Breiðholtsblaðið - 01.09.2005, Side 15
Gott ár ÍR-inga að baki í
frjálsum
Í heildina séð var árið 2005 eitt
besta árið í sögu frjálsíþrótta-
deildarinnar um langt árabil. Iðk-
endafjöldi fór stöðugt vaxandi og
rúmlega 300 iðkendur greiddu æf-
ingagjöld á árinu. Iðkendur 12-14
ára og yngri náðu öðru sæti í
stigakeppni Íslandsmótsins í
ágúst og 14 ára telpur urðu meist-
arar félagsliða í sínum árgangi.
Auk þessa hafði unglingalið ÍR 15-
22 ára algera yfirburði á Íslands-
mótunum bæði innanhúss og
utan. Sveinar og meyjar 15-16 ára
og stúlkur 17-18 ára sigruðu í
stigakeppni félaga bæði innan-
húss og utan á Íslandsmótunum.
Efnilegir unglingar í
frjálsum
ÍR á nú 24 unglinga á aldrinum
15-20 ára sem hafa náð lágmörk-
um inn í Úrvalshóp FRÍ sem er
um fjórðungur allra sem eru í
hópnum en í honum eru ung-
menni af öllu landinu. Einnig á ÍR
7 af 30 í svokölluðum afrekshópi
ungmenna FRÍ en það eru allra
efnilegustu ungmenni landsins í
frjálsíþróttum.
ÍR átti einn keppanda á HM 17
ára og yngri sem fram fór í
Maroccó og þrjá á ólympíuhátið
Evrópuæskunnar fyrir 16 - 17 ára í
sumar. Þrír ÍR-unglingar kepptu á
Norðurlandamóti unglinga í ágúst
og tveir á Norðurlandamóti
unglinga í fjölþrautum.
Meistaraflokkur ÍR hreppti síð-
an annað sætið í Bikarkeppni FRÍ
í 1. deild og gerir sig nú líklegan
til ógna veldi FH-inga. Sama sæti
náðist á Meistaramóti Íslands í
karla- og kvennaflokki þar sem ÍR
varð í öðru sæti í heildarstiga-
keppni mótsins.
ÍR-ingar stóðu sig vel í keppn-
um á erlendri grundu með lands-
liði Íslands en í frjálsíþrótta-
keppninni á Smáþjóðaleikunum í
Andorra átti félagið þrjá keppend-
ur og í Evrópubikarkeppni lands-
liða fjóra.
Uppbygging undanfarinna ára
er nú augljóslega farin að skila
sér í bættum árangri meistara-
flokks og stefnt er að því að ÍR
verði sterkasta frjálsíþróttafélag
landsins á 100 ára afmæli félags-
ins árið 2007.
Vetrarstarfið
Stöðugur uppgangur frjáls-
íþróttadeildar ÍR mun halda
áfram í vetur eins og undanfarna
vetur m.a. í nýrri og glæsilegri
Laugardalshöll. Í október verður
tekinn þar í notkun fyrsti alþjóð-
legi innanhússfrjálsíþróttavöllur
landsins með 200 metra hlaupa-
brautum og öllu sem til þarf til
alþjóðlegs mótahalds og æfinga á
öllum getu- og aldursstigum.
Með bættri aðstöðu verður
loks aðstaða til að fjölga iðkend-
um verulega hjá frjálsíþróttadeild
ÍR og bjóða öllum æfingaflokkum
sem geta æft í Laugardalnum upp
á góða aðstöðu til æfinga og
keppni. Enn vantar þó verulega
upp á að frjálsíþróttir hafi sæm-
andi aðstöðu til æfinga í Breið-
holti og vonandi að úr því verði
bætt með nýju íþróttahúsi á
ÍR-svæðinu.
Alls verða 11 þjálfarar við störf
hjá deildinni í vetur og þar af eru
9 sem hafa starfað hjá deildinni
undanfarin ár. Soffía Tryggva-
dóttir, Albert Magnússon, Hörður
Gunnarsson og Örvar Ólafsson
sjá um þjálfun flokka 14 ára og
yngri. Þráinn Hafsteinsson,
Jón Oddsson, Þórdís Gísladóttir,
Martha Ernstdóttir, Sverrir
Guðmundsson og Óskar
Thorarensen sjá um þjálfun ung-
lingaflokks og meistaraflokka og
Gunnar Páll Jóakimsson verður
áfram þjálfari skokkhóps ÍR.
Nýir iðkendur eru alltaf
velkomnir til að taka þátt í
frjálsíþróttum í góðum félagsskap
við góðar aðstæður undir stjórn
valinkunnra þjálfara.
SEPTEMBER 2005 15Breiðholtsblaðið
Fréttir
Íþróttafélag Reykjavíkur
Skógarseli 12 • Sími 587 7080
Myndsími: 587 7081
Tölvupóstur: iradal@isholf.is
Eitt megin markmið frjáls-
íþróttadeildar ÍR er að vinna
að öflugri barna- og unglinga-
stefnu með áherslu á að allir hafi
sömu möguleika á að iðka íþróttir
óháð utanaðkomandi þáttum eins
og fjárhagsstöðu og heimilisað-
stæðum.
Hinsvegar er okkur einnig ljóst
að áhugi eldri iðkenda er mikill og
er þá bæði um að ræða þá sem
stunda lengri hlaup og hlaupa
Laugaveginn og heil og hálf
maraþon, og líka þá sem eitt sinn
iðkuðu frjálsar íþróttir og hafa ekki
getað sleppt hendinni af gadda-
skónum og kastáhöldunum. Þess-
um ÍR-ingum er það ljóst að heil-
brigð sál í hraustum líkama er það
sem gefur lífinu gildi og bætir lífi
við árin.
Skokkað um
heimsbyggðina
Starfsemi skokkhóps ÍR hefur
verið mjög lífleg í ár og góð mæting
á æfingar. ÍR-skokkarar hafa tekið
þátt í fjölmörgum hlaupum innan-
lands og utan á þessu ári. Í vor
hlupu 14 úr hópnum London mara-
þon, nokkrir tóku þátt í Fær-
eyjamaraþoni og nú í haust verða
ÍR-skokkarar meðal þátttakenda í
Berlínarmarþoni og New York
maraþoni. Innanlands eru stærstu
viðburðirnir Laugavegshlaupið og
Reykjavíkurmaraþon. Í Laugavegs-
hlaupinu hlupu 15 úr hópnum og
um 30 tóku þátt í Reykjavíkurmara-
þoni og er nokkuð jöfn skipting
milli karla og kvenna. Árangur hef-
ur verið mjög góður og ÍR-skokkar-
ar átt hlaupara í verðlaunasætum í
flestum aldursflokkum. ÍR-skokkar-
ar hlaupa frá ÍR-heimilinu við Skóg-
arsel kl. 17:30 á mánudögum, mið-
vikudögum og fimmtudögum og frá
Breiðholtssundlaug á laugardögum
kl. 9:30. Allir velkomnir.
Fínn árangur í
HM öldunga
Núna nýlega tóku tveir ÍR-ingar
þátt í heimsmeistaramóti öldunga
sem fram fór í San Sebastian á
Spáni. Þetta voru þau Stefán Hall-
grímsson, sem keppir í flokki 55-59
ára og Fríða Rún Þórðardóttir sem
er á sínu fyrsta ári í flokki 35-40 ára.
Stefán er gamalreyndur kappi í
þessari keppni og margfaldur
heims- og Evrópumeistari í tug-
þraut og sjöþraut.
Fríða Rún er aftur á móti nýgræð-
ingur í flokki öldunga en hefur
keppt um áraraðir í frjálsum íþrótt-
um og þar af í um 10 ár með ÍR og
er hún enn í A-landsliði Íslands og
keppti m.a. fyrir Ísland á Smáþjóða-
leikunum nú í vor. Stefán reið á
vaðið í tugþrautinni í keppni hinna
5 Íslendinga sem þarna voru stadd-
ir og átti ágætan fyrri dag. Seinni
dagurinn byrjaði ekki vel þegar
Stefáni fipaðist í grindahlaupinu og
datt. Hann lét samt engan bilbug á
sér finna og efldist svo við þetta
mótlæti að hann náði stórgóðum
árangri bæði í kringlukasti og
spjótkasti og endaði í 2. sæti í
keppninni þrátt fyrir að fá ekki stig
fyrir grindahlaupið. Það er því ljóst
að með smá heppni hefði Stefán
náð að sigra í annað sinn í röð á
heimsmeistaramóti í tugþraut.
Fríða Rún hóf keppni í 5000
metra hlaupi og varð í 8. sæti af 16
keppendum á tímanum 17:46.41
mín, hennar ársbesta tíma og árs-
besta tíma íslenskrar konu, þetta er
einnig hennar besti tími síðan 2003.
Næsta grein var 800 metra hlaup en
þar þurftu konurnar að hlaupa und-
anrásir vegna fjölda keppenda en
alls 18 konur hlupi í tveimur riðl-
um. Fríða Rún náði 5. besta tíma í
undanrásunum en náði frábæru
hlaupi með miklum endaspretti í
úrslitunum og varð í 3. sæti með
ársbesta tíma, 2:18.10 mín. Þetta er
þriðji besti árstími íslenskrar konu
og hennar besti tími síðan 2003.
Lokagreinin var 1500 m hlaup og
þar var Fríða Rún einnig í eldlín-
unni en fyrir hlaupið var hún skráð
með 3. besta tímann. Þegar 200
metrar voru eftir var Fríða Rún í 5.
sæti og lokuð inni af tveimur öðr-
um keppendum. Hún náði þó að
komast fram úr þeim og endaði í 2.
sæti af 16 á tímanum 4:38.40 mín
sem er eins og í 800 m hlaupinu,
þriðji besti árstími íslenskrar konu
og hennar besti árangur síðan
2003.. Tímarnir í 800 metra og 1500
metra hlaupunum eru án efa Ís-
landsmet í þessum flokki en líklegt
er að Martha Ernstdóttir, sem ein-
nig keppir fyrir ÍR, eigi betri tíma í
5000 m hlaupi.
ÍR-sigur í
Reykjavíkurmaraþoni
Reykjavíkurmaraþon fór fram nú
fyrir stuttu og átti ÍR þar sigurveg-
ara í kvennaflokki í heilu maraþoni,
þegar Bryndís Ernstdóttir kom
fyrst í mark og varð hún um leið Ís-
landsmeistari í þessari vegalengd.
Martha Ernstdóttir varð fyrst í
hálfu maraþoni en hún varð Ís-
landsmeistari í þessari vegalengd í
Brúarhlaupi Selfoss á dögunum.
Gamlir ÍR-ingar góðir í
kastgreinunum
Um sl. helgi fór meistaramót öld-
unga fram á Kópavogsvelli. Alls
tóku 29 keppendur, þar af 7 frá ÍR
þátt í mótinu. Ágætur árangur náð-
ist í mörgum greinum og flokkum á
mótinu. Agnar Steinarsson sem
keppir í flokki 40-45 ára sigraði í 800
m hlaupi, kúluvarpi, kringlukasti og
langstökki. Hann varð svo í 2. sæti í
100 m hlaupi og í hástökki. Í flokki
50-54 ára sigraði Elías Sveinsson í
kúluvarpi, spjótkasti, sleggjukasti,
kringlukasti og lóðkasti. Stefán Hall-
grímsson sigraði í spjótkasti í flokki
55-59 ára. Jón H. Magnússon sem
keppir í flokki 65-69 ára sigraði í
kúluvarpi, spjótkasti, kringlukasti,
lóðkasti og sleggjukasti. Jón. Þ.
Ólafsson sigraði í kringlukasti í flok-
ki 60-64 ára. Jón Ögmundur Þór-
móðsson sem einnig keppir í flokki
60-64 ára sigraði í sleggjukasti og
lóðkasti. Að lokum sigraði Marteinn
Guðjónsson í lóðkasti 80-84 ára.
Það má því segja að ÍR-ingar hafi
hirt mestan hluta verðlaunanna
sem í boði voru í kastgreinum. Í
stigakeppninni fékk FH 171 stig en
ÍR kom næst með 122 stig. Það má
því segja að þessir 7 keppendur
hafi virkilega staðið fyrir sínu.
Uppgangur er í öldungastarfinu á
Reykjavíkursvæðinu og hefur Ís-
landi verið falið að sjá um að halda
Norðurlandamót Öldunga innan-
húss árið 2007 í hinni nýju glæsi-
legu höll sem verið er að leggja síð-
ustu hönd á núna þessa dagana.
Eldri ÍR-ingar að gera það
gott á mótum víða um veröld
Stuðningsmannafélag ÍR í
handboltanum hefur hlotið
nafn. Bláa höndin heitir félagið
og er það því Bláa höndin sem
styður ÍR og mun blá hönd því
lögð á plóginn í vetur til stuðn-
ings handboltanum í ÍR.
Andri Úlfarsson formaður Bláu
handarinnar sagði í spjalli við
Breiðholtsblaðið: „Við ætlum
að mæta vel á leikina í vetur og
standa fyrir sem öflugustu starfi
stuðningsmannanna. Við viljum
byggja liðið upp með jákvæðum
hætti í allan vetur. Fyrsta skrefið
var golfmót sem fór fram 10. sept-
ember sem tókst vel og standa
væntingar til að það verði að ár-
legum viðburði. Næsti viðburður
var kynningarfundur sem við
héldum sama dag og fyrsti leikur-
inn okkar fór fram, þann 17. sept-
ember í ÍR-heimilinu klukkan 13.
Þá fórum við yfir starfið í vetur,
skipulagið á deildinni, liðsskipan
og áherslur í dómaramálum. Þjálf-
ararnir fóru yfir liðið og markmið
vetrarins og fulltrúi úr dómara-
stéttinni flutti okkur þann boð-
skap allan. Markmiðið er líka að
fjölga félögum í stuðningsmanna-
klúbbnum og þeir sem vilja bæt-
ast við mega endilega senda póst
á blaahondin@simnet.is og við
svörum um hæl“.
Hulunni svipt af
Bláu höndinni: Lifi ÍR
Frá Frjálsíþróttadeild ÍR, - Af eldri iðkendum
Frá frjálsíþróttadeild ÍR:
Blómlegt vetrarstarf við frábærar aðstæður framundan
Æfingunum stýrir Björn H.
Halldórsson 3.dan, sem hefur
áralanga reynslu í þjálfun í öll-
um aldursflokkum, bæði hér
heima og erlendis.
Við viljum fá þig í hópinn
Með iðkun Judo muntu ná að
auka við þig fimi, kraft, sjálfs-
traust og vellíðan.
Mættu í prufutíma þú sérð
ekki því.
Uppl. í síma 587 7080
Frá Júdódeild ÍR:
Æfingar eru að hefjast í ÍR
heimilinu Skógarseli 12
Upplýsingar um starfsemi félagsins er að finna á heimasíðunni og
heimasíður deilda félagsins eru með tengingu við www.irsida.is
Athugið að æfingatöflur deildanna eru á heimasíðunni.
Heimasíða ÍR er www.irsida.is