Vesturbæjarblaðið - 01.10.2005, Blaðsíða 5

Vesturbæjarblaðið - 01.10.2005, Blaðsíða 5
Nemendur 7. bekkjar Granda- skóla á sl. vetri unnu það afrek í haust að hljóta 2. verðlaun í verðlaunasamkeppni sjávarút- vegsráðuneytisins um sjávarút- vegsvef, en verðlaunin voru af- hent á Íslensku sjávarútvegssýn- ingunni í Kópavogi í september- mánuði sl. Námið í Grandaskóla tengist töluvert sjónum, m.a. fara 12 ára nemendur í sjóferð út á sundin og safna lífverum sem þau setja í sjóbúr í skólan- um og vinna síðan rannsóknar- vinnu á sjávarlifverum í skólan- um. Valgeir Gestsson kennari segir að sjávarútvegsvefur Granda- skóla hafi að geyma ýmiss konar vinnu nemenda sem tengist sjón- um. Grandaskóli verður 20 ára 5. maí 2006 og af því tilefni verður opið hús í skólanum. Þá verður formlega opnaður afmælisvefur sem nemendur skólans vinna nú að. Um 350 nemendur eru í Grandaskóla og eru þar 30 kenn- arar í 23 stöðugildum. Tón- menntaskennsla er þar mikil en nemendur eru í 2 tímum á viku hverri og tvisvar í viku er sam- söngur. Í tengslum við tón- menntakennsluna fer fram ákveð- ið þróunarstarf, sem er tölvur og tónlist. Skólastjóri Grandaskóla er Kristjana Kristjánsdóttir. ■ OKTÓBER 2005 5Vesturbæjarblaðið Listagyðjunni þjónað af nemendum Hagaskóla Nokkrir nemendur 10. bekkjar Hagaskóla voru með myndlistakennara sínum, Gunnhildi Ólafsdóttur, við Ægisíðuna í fyrir nokkru og voru að þar að gera skissur á blað. „Þau eru að læra hér að taka gera skissur og ná inn litum, áferð o.fl. Þetta umhverfi er mjög hentugt til, ekki síst þessir gömlu grásleppuskúrar sem eru allir í ryði og málningaslettum. Skúrarnir eru því í öllum regn- bogans litum. Ekki má heldur gleyma hvönninni og njólanum. Þegar komið er til baka í skólann er þetta endurteiknað á vatns- litapappír og vatnsliltaðar æðis- legar myndir. Í 10. bekk velja nemendur greinar, og myndlist er ein valgreinin. Þetta hef ég gert á hverju hausti undanfarin ár en ég hef kennt við Hagaskóla í 15 ár. Þetta gerum við líka á vorin, en þá vinnum við þetta öðru vísi, því þá förum við með vatnslitina út. Við ræðum um ferðina upp í skólastofu áður en lagt er í hana svo þau vita vel hvað þau eiga að gera þegar þau koma hingað. Þau velja sér sjálf mótív en þurfa að taka þrívídd, velja ljós og skugga og gera sér grein fyrir hvaðan birtan kemur og gera sér einnig grein fyrir áferð.“ - Leynast einhverjir „Kjarvalar“ í hópnum? „Já blessaður vertu, alltaf! Það leynast í þessum hóp margir hæfileikaríkir krakkar en því miður nýta krakkar sem hafa hæfileika til að verða myndlista- menn ekki alltaf þann mögu- leika. Þessir myndlistahæfileikar nýtast einnig til ýmissa annara starfa, hæfileikarnir eru skap- andi á markaðnum í dag,“ segir Gunnhildur Ólafsdóttir kennari. Þessir strákar voru ekkert að láta trufla sig við listsköpunina. F.v.: Pétur Jóhann Pétursson, Eggert Rafn Einarsson og Arnór Kristinn Guðmundsson. LANGAR ÞIG AÐ KYNNAST ROPE YOGA Upplýsingar í síma 825 4122 kennslustaður í vesturbænum Grandaskóli: Krakkarnir í þessum bekk voru að fara í einhvers konar hópavinnu sem væntanlega þroskar þau. Börnin fá hollan mat í skólanum. Hér er steiktri ýsu gerð viðhlítandi skil. Nemendur vinna að afmælisvef vegna 20 ára afmælis skólans

x

Vesturbæjarblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.