Vesturbæjarblaðið - 01.10.2005, Blaðsíða 12
OKTÓBER 200512 Vesturbæjarblaðið
Tvöföldun í námskeiðahaldi Framvegis:
Býður ófaglærðum starfsmönnum
að afla sér starfsreynslu
Framvegis er sjálfstætt fræðslufyrir-
tæki sem vinnur í nánu samstarfi við
Fjölbrautarskólann við Ármúla og
Sjúkraliðafélag Íslands. Framvegis
sinnir einkum símenntun stétta í heil-
brigðis- og félagsþjónustu, en sér ein-
nig um ýmis önnur verkefni, s.s. nám-
skeiðahald fyrir Starfsmennt og tungu-
málaátak fyrir félagsmenn í aðildarfé-
lögum BSRB. Fastráðnir starfsmenn
eru þrír og verkefnaráðnir eru fimm.
Leiðbeinendur eru um 80 talsins sér-
hverja önn. Við ríka áherslu á að fá þá
færustu hverju sinni. Helst eru leið-
beinendurnir hjúkrunarfræðingar,
sálfræðingar og læknar með mismun-
andi faglega sérhæfingu, einnig fram-
haldsskólakennarar, prestar o.fl.
Framvegis hefur á sínum snærum 11
manna fagráð sem er fyrirtækinu dýr-
mæt uppspretta endurnýjunar í nám-
skeiðsframboði og inntaki námskeiða.
Fagráðsmennirnir eru m.a. hjúkrunar-
fræðingar frá L;SH og Landlæknisemb-
ættinu, læknir og fulltrúar stéttarfélaga
og fólk sem vinnur við heilbrigðisþjón-
ustuna.
Birna Gunnlaugsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Framvegis, segir að
stefnt sé að því að fara í gang með
starfsnám um leið og námskráin verði
tilbúin og grænt ljós kemur frá mennta-
málaráðuneytinu.
„Það hefur markvisst verið unnið að
því á síðustu árum að gefa ófaglærðum
ný tækifæri til að bæta við sig starfs-
menntun. Sem dæmi um þetta má
nefna félagsliða og hjúkrunar- og mót-
tökuritara. Sjúkraliðafélagið og fleiri að-
ilar hafa lengi haft áhuga á að opna
ófaglærðu fólki á heilbrigðisstofnunum
leið til sjúkraliðanáms. Starfsgreinaráð
menntamálaráðuneytisins er nú að
láta vinna námskrá sem er forsenda
þess að hægt sé að bjóða upp á slíkt
starfsnám. Þetta starfsnám mun fyrst
og fremst höfða til fullorðinna kvenna
sem unnið hafi árum saman á sjúkra-
húsum og öðrum heilbrigðisstofnun-
um.
Við höfum fengið styrk úr Starfs-
menntasjóði félagsmálaráðuneytisins
til þessa verkefnis. Við fengum hæsta
styrkinn í flokknum „Tækifæri mið-
aldra og eldra fólks til starfsmenntun-
ar“ og munum nýta hann til að búa
okkur sem best undir að bjóða fólki
þetta nýja starfsnám,“ segir Birna
Gunnlaugsdóttir.
Hvernig er heilsan?
Framvegis heldur 5 stutt námskeið, -
sem einnig er hægt að taka sem eitt
stórt námskeið-, um lýðheilsu á mið-
vikudögum frá 28. september til 26.
október. Þau eru opin öllum heilbrigð-
is- og félagsstéttum. Fjölmargir úrvals
sérfræðingar og leiðbeinendur sjá um
fræðsluna og er efni þeirra að þessu
sinni:
• Næring, hreyfing, heilsa
• Kynjavelferð
• Hvað er lýðheilsa?
Hvað gerir Lýðheilsustöð?
• Streita í samfélaginu -
Líðan á vinnustað.
• Fátækt og heilsa
(Hugtakið lýðheilsa (public health) á
við um almennt heilsufar þjóðarinnar
eða einstaka þjóðfélagshópa. Heilsufar
er t.d. nokkuð mismunandi eftir efna-
hag, menntun, kyni og aldri. Þessi mis-
munur kemur m.a. fram meðal barna.
Á síðustu árum hefur gildi góðs for-
varnarstarfs orðið stöðugt ljósara og
við vitum að það er margt sem við get-
um gert til að leggja rækt við heilsuna.
Sú þekking almennings auk samfélags-
legrar ábyrgðar eru lykilinn að því að
efla almenna lýðheilsu í landinu.
Námskeið þurfa að vera
sérhæfð
Vöxturinn í námskeiðsstundum hjá
Framvegis er um 100 % á milli náms-
ára nú. Ástæðan er sú að fyrirtækið
hefur skipað sér fastan sess á nám-
skeiðsmarkaðinum og margra ára
kynningarstarf er að skila sér. Nám-
skeiðahald er orðinn harður markaður
og samkeppni mikil. Mikilvægt er að
vera sífellt vakandi fyrir nýjungum og
að námskeið séu sérhæfð og fagleg því
þekking úreldist fljótt og ýmsar breyt-
ingar í umhverfinu kalla á nýja þekk-
ingu og færni. Fólk hefur yfirleitt ekki
tíma til að sitja námskeið sem nýtast
því ekki vel. Það er liðin tíð að hægt
sé að „keyra“ sama námskeiðið aftur
og aftur í óbreyttri mynd. ■
Frá úthlutun styrkja til starfsmenntunnar. F.v.: Birna Gunnlaugsdóttir
framkvæmdastjóri Framvegis, Árni Magnússon félagsmálaráðherra,
Kristín Á. Guðmundsdóttir formaður Sjúkraliðafélags Íslands og Þórleif
Drífa Jónsdóttir deildarstjóri starfsþróunar og fræðslu hjá LSH.
Húsin Túnsberg, Aðalból og
Suðurhús tilheyrðu áður
Þormóðsstaðarvegi sem nú
hefur verið aflagður. Húsin eru
nú nr. 5, 7 og 9 við Starhaga.
Borgarstjórn Reykjavíkur
samþykkti 24. júní sl. að leyfa
byggingu íbúðarhúsa á auðum
lóðum þar við hliðina á, þ.e.
við Starhaga 1 og 3. Það hefur
mætt mikilli andstöðu þeirra
sem búa við Starhaga 2 og 4 en
þar búa m.a. Carlos Ferrer
sóknarprestur og Kjartan
Gunnarsson framkvæmdastjóri
Sjálfstæðisflokksins.
Við Starhaga
Bóka- og ritfangaverslunin Úlfars-
fell við Hagamel er eiginlega hluti af
Vesturbæ nútímans, enda hefur
verslunin verið þarna í bráðum 33
ár, og þjónað Vesturbæingum vel.
Samkeppnin á bóka- og ritfanga-
markaðnum er hörð og segir eig-
andi verslunarinnar, Jón Stefán
Karlsson, sem hefur rekið verslun-
ina í 16 ár, að hann verði mest var
við samkeppnina á haustin þegar
skólarnir eru að byrja og auglýsing-
arnir dynji daglega í fjölmiðlunum.
En auðvitað megi segja að Úlfarsfell
sé í samkeppni allan ársins hring
við hinar búðirnar.
- Eruð þið að mæta þessari
samkeppni t.d. með einhverri sér-
hæfingu?
„Við erum nú t.d. með framköllun
hér, stafræna framköllunarvél, sem
alls ekki er í öllum bókabúðum í
dag og þar erum við að spara Vest-
urbæingum sporin í miðbæinn eða í
stóru verslunarmiðstöðvarnar. Hér
er hægt að fá alla myndvinnslu, s.s.
lagfæringu á myndum, stækkanir og
annað sem fólk vill fá í dag. Auðvit-
að framköllun við einnig venjulegar
filmur og fólk þarf alls ekki að leita
yfir lækinn til að fá sömu þjónustu
eða jafnvel betri á ekki lakari verð-
um en annars staðar. En það er oft
erfitt að koma þessum upplýsing-
um á framfæri, maður hefur ekki
bolmagn til þess að auglýsa jafn
mikið og grimmt og margir sam-
keppnisaðilanna þar sem veltan er
mun meiri,“ segir Jón Stefán Karls-
son.
Úrval gjafa í barnaafmæli
Úlfarsfell hefur alltaf verið bóka-
og ritfangaverslun, en þar er einnig
hægt að fá leikföng og því hefur
þetta alla tíð verið blönduð verslun.
„Maður heyrir oft að Vesturbæ-
ingar komi frekar hingað til að ver-
sla, þeir vilji frekar beina viðskipt-
unum til verslunar í hverfinu en að
fara austur fyrir lækinn. Margir hafa
lýst yfir ánægju sinni með að versl-
unin skuli hafa verið hér öll þessi
ár. Það hefur oft bjargað miklu t.d.
á laugardögum þegar barnaafmæli
eru að geta komið hingað og keypt
afmælisgjöf. Margir vita að hverju
þeir ganga hér með t.d. gjafir í
barnaafmæli þegar bjarga þarf hlut-
unum í hvelli, og þurfa ekki að fara
um langan veg og kannski í ákveð-
inni óvissu um hvert skuli fara,
hvar verslun er sem er opinn um
helgar og verslar með hluti sem
henta til gjafa í barnaafmælum.
Svo eru næg bílastæði hér sem
ekki er t.d. alltaf í miðbæ eða inni á
Laugarvegi,“ segir Jón Stefán Karls-
son í Úlfarsfelli. ■
Úlfarsfell hefur verið í Vesturbænum í þrjá áratugi:
Blönduð bóka- og ritfangaverslun
með leikföng og framköllun
Þótt verslunarrýmið sé ekki gríðarlega mikið er þar margs að gæta
og vöruúrval býsna gott.
borgarblod.is