Fréttatíminn


Fréttatíminn - 10.07.2015, Page 12

Fréttatíminn - 10.07.2015, Page 12
Æ Ævintýri ferðaþjónustunnar heldur áfram. Nú í júlí er háönn hennar, sem sjá má jafnt í þéttbýli, dreifbýli og á hálendinu. Kann- anir hafa sýnt að allt að 80% ferðamanna koma hingað vegna náttúru landsins. Hún er aðdráttaraflið, stórbrotin sem hún er. Fjölgun erlendra ferðamanna sem hingað koma hefur verið ótrúleg undanfarin ár. Við fjölguninni hefur verið brugðist á ýmsan hátt með uppbyggingu hót- ela og annarra gististaða, veitingastaða, afþreyingu og annars í ört vaxandi atvinnu- grein. Flugfélögin eru mörg sem annast flutninga fólksins hingað, hópferðafyrirtækin hafa endurnýjað flota sína sem og bílaleigurnar. Þá eru ótaldir þeir sem hingað koma með ferjunni Norrænu, auk þeirra sem eiga stutt stopp sem farþegar skemmtiferða- skipa. Nýjar tölur Hagstofunnar sýna að ekkert lát er á aðsókninni. Gistinætur á hótelum í maí voru 216.500, sem er 20% aukning mið- að við maí á síðasta ári. Gistinóttum Íslend- inga fækkaði um 12% en gistinætur erlendra gesta voru 85% af heildarfjölda gistinátta í mánuðinum en þeim fjölgaði um 28% frá sama tíma fyrir ári. Slík hefur þróunin verið mörg undanfarin ár í öllum mánuðum. Þessi mikla fjölgun ferðamanna hefur skilað sér inn í hagkerfið en í maí störfuðu 18.500 manns í ferðaþjónustu hér á landi, rúmlega tíundi hluti þeirra sem eru á at- vinnumarkaði og búist er við því að störfin séu yfir 20 þúsund nú á háannatíma, eða um 11% af heildarfjölda starfandi fólks í ís- lensku hagkerfi. Fjölgun starfa í greininni milli ára er 9,5%, eða um 1600 störf. Þessi fjölgun endurspeglar vöxtinn í greininni. Í hagkerfinu öllu störfuðu 3900 fleiri í maí í ár en í sama mánuði í fyrra. Vöxturinn í ferðaþjónustunni skýrir 41% fjölgunarinn- ar. Af þessu sést hvílík lykilgrein ferða- þjónustan er orðin. Fram hefur komið hjá Greiningu Íslandsbanka að á tímabilinu frá 2010, þegar hagkerfið byrjaði að taka við sér, og þar til í fyrra, átti ferðaþjónustan 45% af heildarfjölgun starfa. Í maí síðast- liðnum voru 13.200 Íslendingar án vinnu og atvinnuleysi var 6,7% miðað við 7,2% á sama tíma í fyrra. „Ljóst er,“ segir grein- ingardeildin, „að fjölgun starfa í ferðaþjón- ustu hefur átt drjúgan þátt í því að draga úr atvinnuleysinu á tímabilinu líkt og frá upp- hafi þeirrar uppsveiflu sem nú stendur yfir í hagkerfinu. Að sama skapi hefur greinin átt drjúgan hluta af hagvextinum eða um þriðj- ung að okkar mati á tímabilinu frá því að hagkerfið byrjaði að taka við sér árið 2010 og þar til í fyrra.“ Ekkert lát hefur orðið á þróuninni það sem af er ári. Skýring útflutningsvaxtar þessa árs skýrist alfarið af vexti ferðaþjón- ustunnar en erlendir ferðamenn á fyrsta ársfjórðungi ársins voru nær þriðjungi fleiri en á sama tímabili í fyrra – en vart þarf að taka það fram að það var metár, eins og árin þar á undan. Þessi aukning mælist meðal annars í stóraukinni kortanotkun erlendra ferðamanna, en hún er langt umfram eyðslu Íslendinga á erlendri grundu á sama tíma- bili. Ýmsir vaxtarverkir fylgja þessu ævin- týri. Vinsælustu ferðamannastaðirnir eru komnir að þolmörkum. Íslensk náttúra er viðkvæm og hana þarf að vernda. Hún er auðlind ferðaþjónustunnar og okkar allra. Dregist hefur úr hömlu að koma skikki á innheimtu gjalda á ferðamannastöðum og náttúrupassafrumvarpið var andvana fætt. Betur var hins vegar tekið á málum í vor þegar stjórnvöld tilkynntu að 850 milljónum króna yrði varið til uppbyggingar á ferða- mannastöðum um land allt í sumar ásamt framlagi til brýnna vegaframkvæmda. Má þar nefna göngustíga, útsýnispalla, bíla- stæði og salernisaðstöðu, auk þess sem huga þarf að öryggismálum þar sem hætta er á ferð, eins og við fossa og á hverasvæð- um. Stjórnvöld greindu jafnframt frá því að á næstu árum yrði ráðist í enn frekari fram- kvæmdir á vinsælum ferðamannastöðum. Þar er þörf stórátaks. Stórátaks er þörf á ferðamannastöðum Ævintýrið heldur áfram Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is LóABORATORíUM LóA hjáLMTýsdóTTiR Skeifunni 17, 108 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjóri: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is Fréttastjóri: Hösk- uldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is. Auglýsingastjóri og stjórnarformaður: Valdimar Birgisson valdimar@frettatiminn.is. Framkvæmdastjóri: Teitur Jónasson teitur@frettatiminn.is. Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti. Evonia eykur hárvöxt með því að veita hárrótinni næringu og styrk. Evonia er hlaðin bætiefnum sem næra hárið og gera það gróskumeira. Bætiefni ársins í Finnlandi 2012. Evonia www.birkiaska.is niðurhal einfalt ótakmarkað 6.990 ljósleiðari ljósnet vortex.is 525 2400 Göngugreining Pantaðu tíma í síma 5173900 Orkhúsinu / Suðurlandsbraut 34 / 517 3900 Vandamál sem göngugreining Flexor getur hjálpað til við að leysa eru til dæmis: • þreytuverkir og pirringur í fótum • verkir í hnjám • sársauki eða eymsli í hælum (hælspori, „plantar fasciitis“ o.fl.) • beinhimnubólga • óþægindi eða verkir í baki og/eða mjöðmum • verkir í tábergi og/eða iljum • hásinavandamál • óþægindi í ökklum • þreytu- og álagsverkir hjá börnum og unglingum 12 viðhorf Helgin 10.-12. júlí 2015

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.