Vesturbæjarblaðið - 01.10.2005, Side 2

Vesturbæjarblaðið - 01.10.2005, Side 2
Sektir vegna Fiskislóðar 47 Lagt hefur verið fram bréf fram- kvæmdastjóra forvarnadeildar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins bs. frá 23. september þar sem óskað er heimildar til að beita dagsektum að Fiskislóð 47, í sam- ræmi við 32. gr. laga um bruna- varnir nr. 75/2000, þar til uppfyllt- ar hafa verið kröfur um bruna- varnir. Erindið var samþykkt. Þrettándabrenna Á fundi Hverfisráðs Vesturbæj- ar nýverið barst bréf frá foreldra- félagi Melaskóla um möguleika á stuðningi hverfisráðs við fram- kvæmd þrettándabrennu í Vest- urbænum. Kannað verður milli funda um möguleika borgarinnar til þess að koma betur að fram- kvæmdinni. Afgreiðslu málsins var frestað hverfisráði. Samræming starfs- daga nauðsynleg Kjartan Magnússon lagði nýlega fram eftirfarandi bókun: Hverfis- ráð Vesturbæjar skorar á Mennta- ráð Reykjavíkurborgar að sam- ræma starfsdaga og skipulags- daga í leikskólum og grunnskól- um borgarinnar. Slík samræming kæmi sér vel fyrir foreldra með börn á báðum skólastigum, sem eru nú að lenda í því að þurfa að taka sér frí frá vinnu með fárra daga millibili vegna þess að frí- daga barnanna ber sjaldnast upp á sömu daga. Deiliskipulag Héðinsreits Á fundi skipulagsráðs hefur ver- ið lögð fram tillaga að deiliskipu- lagi Héðinsreits. Að lokinni aug- lýsingu er lögð fram að nýju til- laga V.A. arkitekta, dags. 20.07.05, að deiliskipulagi reitsins. Málið var í auglýsingu frá 27. júlí til 7. september 2005. Eftirfarandi aðil- ar sendu inn athugasemdir: Roy Guest og Ólafur Axelsson, Vestur- götu 61, dags. 17.08.05, íbúar að Vesturgötu 65 og 65a, dags. 06.09.05, Lex - Nestor ehf. dags 06.09.05. Einnig lagt fram bréf GP arkitekta, dags. 04.10.05. Athugasemdir voru kynntar á fundi skipulagsráðs en ákvörðun frestað og tillögunni vísað til um- sagnar skipulagsfulltrúa auk lög- fræði og stjórnsýslu. Byggingar á Lýsislóð rifnar Íslenskir aðalverktakar hafa sótt um leyfi til að rífa allar bygg- ingar og mannviki á Lýsislóðinni við Grandaveg 42. Mannvirki sem rifin verða eru samtals 5873,2 fer- metrar og 31461 rúmmetrar. Það verða margir fegnir þegar þessar lóðin verður hreinsuð og þessar byggingar hverfa enda eru þaær ekkert augnayndi. Íslenskir aðal- verktakar ætla að byggja þarna íbúðarhús að talið er. Enn fjallað um Mýrargötu 26 Lögð hefur verið fram tillaga að breytingum á deiliskipulagi Elll- ingsen reits vegna Mýrargötu 26, eign Nýju Jórvíkur ehf. Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju tillaga VA arkitekta, dags. 4.08.05 að breyttu deiliskipulagi á lóðinni Mýrargötu 26. Málið var í kynningu frá 15. ágúst til 12. sept- ember 2005. Athugasemdarbréf barst frá Reykjaprenti ehf, dags. 07.09.05. Einnig var lagt fram bréf Nýju Jórvíkur dags. 16. septem- ber 2005. Lögð var fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 3.10.05. Tillagan var samþykkt með vís- an til umsagnar skipulagsfulltrúa og síðan vísað til borgarráðs. Enn á ný er verið að flækjast með skipulag Mýrargötu 26 í kerfinu. Á meðan gapir byggingin eins og þurs út í Mýrargötuna, öllum til ama en engum til yndisauka. Byggt yfir Fiskifélagshúsið Sótt hefur verið um leyfi til þess að byggja yfir fimm hæðir ofan á hús Fiskifélags Íslands við Ingólfs- stræti 1 og að byggja við suður- hlið hússins. Jafnframt verði burðarvirki styrkt, innra fyrir- komulagi hússins breytt og komið fyrir hótelstarfsemi með gistiher- bergjum á sjö neðri hæðum en veitingastað á þeirri efstu. Sér- staklega er vakin athygli á því að nýtingarhlutfall fer yfir leyfilegt hámark 4,9. Vesturbæingar "Er ekki rétt að ljúka framkvæmdum við Hringbraut og hleypa gangandi fólki á göngubrýrnar?“ OKTÓBER 20052 Vesturbæjarblaðið Útgefandi: Borgarblöð ehf. Vesturgötu 15 • 101 Reykjavík Sími: 511 1188 • 561 1594 Fax: 561 1594 Auglýsingasími: 511 1188 • 561 1594 • 895 8298 Netfang: borgarblod@simnet.is Ritstjóri: Geir A. Guðsteinsson, Sími 564 5933, 898 5933 Netfang: geirgudsteinsson@simnet.is Framkvæmda- og auglýsingastjóri: Kristján Jóhannsson Umbrot: Valur Kristjánsson Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins Dreifing: Íslandspóstur 9. tbl. 8. árgangur Vesturbæjarblaðinu er dreift í hvert hús í Vesturbæ og Miðbæ. S T U T T A R B O R G A R F R É T T I R Loksins stefnir í byggingu al- vöru tónlistarhúss í miðbænum Portus Group sem er í eigu Landsafla, Nýsis, og Íslenskra að- alverktaka var með vænlegasta tilboðið í hönnun, byggingu og rekstur tónlistarhúss, ráðstefnu- miðstöðvar og hótels við austur- höfnina í Reykjavík samkvæmt niðurstöðu matsnefndar og sér- fræðinga Austurhafnar-TR. Sam- kvæmt tillögu Portus Group verð- ur tónlistar- og ráðstefnubygging- in staðsett austarlega á lóðinni. Að hluta til stendur húsið á land- fyllingu sem gerð verður í austur- bugtinni þar sem hafnarbakkinn verður færður fram. Samanlögð stærð tónlistarhússins og ráð- stefnumiðstöðvarinnar er um 23.000 fermetrar og mun bygging- in rúma tónleikasal sem tekur 1.800 manns í sæti, tvískiptan ráð- stefnusal með 750 sætum, kamm- ermúsíksal með 450 sætum og minni sal eða aðstöðu fyrir 180 til 200 áhorfendur. Auk þess er gert ráð fyrir hótelbyggingu sem verð- ur álíka stór og tónlistarhúsið og ráðstefnumiðstöðin og er hún staðsett á vesturhluta lóðarinnar. Stofnkostnaðaráætlun Austur- hafnar er 8,5 milljarðar króna að meðtöldum bílastæðum og lóð. Tilboð Portusar Group miðast við liðlega 12 milljarða króna. ■ M argir eru kallaðir til en fáir útvaldir til þess að stjórnaborginni. Þetta er skrýtin tík þessi pólitík, hún liggurlengst af kjörtimabilsins úti í horni og lætur sér fátt um kjósendur finnast, en hrekkur svo upp geltandi og nuddar sér utan í atkvæðin þegar nálgast kosningar. En þetta finnst mörg- um gaman, og það er það að vissu marki. Þótt enn séu liðlega sjö mánuðir þar til kosinn verður ný stjórn Reykjavíkurborgar er þegar farinn af stað kosningabarátta til að tryggja sér „ör- uggt“ sæti á framboðslista flokkana. Fyrstir til þess urðu sjálf- stæðismenn er núverandi oddviti þeirra tilkynnti að hann vildi leiða lista flokksins við næstu kosningar og fella Reykjavíkur- listann og ná hreinum meirihluta eftir 12 ára veru í „kuldanum.“ Nú þarf ekki lengur að fella Reykjavíkurlistann, hann splundraðist innan frá svo barátta sjálfstæðismanna er nú við aðildarflokka R-lista hvern fyrir sig auk Frjálslynda flokksins. 24 vilja komast á listann, þar af aðeins 5 konur, og margir hafa þegar opnað kosningaskrifstofu. Sjálfstæðismönnum er spáð meirihluta en of snemmt er að fullyrða að það gangi eftir. Listi Frjálslynda flokksins verður kynntur í nóvembermánuði í sam- starfi við borgarmálahóp flokksins en hann mun áfram leiða þau Ólafur Magnússon borgarfulltrúi og Margrét Sverrisdóttir. Samkvæmt nýlegri fylgiskönnun mun flokkurinn hins vegar engan borgarfulltrúa fá. Vinstri grænir hafa þegar ákveðið sitt framboð með vali meðal flokksmanna og þann lista leiðir nýr leiðtogi, Svandís Svavarsdóttir, framkvæmdastjóri þingflokks VG. Sá listi gerir sér vonir um 3 borgarfulltrúa en samkvæmt nýjum skoðanakönnunum um fylgi flokkana verður Svandís eini fulltrúi VG eftir næstu kosningar. Samfylkingin stefnir að prófkjöri meðal flokksbundinna félaga 11. til 12. febrúar á næsta ári en reglur um það prófkjör munu liggja fyrir 1. nóvem- ber nk. Páll Halldórsson leiðir þá vinnu og hann segir að um 4.000 flokksbundnir Samfylkingarmenn séu í Reykjavík og hann gerir sér vonir um að þeim fjölgi fram yfir áramót. Prófkjörið er einnig opið stuðningsmönnum Samfylkingarinnar. Aðeins Framsóknarmönnum virðist ekkert liggja á, ekkert fréttist af þeirra framboðsmálum út á við, nema að þeirra foringi, Alfreð, hefur gefið í skyn að hann vilji leiða listann áfram en það hefur reyndar Anna Kristinsdóttir borgarfulltrúi einnig gert. Líklegt er að Framsóknarmenn efni til prófkjörs meðal flokksbundinna. Fylgi Framsóknarmanna er svolítið óráðið, þeir fá einn fulltrúa samkvæmt könnun en reyndar er það svo að fylgi þeirra er yfir- leitt meira á kjördegi en í skoðanakönnunum. Á þessum listum eru margir Vesturbæingar, foringi VG er Vesturbæingur, Vesturbæingur sækist eftir forystu hjá Sjálf- stæðismönnum, miðbæingur sækist eftir forystu hjá Samfylk- ingunni en lengra virðist í Vesturbæinga hjá Frjálslyndum og Framsóknarmönnum. En spyrjum að leikslokum, en er langt til kosninga. Geir A. Guðsteinsson Vesturbæingar vilja stjórna borginni

x

Vesturbæjarblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.