Fréttatíminn - 10.07.2015, Qupperneq 40
40 bílar Helgin 10.-12. júlí 2015
VolVo V40 Cross Country
… orð eins og bón, bónklútur, vaskaskinn,
vínylbón, þvottakústur …
Lykil- o
g korth
afar Ol
ís fá
10%
afslátt
af bíla
vörum
BÓNORÐ
GÓÐIR DAGAR FYRIR
PI
PA
R
\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
52
73
2
Njóttu sumarsins með
Veiðikortinu 2015 og
búðu til þínar minningar!
38 vatnasvæði!
www.veidikortid.is
2 0 1 5
Það er svo gott að
keyra Volvo V40
Cross Country að eftir
þriggja tíma keyrslu
langar mann að keyra
lengur. Verandi Volvo
gefur hann auðvitað
ekkert eftir í öryggis-
málum en hann var
valinn öruggasti bíll
nokkurra tíma árið
2013. Svo spillir ekkert
fyrir hversu fallegur
hann er.
Þ að er auðvitað ekki hægt að tala um Volvo án þess að tala um öryggi. Hinn klassíski
Volvo-station, V70, er orðin hálfgerð
táknmynd fyrir sænsku vísitölufjöl-
skylduna, ekki bara af því hann er
öryggið uppmálað í útliti heldur
hefur hann líka unnið hvert prófið
á fætur öðru í gegnum tíðina. En
nú má gamli góði „station-inn“ vara
sig því þessi V40 er talinn vera einn
öruggasti fjölskyldubíllinn á gjörv-
öllum markaðinum og árið 2013
var hann valinn, af Euro NCCAP,
sá öruggasti sem nokkurn tímann,
frá upphafi, hafði verið prófaður.
Stöðvar sjálfkrafa í hættu
Ef farið er í saumana á öllum þeim
öryggis-eiginleikum sem bíllinn
býður upp á kemur ýmislegt áhuga-
vert í ljós sem fæstir vita örugglega
að er til. Ég lét ekki reyna á alla eig-
inleikana við aksturinn, barnanna
vegna, en það er til að mynda hægt
að stilla þá vegalengd sem þú vilt
hafa í næsta bíl með „Adaptive
Cruise Control“ kerfinu og bíll-
inn viðheldur henni sama þó öku-
maðurinn á undan gefi í eða hægi
á sér. „City Safety“ kerfið skynjar
svo stöðugt veginn fram undan og
bregðist ökumaður ekki við hindr-
un þá stöðvar bíllinn bara sjálf-
krafa!
Þessi nýja Cross Country gerð er
reyndar sögð vera enn öruggari en
standard V40 útgáfan því bíllinn er
örlítið hærri og sérstaklega gerður
til að eiga við fjölbreyttari aðstæð-
ur til dæmis með sérstakri brekku-
bremsu.
„Sixtís“ útlit
Mér hefur alltaf þótt Volvo V40 vera
fallega hannaður bíll sem sker sig
frá öðrum af sömu stærðargráðu.
Þrátt fyrir að vera sportlegur og nú-
Bíll sem
stöðvar
sjálfur í
hættu
VolVo V40
Cross Country
Kostir
Öruggur
Sparneytinn
Hljóðlátur
Gallar
Lítið útsýni úr aftur-
sætum
Bílar í sama flokki
Mercedes A-class
BMW 1 Series
Audi A3
VW Golf
Ford Focus
Verð frá 4.530.000
tímalegur þá kallast stór afturrúðan
á við gamla P1800 ES Volvo-inn og
gefur bílnum skemmtilegt „sixtís”-
yfirbragð. Bíllinn er hugsaður sem
alhliða fjölskyldubíll sem gott er
að nota innan og utan borgarinn-
ar. Reyndar er hann líka hinn full-
komni bæjarbíll, nettur og fallegur
sem hann nú er. Hann er eiginlega
bara fullkominn að næstum því
öllu leyti. Það eina sem skyggði á
gleðina var lítið útsýni úr aftursæt-
unum en gluggarnir þar eru heldur
þröngir.
Lipur en ekki léttur
Á heimasíðu Volvo er bíllinn sagð-
ur vera hinn fullkomni ferðabíll og
ég get staðfest að hann er það. Auk
þess að skutlast innanbæjar á bíln-
um fór ég alla leið frá Reykjavík
norður á Hólmavík og það verður að
segjast að það er frábærlega gott að
keyra hann til lengri tíma. Hann er
hljóðlátur, ótrúlega lipur og snögg-
ur upp en á sama tíma ekki of léttur
í stýri og veitir því mikla öryggis-
tilfinningu eins og Volvo einum er
auðvitað lagið. Sætin eru líka ótrú-
lega þægileg og eftir þriggja tíma
keyrslu var engin þreyta farin að
gera vart við sig. Ferðafélaginn var
reyndar sammála um að ekkert
mál hefði verið að stoppa bara stutt
á Hólmavík og halda svo rakleitt á
Ísafjörð í einum rykk. -hh