Vesturbæjarblaðið - 01.11.2005, Síða 6

Vesturbæjarblaðið - 01.11.2005, Síða 6
„Kaupmaðurinn á horninu“ hefur látið undan síga á undan- förnum árum í baráttunni við stórverslanirnar og verslun- armiðstöðvarnar um hylli viðskiptavinanna. Margir eru þeir þó sem halda tryggð við þessar litlu verslanir og vilja ekki að þær hverfi úr því hverfi sem þeir búa í. Samstaðan um það hefur hins vegar ekki verið nógu almenn, enda eiga þessar verslunar undir högg að sækja í verðsaman- burðinum, og því hefur þessi sögulegi, en um leið persónulegi, verslunarmáti látið undan síga. Verslunin Svalbarði á Fram- nesvegi er ein þessara verslana sem hefur haldið velli. Hjónin Hulda Hannibalsdóttir frá Hanhóli í Bolungarvík og Ingvar Gunnars- son, fyrrum útgerðarmaður frá Eskifirði, keyptu verslunina árið 2000. Eftir að þau fluttu frá Eskifirði voru þau m.a. verið með verslun í Kolaportinu. Í versluninni Svalbarða er skemmtilegt og jafnframt girnilegt fiskborð og þar má einnig fá afskaplega góðan harðfisk sem þau hjónin sjá um að pakka í umbúðir merktar versluninni. Hulda segir að stórar matvöru- verslanir í nágrenni Svalbarða hafi vissulega dregið úr aðsókn að Sval- barða, en þau leggi þar með meiri áherslu á sérstöðu verslunarinnar, og ekkert annað komi til greina en að halda rekstrinum áfram. ■ NÓVEMBER 20056 Vesturbæjarblaðið Hjónin Hulda Hannibalsdóttir og Ingvar Gunnarsson í verslun sinni á Framnesvegi við hlið fiskborðsins með harðfiskinn góða. Girnilegt fiskborð og harðfiskur í Svalbarða KB Námsmenn verðlaunaðir í Melaútibúi Tveir heppnir nemendur í við- skiptum í Melaútibúi KB banka duttu í lukkupottinn á dögunum þegar dregið var í námsmannaleik bankans. Helgi Rafn Hróðmarsson vann glæsilegan Epson prentara frá EJS og Matthías Ragnarsson 10.000 kr. gjafakort í Pennanum. Blaða- maður Vesturbæjarblaðsins smellti mynd af vinningshöfunum ásamt fulltrúum Melaútibús við þetta tækifæri. Á myndinni eru ásamt þeim Helga og Matthíasi þau Sigríð- ur Theodóra Knútsdóttir, náms- mannafulltrúi útibúsins og Sverrir H. Geirmundsson, útibússtjóri. ■

x

Vesturbæjarblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.