Vesturbæjarblaðið - 01.10.2005, Blaðsíða 9

Vesturbæjarblaðið - 01.10.2005, Blaðsíða 9
Við mælum þig út Opnunartími: Virka daga 9-21 og um helgar 10-21 JL húsinu Í apóteki Lyf & heilsu í JL húsinu við Hringbraut er boðið upp á þrenns konar mikilvægar mælingar sem segja til um líkamsástand þitt. Við mælum: • Blóðþrýsting • Blóðsykur • Blóðfitu (kólesteról) Pantaðu tíma í mælingu í síma 561 4600 Borgarstjórn Reykjavíkur sam- þykkti í júlímánuði sl. tillögu um nágrannavörslu og innbrotavarn- ir. Í tillögunni er óskað eftir sam- starfi við lögregluna í Reykjavík í því skyni að efla innbrotsvarnir í þágu almennings og koma á fót skipulagðri nágrannavörslu í öll- um hverfum Reykjavíkur. Í geinagerð með tillögunni segir m.a.: „Árlega verða þúsundir Reyk- víkinga fyrir fjárhagslegu og til- finningalegu tjóni af völdum inn- brota í hús og bifreiðar. Mikilvægt er að almenningur, borgaryfirvöld og lögregla sameini krafta sína og stuðli að fækkun glæpa með samstilltu átaki. Lögreglan í Reykjavík vinnur gott starf í þágu borgarbúa og hef- ur það verið eflt verulega á undan- förnum árum, t.d. með fjölgun lög- regluþjóna og bættri menntun þeirra, bættum tækjakosti lögregl- unnar, samræmdri neyðarsím- svörun og aukinni hverfalöggæslu. Umtalsverður árangur hefur náðst í löggæslu á undanförnum árum og hefur nú tilkynntum innbrotum fækkað í borginni tvö ár í röð.“ Efla á hverfalöggæslu „Sérstakir hverfislögregluþjónar eru nú í öllum hverfum borgar- innar. Er það sérstakt gleðiefni að ákveðið hefur verið að efla hverfalöggæslu enn frekar með því að lögregluþjónar af almenn- um vöktum munu nú koma til við- bótar og annast eftirlit í öllum hverfum borgarinnar allan sólar- hringinn. Með eflingu hverfalög- gæslu gefast margvísleg ný tæki- færi til aukinnar samvinnu milli al- mennings og lögreglu í baráttunni gegn glæpum og ber borgaryfir- völdum að stuðla að henni. Viðurkennt er að nágranna- varsla er eitt öflugasta vopnið gegn innbrotum. Nágrannavarsla í sinni einföldustu mynd er vafa- laust jafn gömul þéttbýlismyndun þar sem góðir grannar hafa frá örófi alda fylgst með eignum og hýbýlum hver annars. Með stækk- un borga og vaxandi glæpatíðni hefur slík nágrannavarsla eflst og þróast víða erlendis og alþekkt er að lögregla og sveitarfélög taki höndum saman við að tvinna sam- an hverfalöggæslu og skipulagða nágrannavörslu. Slík samtvinnun hefur í flestum tilvikum tekist vel og samtakamáttur almennings og yfirvalda leitt til fækkunar glæpa, bættrar öryggistilfinningar íbúa og hækkað endursöluverð fast- eigna. Með skipulagðri nágrannagæslu skapast margir nýir möguleikar til að tryggja öryggi borgaranna. Með útgáfu bæklings, opnun vef- síðu og fundahaldi í hverfum borgarinnar geta borgaryfirvöld og lögregla komið leiðbeiningum til almennings um innbrotsvarnir og nágrannavörslu og hvernig best sé að halda henni innan skyn- samlegra marka. Íbúar í götum eða afmörkuðum hverfum með nágrannavörslu geta síðan sótt um að sett séu upp skilti sem gefa slíkt til kynna til að fæla frá óboðna gesti. Með aukinn hverfalöggæslu skapast einnig möguleikar fyrir lögreglu til að auka upplýsingagjöf í einstökum hverfum og færa sér ýmsar tækninýjungar í nyt. T.d. er hægt að senda íbúum viðvörun með tölvupósti ef skyndileg aukning verður á innbrotum í viðkomandi hverfi og standa fyrir samræmd- um merkingum í því skyni að auð- velda leit að stolnum munum.“ Nú bíða Vesturbæingar sem og aðrir íbúar Reykjavíkur spenntir eftir því að sjá hvort efndir eru það sama og orð og samþykktir í þessu máli. ■ OKTÓBER 2005 9Vesturbæjarblaðið Hefur samþykkt að efla skipu- lagða nágrannavörslu í Reykjavík Löggæslumenn eru ekki alltaf svona fjölmennir í Vesturbænum. Þessar „vélhjólalöggur“ voru að gæta þess að Reykjavíkurmaraþon 2005 færi fram samkvæmt settum reglum um hringtorgið á mótum Hringbrautar, Ánanausts og Eiðisgranda. Borgarstjórn Reykjavíkur: Söguganga um Miðbæinn við opnun kosningaskrif- stofu Mörtu Guðjónsdóttur Fjöldi fólks lagði leið sína niður í Kirkjuhvol við Kirkjutorg í sól- skininu á sunnudaginn var en þar var Marta Guðjónsdóttir að opna kosningaskrifstofu ítilefni þess að hún sækist eftir 6. sætinu á fram- boðslista sjálfstæðismanna í Reykjavík í vor. Prófkjörsframbjóðendur hafa verið að krydda mannlífið með- ýmsum skemmtilegum uppákom- um að undanförnu. Á skrifstofu Mörtu var boðið upp á sögu- göngu um Miðbæinn undir leið- sögn þeirra Kjartans Gunnars Kjartanssonar og Ragnheiðar Erlu Bjarnadóttur. Vegna mikils áhuga og fyrirspurna hyggst Marta bjóða upp á fleiri sögugöngur um Miðbæinn. ■ Sögugöngur um miðbærinn njóta stöðugra vinsælda enda miðbær Reykjavíkur óþrjótandi uppspretta fróðleiks. Viðfangsefnin í blómlegum Vestubæ Sjálfstæðisflokkurinn í Reykja- vík hefur góðan hljómgrunn meðal borgarbúa sem sýnir sig í rúmlega fimmtíu og sex prósent stuðningi við flokkinn. Þessi stuðningur er ekki úr lausu lofti gripinn heldur kemur til annars vegar vegna vinnusemi og hug- myndaauðgi borgarstjórnar- flokks Sjálfstæðisflokksins, sem mér hefur verið mikil ánæga að leiða, hins vegar vegna and- og aðgerðarleysis R-listans. Þessu þarf að breyta og bæta hag borg- arbúa. Ég geng bjartur í þá baráttu og legg fram reynslu mína, þekkingu og þau verk sem ég hef unnið á vettvangi borgarmála um langa hríð. Ég tel ákaflega mikilvægt að leiðtogi sjálfstæðismanna í borg- arstjórn og borgarstjóraefni flokksins hafi víðtæka þekkingu á stjórnkerfi borgarinnar og geti sýnt og sannað með störfum sín- um að hann sé þess trausts verð- ur að leiða flokkinn í komandi kosningum. Ég hef komið að nánast öllum málaflokkum sem sýslað er með í Reykjavíkurborg og haft forystu um stefnumörkun Sjálfstæðis- flokksins í borgarmálum. Við í borgarstjórnarflokknum höfum á undanförnum misserum markað skýra stefnu í öllum málaflokkum og má þar m.a. nefna skipulags- og lóðamál, samgöngumál og skólamál. Sérstakir stefnumótun- arhópar hafa starfað að öllum helstu málaflokkum borgarinnar og einnig höfum við unnið að stefnumörkun til framtíðar. Við höfum lagt áherslu á að rækta nánasta umhverfi okkar, m.a. með heimsóknum til fjölmargra fyrir- tækja, félagasamtaka, stofnana og skóla. Við höfum farið í tæplega 150 heimsóknir og hafa þær gefið okkur aukna innsýn í það hvaða málefni og málaflokkar brenna á fólki í borginni. Við höfum þannig orðið þess áskynja að í Vesturbænum eru fjölmörg viðfangsefni sem bíða úr- lausnar og við sjálfstæðismenn munum taka þar til hendinni, fáum við til þess styrk. Þar vil ég m.a. nefna að nauðsynlegt er að huga að framtíðaraðstöðu til íþrótta - og útivistariðkunar í hverfinu. Mikill aðstöðuvandi steðjar að KR og er brýnt að félag- inu verði tryggð aðstaða til fram- tíðar. Jafn- framt verð- ur að tryggja að KR fái að halda æf- ingasvæð- inu við Star- haga því hverfið er mjög víð- femt og al- m e n n ánægja íbúa með þessa aðstöðu. Tengja þarf betur leiðakerfi strætisvagnanna og íþróttasvæði KR, því nauðsyn- legt er að börn t.d. af Grímsstaða- holti og úr Skerjafirði komist á íþróttaæfingar með vögnunum. Það léttir líka mjög á foreldrum sem ella þurfa að aka börnum til og frá. Að ýmsu er að hyggja á íþróttasviðinu og eitt þeirra at- riða sem huga verður að er að koma upp íþróttaaðstöðu við Vesturbæjarlaug sem gæti orðið íþróttamiðstöð fyrir almenning í hverfinu. Af mörgu er að taka þegar mál- efni Vesturbæjarins ber á góma og ekki rúm fyrir langa upptaln- ingu í stuttri blaðagrein. Þó vil ég nefna að uppsetning gangbrautar- ljósa á Nesvegi við Vegamót eru öryggismál sem ekki þolir bið. Talsverð umferð göngufólks er um göngustíginn við Ægisíðu, en þeir sem koma akandi leggja gjarnan bílum sínum í stæði íbú- anna við Faxaskjól og Sörlaskjól. Því er nauðsynlegt að koma upp bílastæðum fyrir göngufólkið, svo íbúar í nágrenninu fái frið með sín stæði. Einnig verður að huga að öryggi gangandi fólks á háskóla- svæðinu og eru undirgöng frá að- albyggingu Háskólans yfir á Þjóð- arbókhlöðusvæðið eitt þeirra at- riða sem gefa verður gaum, þar sem Háskólinn er með ýmsa starf- semi vestan Suðurgötu og fyrir- lestararsalir eru í Háskólabíói. Að lokum vil ég hvetja sjálf- stæðismenn í Vesturbæ til þess að greiða atkvæði í prófkjöri flokksins og taka þannig þátt í að skapa sterkan framboðslista í kosningunum í vor. Þar verður sigur að vinnast. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borg- arfulltrúi og oddviti Sjálfstæðis- flokksins í Reykjavík Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson. AUGLÝSINGASÍMI 511 1188 • 895 8298

x

Vesturbæjarblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.