Fréttatíminn - 10.07.2015, Blaðsíða 12
Æ Ævintýri ferðaþjónustunnar heldur áfram. Nú í júlí er háönn hennar, sem sjá má jafnt í þéttbýli, dreifbýli og á hálendinu. Kann-
anir hafa sýnt að allt að 80% ferðamanna
koma hingað vegna náttúru landsins. Hún
er aðdráttaraflið, stórbrotin sem hún er.
Fjölgun erlendra ferðamanna sem hingað
koma hefur verið ótrúleg undanfarin ár. Við
fjölguninni hefur verið brugðist á ýmsan
hátt með uppbyggingu hót-
ela og annarra gististaða,
veitingastaða, afþreyingu og
annars í ört vaxandi atvinnu-
grein. Flugfélögin eru mörg
sem annast flutninga fólksins
hingað, hópferðafyrirtækin
hafa endurnýjað flota sína
sem og bílaleigurnar. Þá eru
ótaldir þeir sem hingað koma
með ferjunni Norrænu, auk
þeirra sem eiga stutt stopp
sem farþegar skemmtiferða-
skipa.
Nýjar tölur Hagstofunnar sýna að ekkert
lát er á aðsókninni. Gistinætur á hótelum í
maí voru 216.500, sem er 20% aukning mið-
að við maí á síðasta ári. Gistinóttum Íslend-
inga fækkaði um 12% en gistinætur erlendra
gesta voru 85% af heildarfjölda gistinátta
í mánuðinum en þeim fjölgaði um 28% frá
sama tíma fyrir ári. Slík hefur þróunin verið
mörg undanfarin ár í öllum mánuðum.
Þessi mikla fjölgun ferðamanna hefur
skilað sér inn í hagkerfið en í maí störfuðu
18.500 manns í ferðaþjónustu hér á landi,
rúmlega tíundi hluti þeirra sem eru á at-
vinnumarkaði og búist er við því að störfin
séu yfir 20 þúsund nú á háannatíma, eða
um 11% af heildarfjölda starfandi fólks í ís-
lensku hagkerfi. Fjölgun starfa í greininni
milli ára er 9,5%, eða um 1600 störf. Þessi
fjölgun endurspeglar vöxtinn í greininni. Í
hagkerfinu öllu störfuðu 3900 fleiri í maí
í ár en í sama mánuði í fyrra. Vöxturinn í
ferðaþjónustunni skýrir 41% fjölgunarinn-
ar. Af þessu sést hvílík lykilgrein ferða-
þjónustan er orðin. Fram hefur komið hjá
Greiningu Íslandsbanka að á tímabilinu frá
2010, þegar hagkerfið byrjaði að taka við
sér, og þar til í fyrra, átti ferðaþjónustan
45% af heildarfjölgun starfa. Í maí síðast-
liðnum voru 13.200 Íslendingar án vinnu
og atvinnuleysi var 6,7% miðað við 7,2% á
sama tíma í fyrra. „Ljóst er,“ segir grein-
ingardeildin, „að fjölgun starfa í ferðaþjón-
ustu hefur átt drjúgan þátt í því að draga úr
atvinnuleysinu á tímabilinu líkt og frá upp-
hafi þeirrar uppsveiflu sem nú stendur yfir í
hagkerfinu. Að sama skapi hefur greinin átt
drjúgan hluta af hagvextinum eða um þriðj-
ung að okkar mati á tímabilinu frá því að
hagkerfið byrjaði að taka við sér árið 2010
og þar til í fyrra.“
Ekkert lát hefur orðið á þróuninni það
sem af er ári. Skýring útflutningsvaxtar
þessa árs skýrist alfarið af vexti ferðaþjón-
ustunnar en erlendir ferðamenn á fyrsta
ársfjórðungi ársins voru nær þriðjungi fleiri
en á sama tímabili í fyrra – en vart þarf að
taka það fram að það var metár, eins og árin
þar á undan. Þessi aukning mælist meðal
annars í stóraukinni kortanotkun erlendra
ferðamanna, en hún er langt umfram eyðslu
Íslendinga á erlendri grundu á sama tíma-
bili.
Ýmsir vaxtarverkir fylgja þessu ævin-
týri. Vinsælustu ferðamannastaðirnir eru
komnir að þolmörkum. Íslensk náttúra er
viðkvæm og hana þarf að vernda. Hún er
auðlind ferðaþjónustunnar og okkar allra.
Dregist hefur úr hömlu að koma skikki á
innheimtu gjalda á ferðamannastöðum og
náttúrupassafrumvarpið var andvana fætt.
Betur var hins vegar tekið á málum í vor
þegar stjórnvöld tilkynntu að 850 milljónum
króna yrði varið til uppbyggingar á ferða-
mannastöðum um land allt í sumar ásamt
framlagi til brýnna vegaframkvæmda. Má
þar nefna göngustíga, útsýnispalla, bíla-
stæði og salernisaðstöðu, auk þess sem
huga þarf að öryggismálum þar sem hætta
er á ferð, eins og við fossa og á hverasvæð-
um. Stjórnvöld greindu jafnframt frá því að
á næstu árum yrði ráðist í enn frekari fram-
kvæmdir á vinsælum ferðamannastöðum.
Þar er þörf stórátaks.
Stórátaks er þörf á ferðamannastöðum
Ævintýrið heldur áfram
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
LóABORATORíUM LóA hjáLMTýsdóTTiR
Skeifunni 17, 108 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjóri: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is Fréttastjóri: Hösk-
uldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is. Auglýsingastjóri og stjórnarformaður: Valdimar Birgisson valdimar@frettatiminn.is. Framkvæmdastjóri: Teitur Jónasson
teitur@frettatiminn.is. Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti.
Evonia eykur hárvöxt með því að
veita hárrótinni næringu og styrk.
Evonia er hlaðin bætiefnum sem
næra hárið og gera það gróskumeira.
Bætiefni ársins í Finnlandi 2012.
Evonia
www.birkiaska.is
niðurhal
einfalt
ótakmarkað
6.990
ljósleiðari ljósnet
vortex.is 525 2400
Göngugreining
Pantaðu
tíma
í síma
5173900
Orkhúsinu / Suðurlandsbraut 34 / 517 3900
Vandamál sem göngugreining Flexor getur
hjálpað til við að leysa eru til dæmis:
• þreytuverkir og pirringur í fótum
• verkir í hnjám
• sársauki eða eymsli í hælum
(hælspori, „plantar fasciitis“ o.fl.)
• beinhimnubólga
• óþægindi eða verkir í baki
og/eða mjöðmum
• verkir í tábergi og/eða iljum
• hásinavandamál
• óþægindi í ökklum
• þreytu- og álagsverkir
hjá börnum og unglingum
12 viðhorf Helgin 10.-12. júlí 2015