Fréttatíminn


Fréttatíminn - 31.07.2015, Page 4

Fréttatíminn - 31.07.2015, Page 4
veður laugardagur sunnudagur mánudagur StrekkingSvindur af n og na. fremur kalt og rigning nv-til. HöfuðborgarSvæðið: Sól með köflum og þurrt. lægir og Hlýnar. Styttir einnig upp nv-til. HöfuðborgarSvæðið: A-golA og léttir til. HækkAndi Hiti. gola eða Strekkingur af na. víðaSt þurrt og bjart með köflum HöfuðborgarSvæðið: Hæglátt, Sólríkt og nokkuð Hlýtt verslunarmannahelgin ekkert bendir til umskipta og eins og svo oft áður verður veður nokkuð breytilegt frá degi til dags. framan af helginni mun enn einn kuldpollurinn fara suður yfir landið. Svalt verður, sérstaklega norðan- og norð- vestantil og strekkingsvindur. eins kemur til með að rigna þar fram á laugardag. Að mestu verður þurrt sunnan- og suðvestantil. á sunnudag styttir upp fyrir norðan og hlýnar heldur. á mánudag er spáð fyrirtaks sumarveðri með hita um og yfir 15°C þegar best lætur sunnan- og vestantil. 10 6 6 7 12 13 11 9 10 12 16 11 12 10 17 einar Sveinbjörnsson vedurvaktin@vedurvaktin.is ÚTSALA REYKJAVÍK | AKUREYRI | ÍSAFJÖRÐUR | REYKJAVÍK | AKUREYRI | ÍSAFJÖRÐUR 20-50%AFSLÁTTUR 25-35% AFSLÁTTUR STILLANLEG RÚM Verðdæmi C&J stillanlegt heilsurúm með infinity dýnu 2x80x200 cm. Fullt verð kr. 558.000 ÚTSÖLUVERÐ KR. 390.600 25% AFSLÁTTUR GOLD – HEILSU- RÚM GOLD heilsurúm Með Classic botni 160x200 cm. ÚTSÖLUVERÐ KR. 114.675 Með Classic botni 180x200 cm. ÚTSÖLUVERÐ KR. 123.675 Gafl ekki innifalinn í verði Faxafeni 5, Reykjavík • Sími 588 8477 Dalsbraut 1, Akureyri • Sími: 558 1100 og Skeiði 1, Ísafirði • Sími 456 4566 Opið virka daga frá kl. 10-18 Laugardaga frá kl. 11-16 betrabak@betrabak.is • www.betrabak.is 20-50% AFSLÁTTUR SÆNGUR- FATASETT MARGAR GERÐIR Fáanlegt 90x200 cm 120x200 cm 140x200 cm 160x200 cm 180x200 cm SÍÐUSTU DAGAR! Þ róunin hefur verið í þá átt að fleiri helgar en verslunarmannahelgin einkennast af miklum ferðalögum. Fyrsta helgin í júlí er einnig stór ferðahelgi og hefur verið stærri en versl- unarmannahelgin í einhverjum tilfellum,“ segir Einar Magnús Magnússon, kynn- ingarstjóri hjá Samgöngustofu. Verslunar- mannahelgin í ár verður þó án efa stór ferðahelgi og segir Einar fulla ástæðu til að minna ferðalanga á mikilvægi þess að nota bílbeltin. „Þótt öryggisbeltin hafi fyrir löngu sannað ágæti sitt og flestir ökumenn noti þau er sá litli hópur ökumanna sem ekki notar öryggisbelti hlutfallslega sá vegfarendahópur sem er í mestri lífshættu. Þetta sýna slysatölur undanfarinna ára og rannsóknarnefnd samgönguslysa telur að allt að helmingur þeirra sem látið hafa lífið í umferðinni á þessu ári hefðu lifað hefðu þeir notað öryggisbelti.“ Aðspurður um hvaða önnur atriði sé gott að hafa í huga áður en lagt er í hann um helgina segir Ein- ar Magnús að þolinmæðin sé án efa besti ferðafélaginn. „Góða skapið og þolinmæðin haldast í hendur, það er oftast þannig. Við viljum einnig brýna fyrir mikilvægi þess að ökumenn leggi ekki of snemma af stað heim eftir skemmtun helgarinnar. Um það bil 20% allra banaslysa í umferðinni eru af völdum þess að ökumaður er undir áhrifum áfengis. Oft eru áhrifin ekki mikil en afleiðingarnar hins vegar mjög alvarlegar.“ umferðarþungi og veðurspá haldast í hendur Starfsmenn Samgöngustofu munu standa vaktina um helgina og miðla upplýsingum og leiðbeiningum til vegfarenda á Bylgj- unni, Rás 1 og Rás 2. „Þegar ástæða þykir til munum við leiðbeina ökumönnum og svo verðum við með upprifjun fyrir okkur öll varðandi eitt og annað sem getur tryggt öryggi okkar enn betur,“ segir Einar Magnús. Búist er við að umferðarþunginn muni ráðast af veðrinu eins og oft áður. „Það er samt alltaf stór hópur fólks sem mætir á ákveðnar hátíðir sama hvernig veðrið er. Það hafa reyndar verið svo örar breytingar á veðri að maður þarf að vera í beinu sam- bandi við veðurguðina til að vera viss.“ Veð- urspáin lofar þó góðu heilt yfir og ekkert bendir til umskipta og eins og svo oft áður verður veður nokkuð breytilegt frá degi til dags. „Góða veðrið og útihátíðirnar dreifast jafnt um landið þannig búast má við nokkuð jafnri umferð um allt land um helgina,“ segir Einar Magnús. „Straumurinn austur í Landeyjahöfn mun þó aukast eftir því sem líða fer á helgina.“ búið að vökva eyjuna Gunnlaugur Grettisson, rekstrarstjóri Herjólfs, var kominn í þjóðhátíðargírinn þegar Fréttatíminn náði af honum tali í gær, fimmtudag. „Við ákváðum að vökva eyjuna aðeins í nótt en það er þurrt núna og aðstæður að verða allar hinar glæsi- legustu.“ Siglingar Herjólfs hafa farið vel af stað og enn er eitthvað laust í dallinn yfir helgina að sögn Gunnlaugs. Herjólfur mun sigla alls 40 ferðir milli Landeyjahafnar og Vestmannaeyja yfir helgina og gert er ráð fyrir 530 farþegum í hverri ferð. Það má því búast við rúmlega 20.000 farþegum um helgina, að því gefnu að allir eigi miða báðar leiðir. „Sem betur fer er það svo í flestum tilvikum og við hvetjum fólk sem á miða heim á þriðjudegi eða seinna að mæta bara í sína ferð en ekki mynda biðröð við höfnina í Vestmannaeyjum,“ segir Gunn- laugur. Hann ráðleggur þjóðhátíðargestum að leggja tímanlega af stað í Landeyjahöfn og vera mætt tveimur tímum fyrir brottför. „Það verður langur gangur frá bílastæðum að afgreiðsluhúsinu og við hvetjum farþega eindregið til að nýta sér strætósamgöngur milli Reykjavíkur og Landeyjahafnar. Það er lang einfaldast og þá þarf fólk heldur ekki að hafa áhyggjur af því að blása fyrir lög- regluna á mánudag.“ erla maría markúsdóttir erlamaria@frettatiminn.is  Ferðalög Þolinmæðin besti FerðaFélaginn um helgina Góða veðrið og umferðin mun dreifast jafnt yfir landið ein stærsta ferðahelgi sumarsins er gengin í garð og landsmenn streyma nú út úr bænum í stríðum straumum. fjöldi útihátíða fer fram um allt land og mun sólin láta sjá sig á þeim öllum á einhverjum tímapunkti. Búist er við að umferðarþunginn muni dreifast nokkuð jafnt yfir landið um helgina. einar magnús magnússon, kynningarstjóri hjá Samgöngu- stofu. Góða veðrið og útihá- tíðirnar dreifast jafnt um landið þannig búast má við nokkuð jafnri umferð um allt land um helgina. Verslunarmannahelgin er gengin í garð, ein mesta umferðarhelgi ársins, þar sem útihátíðir eru víða um land. 4 fréttir Helgin 31. júlí-2. ágúst 2015

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.