Vesturbæjarblaðið - 01.03.2007, Page 6
6 Vesturbæjarblaðið MARS 2007
veitingar
viÐ Öll
tÆkifÆri
Íbúasamtökin vilja bílfrítt
hverfi með götur í krákustígum
Fundur var haldinn í húsi Sögu-
félagsins í lok janúarmánaðar sl.
Guðný Gerður Guðmundsdóttir
borgarminjavörður og Helga Mau-
reen Gylfadóttir safnvörður héldu
erindi um sögu byggðar í Vestur-
bæ Reykjavíkur, húsafriðun og
húsaflutninga. Sögðu þær sögu
hverfisins á skýran og skemmtileg-
an hátt og gerðu grein fyrir stefnu
borgarinnar hvað varðar húsafrið-
un og uppbyggingu Árbæjarsafns.
Þegar þær höfðu lokið máli sínu
var boðið uppá fyrirspurnir og
umræður um hverfið, þ.e. gamla
Vesturbæinn. Unræðurnar voru
mjög líflegar. Beindust þær fljótt
inná tvö mál sem brenna mest á íbú-
um þessa stundina sem eru skipu-
lag Slippasvæðis og varðveislu og
flutning á gömlum húsum og þá sér-
staklega flutning á Gröndalshúsinu
við Vesturgötu.
Mátti heyra á fundarmönnum að
þeir voru afar ósáttir við að Grön-
dalshús fengi ekki að kúra áfram á
sínum stað. Komið var með marg-
ar skemmtilegar athugasemdir og
tillögur í því sambandi. Var til að
mynda bent á hve Akureyringum
hefur tekist vel til við að varðveita
sín hús í innbænum, eins og Nonna-
hús og Sigurhæðir. Einnig var bent
á að í Gröndalshúsi var Náttúru-
gripasafn Íslands varðveitt í fyrstu.
Væri við hæfi að gera Gröndalshús
að hornsteini væntanlegrar nýbygg-
ingar yfir Náttúruvísindi, þó að sú
bygging yrði á allt öðrum stað í
bænum.
Göng undir Mýrargötu
skapa vanda en leysa hann
ekki
Gísli Þór Sigurþórsson, formaður
Íbúasamtakanna, segir að fundar-
menn hafi haft miklar áhyggjur af
uppbyggingu Slippasvæðisins. Þar
ætti að byggja allt of hátt og of mik-
ið af íbúðum. Einn fundargesta hafi
staðhæft að byggingarnar þar yrðu
allt að sjö hæðir!
“En verst er hve þessar tillögur
eru steingeldar. Það er bara hugsað
að nýta þetta svæði í topp. Ekkert
hugað að því að búa til skemmti-
legt hverfi sem er í jafnvægi við
byggðina í Vesturbænum heldur
hve mörgum íbúðum og íbúum er
hægt að troða inná svæðið. Auk
þess verður að taka svæði í miðju
hverfi fyrir bílastæðahús, rétt eins
og um hof væri að ræða. Hvernig
væri að bjóða uppá bílfrítt hverfi?
- gera eitthvað spennandi og fallegt
eins og að leggja götur í krákustíg-
um rétt eins og þær hafi fylgt fjár-
götum eða leið sjómanna í verið.
Á að kæfa rómantík Tómasar,
sem samdi svo fögur ljóð um Vest-
urbæinn, með einhverjum austan-
tjaldsmúr? Nú berst stjórn Íbúasam-
takanna það til eyrna að skipulags-
nefnd sé búin að samþykkja skipu-
lag Slippasvæðis og Ellingsensreits,
án þess að hafa samráð við íbúa og
þvert á óskir þeirra.
Eigum við að kyngja þessu þegj-
andi og hljóðalaust? Eigum við til
dæmis að samþykkja að umferða-
vandi nýja hverfisins verði leystur
með því að opna Bræðraborgarstíg
niður að sjó? Það er gata sem þol-
ir ekki meiri umferð! Göngin sem
fyrirhuguð eru undir Mýrargötu
leysa engan vanda heldur skapa
hann. Þegar loks er að færast líf yfir
gömlu verbúðirnar með tilkomu
Sægreifans á að setja gangnamunn-
ann beint fyrir framan þær.
Ég skora á alla Vesturbæinga að
gera allt sem þeir geta til að hafa
áhrif á kjörna borgarfulltrúa svo
þessu skipulagsslysi verði afstýrt.
Við viljum ekki fá umferð frá heilu
hverfi þvert í gegnum þorpið okk-
ar,” segir Gísli Þór Sigurþórsson.
Fundargestir á fundi Íbúasamtaka Vesturbæjar fyrr í vetur í húsi
Sögufélagsins í Fischersundi 3.
Tjarnskælingar
heimsóttu Hafró
í “Skerputíma”
Nemendur Tjarnarskóla heim-
sóttu nýlega Hafrannsóknastofn-
unina en þar fer fram mikið vís-
indastarf tengt þessum helsta
atvinnuvegi íslensku þjóðarinnar.
Það er alltaf gaman að skoða og
skyggnast og það gerðu Tjarn-
arskælingarnir svo sannarlega.
Vettvangsferðir af þessu tagi eru
fastir liðir í skólastarfinu og er
reynt er að hafa þær sem fjöl-
breytilegastar og eru inni á stunda-
skránni undir heitinu ,,Skerputím-
ar”. Það heiti vísar meðal annars
í það að skerpa athygli, víðsýni og
reynslu.
Ferðinni var heitið á Hafrann-
sóknarstofun að þessu sinni þar
sem Konráð Þórisson tók á móti
nemendum ásamt Gísla Vikings-
syni hvalasérfræðingi. Nemendur
fengu upplýsingar um starfsemi
stofnunarinnar og hinar ýmsu
rannsóknir sem fara fram á veg-
um Hafró og fengu m.a. að skoða
innra eyra úr hval, einnig hval-
tönn og skíði úr skíðishval. Einnig
var litið inn á rannsóknarstofur
þar sem nemendur rýndu í smá-
sjár og skoðuðu kvarnir úr fiskum
sem segja t.d. til um aldur þeirra
(líkt og árhringir í trjám).
Tjarnskælingar eru því reynsl-
unni ríkari eftir ánægjulegar mót-
tökur á Hafrannsóknarstofnun.
Hvaltönn skoðuð, engin smásmíði! Hvaleyrað vakti einnig athygli.
Reykjavíkurborg hefur í hyggju að stuðla að varðveislu minja við
Grímsstaðavör við Ægisíðu. Hér með eru þeir, sem sem geta sýnt fram
á að þeir séu eigendur eða forráðamenn svo kallaðra grásleppuskúra
eða annarrra mannvirkja við Grímsstaðavör við Ægisíðu, hvattir til að
gefa sig fram við Minjasafn Reykjavíkur, Árbæjarsafni við Kistuhyl,
110 Reykjavik, eða á netfangið minjasafn@reykjavik.is, í síðasta lagi
mánudaginn 19. mars 2007.
Reykjavíkurborg áskilur sér rétt til að endurbyggja og varðveita í eigin
nafni mannvirki við Grímsstaðavör sem ekki hafa fundist eigendur að
þegar tilgreindur frestur er liðinn.
Nánari upplýsingar í síma 411 6304 eða minjasafn@reykjavik.is.
Borgarminjavörður - Minjasafn Reykjavíkur
Tilkynning varðandi mannvirki
við Grímsstaðavör við Ægisíðu
www.veislan.is
Austurströnd 12 • S: 561-2031