Fréttatíminn - 31.07.2015, Blaðsíða 52
Í takt við tÍmann Fanney Hauksdóttir
Elskar Grey´s Anatomy
Fanney Hauksdóttir eru 22ja ára Seltirningur sem undanfarin tvö ár hefur unnið heimsmeistaratitil í
kraftlyftingum í sínum þyngdarflokki. Hún æfir fjórum sinnum í viku og vinnur í sundlaug Seltjarnarnesi í
sumar. Hún ætlar til Krítar í sumar og í vetur ætlar hún annaðhvort að halda áfram í verkfræði sem hún er
búin að vera að læra undanfarið, eða skipta yfir í sálfræðina.
Ég er búin að vera í verkfræði í HR í eitt
og hálft ár en í sumar er ég að vinna í
sundlaug Seltjarnarness. Ég æfi kraft-
lyftingar með Gróttu og í vor náði ég
að verja heimsmeistaratitilinn í undir
63 kg flokki. Í bæði skiptin náði ég að
vinna alla unglingaflokkana. Á veturna
þjálfa ég fimleika hjá Gróttu.
Staðalbúnaður
Ég æfi alveg ótrúlega mikið og er að
þjálfa svo ég er eiginlega alltaf í íþrótta-
fötum. Ég elska æfingafötin frá Nike
og Under Armour og eru þau í miklu
uppáhaldi hjá mér. Ég er alltaf að fara á
æfingu eða að koma af æfingu, svo ég er
vandræðalega mikið í Gróttupeysunni
minni. Það hefur æxlast þannig. Ég á
tvær svo ég get þvegið á milli. Þegar ég
klæði mig upp þá er ég mikið í svörtu.
Ég fylgist ekki mikið með tísku og hef
frekar einfaldan fatasmekk. Ég vel oft-
ast eitthvað svart en poppa það svo upp
með skarti og skóm. Maður býr á Ís-
landi og reynir þá mest að versla erlend-
is. Samt vil ég ekki versla mikið í H&M
því það endist ekki nógu vel. Hér heima
versla ég mest í Top Shop og Zöru.
Hugbúnaður
Ég reyni að fara sem mest í sund sem
mér finnst mjög notalegt. Sérstaklega
eftir æfingar. Ég reyni líka að fara sem
oftast í sumarbústað með kærastanum
mínum. Það er alltaf gott að komast úr
bænum. Ég horfi ekki mikið á sjónvarp
en þó fylgist ég með nokkrum þáttaserí-
um. Ég elska Grey´s Anatomy og svo hef
ég líka verið að horfa á Scandal, sem
mér finnst mjög skemmtilegir. Svo eiga
allir sakamálaþættir mjög vel við mig.
Ég er ekki mikið á djamminu en þegar
ég fer eitthvað með vinkonunum þá för-
um við oftast á B5 eða Prikið. Annars
finnst mér yfirleitt betra að vera bara
í góðu partíi. Gló er í miklu uppáhaldi
þegar kemur að því að borða úti. Svo
finnst mér gott að fara á Grillmarkaðinn
með kærastanum. Það er okkar uppá-
haldsstaður.
Vélbúnaður
Ég er með Macbook Pro og nota hana
mjög mikið. Það er eiginlega ekki
hægt að vera í námi í dag án þess að
eiga góða tölvu. Ég er með iPhone 5
og í honum nota ég Facebook mikið,
en er að reyna að koma mér inn í In-
stagram. Ég er ekki góð í tæknimálum.
Ég fer örugglega fimm sinnum á dag í
Íslandsbankaappið og svo er Snapchat
skemmtilegt líka. Ég er gjörn á að týna
símanum mínum og nota því oft Find
My iPhone appið. Það app hefur fundið
símann minn á undarlegustu stöðum.
Það eina vonda við það er það að sím-
inn pípir ógeðslega hátt sem pirrar þá
sem finna símann. Ég verð alltaf mjög
hamingjusöm þegar ég finn hann. Einu
sinni fannst hann úti á götu.
Aukabúnaður
Mömmumatur er mitt uppáhald. Ég
fer ekki mikið á skyndibitastaði og er
hrifin af týpískum íslenskum mat. Ég á
Yaris sem heitir Gutti og hann fer með
mér hvert sem ég fer. Ég fór í sumarbú-
stað í Aðalvík á Hornströndum með allri
fjölskyldunni í sumar, sem var mjög
skemmtilegt. Eftir verslunarmanna-
helgina er ég að fara að keppa á Evr-
ópumóti í Tékklandi og eftir það fer ég
í frí til Krítar. Sumarið er því bara gott.
Ég er ekki viss hvort ég haldi áfram í
verkfræðinni því ég er búin að skrá
mig í sálfræði í HÍ, ég er svona að
bræða það með mér hvað
ég vel.
Á níundu tónleikum
sumardjasstónleikaraðar
Jómfrúarinnar, veitinga-
húss við Lækjargötu,
laugardaginn 1. ágúst,
kemur kvartettinn
Bjartar vonir fram.
Forsvarsfólk hans
eru píanóleikar-
inn Anna Gréta
Sigurðardóttir
(Bjartasta vonin
í djass- og
blústónlist
samkvæmt Ís-
lensku tónlistar-
verðlaununum
2015) og bassa-
leikarinn Leo
Lindberg (nýj-
asti handhafi
Monicu Zet-
terlund verð-
launanna í
Svíþjóð). Sölvi
Kolbeinsson
leikur á saxófón
og Erik Qvick
á trommur.
Þau munu flytja
fjölbreytt úrval
þekktra djass-
laga. Tónleikarnir
fara fram utandyra
á Jómfrúartorginu.
Þeir hefjast klukk-
an 15 og standa til
klukkan 17. Að-
gangur er ókeypis
að venju og góð
veðurspá. -hf
Anna Gréta leikur
á Jómfrúnni um
helgina.
Bjartar vonir á
Jómfrúnni
52 dægurmál Helgin 31. júlí-2. ágúst 2015