Fréttatíminn - 10.07.2015, Blaðsíða 16
Ég vildi
gera
eitthvað
„kreisí“
Ég er góð blanda af
Íslendingi og Norðmanni
María Þórisdóttir vakti athygli fyrir frammistöðu sína með norska landsliðinu á HM í knattspyrnu.
Hún er dóttir Selfyssingsins Þóris Hergeirssonar, þjálfara norska kvennalandsliðsins í hand-
bolta. María býr í bænum Klepp og lærir hjúkrunarfræði meðfram boltaspilinu. Hún reynir að
heimsækja ömmu og afa á Íslandi á hverju ári.
É g er mjög ánægð hvernig mér gekk sjálfri. En ég er ekki ánægð með að hafa tap-
að fyrir Englandi. Það pirrar mig
ennþá. Þær enduðu í þriðja sæt-
inu, ég hefði viljað vera þar,“ segir
María Þórisdóttir, hinn hálfíslenski
fulltrúi okkar Íslendinga á HM í
knattspyrnu kvenna á dögunum.
María lék fyrir Noreg en hún
hefur verið búsett þar í landi alla
sína tíð. María er dóttir Þóris
Hergeirssonar, Selfyssingsins
sem fluttist ungur að árum til
Noregs og skapaði sér nafn í
handboltaheiminum. Þórir
þjálfar nú norska kvenna-
landsliðið í handbolta.
Þurfti að hætta í hand-
bolta
María er 22 ára og býr í
bænum Klepp í Suður-Nor-
egi. Hún spilar með liðinu í
bænum og voru þær í þriðja
sæti efstu deildar áður en hlé
var gert á deildarkeppninni
vegna HM. María mætir aftur
til æfinga á mánudag og keppni
hefst í lok mánaðarins.
Ferill Maríu sem knattspyrnu-
kona hefur ekki verið samfelldur.
„Ég var alltaf bæði í handbolta og
fótbolta en eftir að ég fór á HM í
fótbolta með U20 ára landsliðinu í
Japan árið 2012 var ég rosalega leið
á fótbolta. Ég vildi bara hætta. Ég
valdi því handboltann en meiðsli í
hnénu gerðu það að verkum að ég
get ekki spilað handbolta hundrað
prósent. Þá var ég flutt til Osló og
spilaði í efstu deild en ég gat það
ekki með þetta hné. Við spiluðum
alltaf fótbolta í upphituninni og mér
fór að finnast það skemmtilegt aft-
ur. Í fyrra sneri ég mér svo aftur að
fótboltanum. En ef þú hefðir sagt
mér í febrúar eða mars að ég væri
að fara að spila á HM í Kanada þá
hefði ég aldrei trúað þér. Þetta gekk
allt svo fljótt fyrir sig.“
María lék einmitt fyrsta lands-
leik sinn fyrir Noreg fyrr á þessu
ári. Það var á Algarve-mótinu. Svo
skemmtilega vildi til að mótherjinn
í þeim leik var Ísland. María og þær
norsku mörðu sigur, 1-0.
Býr 200 metra frá foreldr-
unum
Það er ekkert sældarlíf að vera
knattspyrnukona í Klepp og María
leggur stund á nám í hjúkrunar-
fræði meðfram fótboltanum. Hún
hefur lokið einu ári í náminu. „Það
eru ekki mjög góð laun í boltanum
hérna, maður verður að vinna. Ég
tek að mér vinnu á hjúkrunarheim-
ili hérna. Þeir hringja ef það vantar
fólk,“ segir María.
Hún flutti nýverið að heiman og
kann því vel. „Ég er nýbúin að fá eig-
in íbúð og bý alein. Ég er samt bara
200 metra frá mömmu og pabba.“
Svarar pabba á norsku
Þú talar ágæta íslensku, alla vega
miðað við manneskju sem hefur
aldrei búið hér. Talið þið íslensku
saman, þú og pabbi þinn?
„Hann talar íslensku við okkur
systkinin en við svörum honum á
norsku. Það er orðið langt síðan ég
talaði íslensku af einhverju viti. En
nú er þjálfarinn minn hjá Klepp, Jón
Páll, íslenskur og ég tala aðeins við
hann á íslensku. Það er góð æfing.“
Ertu dugleg að heimsækja Ísland?
„Já, við förum oftast einu sinni á
ári. Núna er að vísu orðið langt síð-
an ég fór síðast en ég ætla að reyna
að koma í helgarferð í haust. Þá fer
ég til Selfoss og heimsæki ömmu
og afa og fjölskylduna sem er þar.“
Hvort álíturðu þig norska eða ís-
lenska?
„Ég er nú mest norsk en það er
mjög gaman að vera svolítið íslensk
líka. Ég er bara góð blanda, hálf og
hálf.“
Nakin á skíðum
María hefur vakið athygli í norskum
fjölmiðlum eftir að hún var valin í
landsliðið í fótbolta. Til að mynda
hafa stórir miðlar á borð við VG sýnt
því athygli að þessi hálfíslenska
stelpa skuli spila fyrir Noreg. Áhugi
þeirra minnkaði ekki þegar naskir
blaðamenn grófu upp myndir á In-
stagram-reikningi Maríu þar sem
hún spókar sig um allsnakin á skíð-
um.
„Æ, maður er alltaf eitthvað að
djóka,“ segir María þegar hún er
spurð um þetta. „Ég var með vin-
konunum í sumarbústað um páska
og það var rosa gott veður. Ég vildi
gera eitthvað „kreisí“ og bara tók
þessa mynd,“ segir hún og hlær.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@frettatiminn.is
María Þórisdóttir í norska
landsliðsbúningnum. Hún er
hálfur Norðmaður og hálfur
Íslendingur en hefur alltaf
búið í Noregi. Ljósmynd/Nor-
dicPhotos/Getty
Myndir á Instagram-reikningi Maríu hafa vakið athygli en þar spókar hún sig meðal
annars um nakin á skíðum.
16 viðtal Helgin 10.-12. júlí 2015
Nýtt