Vesturbæjarblaðið - 01.10.2005, Page 1
9. tbl. 8. árg.
OKTÓBER 2005Dreift ókeypis í öll hús í Vesturbæ og Miðborg
■ bls. 6
Með 65
milljón ára píanó
■ bls. 10
Fúnkishús
í Vesturbænum
Eiðistorg • Opið virka daga 9-19 og laug. 10-14
JL húsið • Opið virka daga 9-21og helgar 10-21
Melhaga • Opið virka daga 9-18 og laug. 10-14
Austurstræti • Opið virka daga 10-18
Hvernig Vatnsmýri viltu?
Smiðshús, sem nú er varðveitt á Árbæjarsafni, stóð áður við Pósthússtræti 15. Húsið var reist árið 1823 í
dönskum stíl. Yfir húsinu hvílir einhver virðugleikastíll þótt ekki sé það háreist.
Í listasafni Reykjavíkur fer fram
sýning á hugmyndum um framtíð
Vatnsmýrarinnar, eða réttara sagt
heildarskipulag. Ef einhvern tíma
hefur verið tækifæri til að skapa
höfuðborgar nýrrar aldar, þá er
það kannski nú. Listasafn Reykja-
víkur leggur sitt af mörkum til
þess með því að standa að sýn-
ingu á fortíð og framtíð skipulags-
mála í borginni. Búinn er til vett-
vangur fyrir fagfólk og leikmenn
til að skoða skipulag borgarinnar
og koma með hugmyndir að nýj-
um lausnum.
Á Reykjavík að státa af heims-
ins stærsta sundlaugargarði,
himnastiga eða síki sem teygja sig
frá Tónlistar- og ráðstefnuhúsinu
við miðhöfnina gegnum Tjörnina
og til Nauthólsvíkur? Hvert á að
vera tákn borgarinnar á nýrri öld?
Hvernig verða samgöngur og
skipulag framtíðarinnar? Hvaða
sérkenni Reykjavíkur viljum við
halda í og þroska?
Full ástæða er til þess að hvetja
borgarbúa til að skoða sýninguna
og hafa áhrif á framtíðarskipulag
Vatnsmýrarinnar, ekki síst Vest-
urbæinga sem munu öðrum íbú-
um frekar tengjast þessu svæði. ■