgangur
Breiðholtsblaðið er gefið út í 9000 eintökum og dreift
ókeypis í hvert hús í Breiðholtinu.
Breiðhyltingur í
borgarstjórastól?
BREIÐHOLTSBÚINN/ ANDRÉ BACHMANN,
GLEÐIGJAFI Í MÚSÍK OG STUNDVÍS
STRÆTISVAGNASTJÓRI
Beðinn um óskalög í strætó!
Breiðholtsbúi septembermán-
aðar ber franskt nafn, André
Bachmann, nafnið er borið fram
Andri á íslensku. Þannig stend-
ur á nafninu að André var skírð-
ur í höfuð föðurbróður síns sem
var látinn, sá aftur á móti fékk
nafnið frá frönskum hefðar-
manni sem bjó í Höfða, því
merka húsi við Borgartúnið.
André Bachmann er þekktur
maður fyrir hljóðfæraleik sinn.
Fyrir góð tilþrif og glæsta ball-
stjórn fékk hann viðurnefnið
Gleðigjafinn. Ekki lítið það.
„Ég byrjaði seint að spila, en
áður en varði var ég kominn af
stað í spileríi. Þetta vatt upp á
sig,“ segir André. Einhverju sinni
skemmti hann ásamt félaga sín-
um á Hótel Sögu, það átti að
standa stutt, en þar léku þeir við
miklar vinsældir næstu misserin.
„Ég er með Birgi J. Birgissyni
núna og við erum að spila í Kaffi
Óperu. Ætluðum að vera þar í
hálfan mánuð, en það gekk svona
þrusuvel að við verðum fram að
áramótum. Við syngjum róman-
tíkina og eingöngu fyrir matar-
gesti. Það þarf að leggja heilmikið
á sig að syngja þessi lög. Þau
finnst mér erfiðust satt best að
segja,“ sagði André Bachmann í
viðtali við Breiðholtsblaðið.
„Hvernig kom til titillinn
Gleðigjafinn?
„Það var víst hann Bjarni Ara á
Aðalstöðinni sem kom fyrst fram
með þetta, og það festist
einhvern veginn við mig.
-Hvernig er hægt að gleðja fólk
með söng eins og þú ert frægur
fyrir?
„Það geri ég með því að lesa
salinn eins og ég kalla það. Það
er mikilvægt að skilja hvernig
andinn er í salnum. Þetta hefur
aldrei klikkað hjá mér. Þegar
spilað er undir borðum þá verð-
ur fólk til dæmis að geta talað
saman. Á böllum gilda auðvitað
aðrar reglur,“ sagði André
-Þið hafið lengi búið í Breiðholt-
inu, þú og þín fjölskylda?
„Jú, við höfum víst búið hér í
ein 27 ár. Hér er gott að búa, allt
til alls, hér er sundlaug, apótek,
stutt í Elliðaárdalinn og fjallaloft-
ið stórkostlegt. Kostirnir við að
búa hér eru margir, ókostina hef
ég ekki orðið var við“.
Aðalstarf André Bachmann er
að keyra strætó. Hann segist
kunna vel við starfið.
-Þú syngur náttúrlega fyrir
farþegana?
„Nei, ég hef nú ekki gert það,“
segir André og hlær. „En ég hef
oft verið beðinn um það.“
-Hvernig fer nýja leiðakerfið í
þig, André?
„Bara vel, en mér finnst að það
hefði mátt kynna kerfið betur
áður en það skall á. Eldra fólkið
á dálítið erfitt með þetta. En
þetta venst allt saman.“
-Hvernig er forstjóri Strætó við
stýrið?
„Toppnáungi. Ég kenndi hon-
um að keyra svona vel,“ segir
André og hlær og bætir við: „Ég
er nú bara að plata. Annars unn-
um við saman á þvottastöð SVR í
gamla daga og það voru
skemmtilegir dagar. Þá vorum
við ungir og fallegir. Núna erum
við gullfallegir,“ segir André og
skellihlær.
Kona André Bachmann er
Emilía Ásgeirsdóttir
„Maður getur ekkert án
hennar,“ segir André og það er
ljóst að hann meinar það
sem hann segir.
ANDRÉ BACHMANN, - strætóstjórar eru úrvalsfólk.
S koðanakannanir undanfarið sýna veg Sjálfstæðisflokksins í borginnivaxandi eftir að Reykjavíkurlistinn liðaðist í sundur og hvarf í -ör-eindum sínum heim til föðurhúsa. Flokkurinn er með 54% fylgi
borgarbúa og 9 borgarfulltrúa af 15. En skoðanakönnun er eitt og kosn-
ingar annað. Sjálfstæðisflokknum hættir til að mælast vel í skoðanakönn-
unum nokkrum mánuðum fyrir kosningar en niðurstaðan veldur iðulega
vonbrigðum. Ekkert verður því fullyrt hvað gerist í maí á næsta ári þegar
borgarbúar kjósa.
T veir verðugir fulltrúar Sjálfstæðisflokksins keppa um leiðtogasætiðí borginni og þá hugsanlega um borgarstjóraembættið. Þetta erutveir góðir Breiðhyltingar, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, þrautreynd-
ur sveitarstjórnarmaður og oddviti flokksins í dag og Gísli Marteinn
Baldursson, varaborgarfulltrúi, ungur og vaskur maður. Fyrstu kannanir
sýna að borgarbúum hugnast best að sjá Gísla Martein í stóli borgar-
stjóra. En þetta þýðir auðvitað ekki að félagar í Sjálfstæðisflokknum séu
endilega á þessu máli. Það kemur í ljós í prófkjöri innan flokksins á
næstu vikum.
Aðstöðuvandræði
ÍR-inga senn leyst
B reiðholtshverfin iða af lífi alla daga. Þar búa á þriðja tug þúsundamanna. Og þrátt fyrir að hverfin séu vel gróin eftir frumbýlingsárin,þá er hér margt ungmenna í hópi íbúanna, og þessir krakkar sækja
útrás í starfi íþróttafélaganna.
Því miður hefur uppbygging íþróttamannvirkja í Breiðholti ekki verið
með þeim hætti að borgarstjórnin fá hrós heimamanna fyrir. Þó hefur
ýmsu verið lofað um margra ára skeið og íþróttahús frumteiknað, - en
síðan ekki söguna meir.
Ef litið er yfir landamærin til þeirra í Kópavogi má sjá öfluga og mark-
vissa uppbyggingu íþróttastarfsins á örfáum árum. Meðan þar er nánast
allt fyrir hendi , vantar mikið upp á hér.
En nú er að rofa til. Breiðholtsblaðið ræddi við Alfreð Þorsteinsson
borgarfulltrúa og formann hverfisráðsins. Hann hafði góðar fréttir að
segja, - allt lítur út fyrir að íþróttamannvirki og endurbætur skóla í Breið-
holti séu að verða að veruleika.
E itt elsta íþróttafélag landsins, Íþróttafélag Reykjavíkur, nærri 100ára gamalt félag með 1.900 virka félaga starfar í Breiðholti. Á svæðifélagsins er enn ekki kominn gervigrasvöllur eins og flest íþróttafé-
lög í Reykjavík ráða yfir í dag. Þar er heldur ekki íþróttahús. Það er
óhætt að taka undir með ÍR-ingum og skora á borgaryfirvöld að ganga
frá fjármögnun á gervigrasvellinum, - og í kjölfarið rísi alvöru fjölnota í-
þróttahús á svæðinu.
Jón Birgir Pétursson