Fréttatíminn - 31.07.2015, Blaðsíða 54
Innbrot hjá Alexöndru
Pressan greindi frá því í vikunni að brotist
hefði verið inn hjá Alexöndru Baldurs-
dóttur, gítarleikara Mammút, og stolið
þaðan ýmsum verðmætum sem hún notar
við tónlistarsköpun. Hún segir tjónið
mikið og biðlar til fólks að hafa augun
opin. Alexandra vakti athygli á þessu á
Facebook-síðu sinni og meðal þess sem
var tekið var voru tölvur og myndavélar í
eigu hennar og unnusta hennar. Hún segir
tjónið vera gríðarlegt því í tölvunum var
öll vinna parsins, en þau eru bæði grafískir
hönnuðir. Vonast er til að hinir óprúttnu
aðilar sjái að sér og skili þýfinu.
Nýtt frá SíSí Ey
Systurnar í Sísí Ey sendu frá sér nýtt lag
í vikunni sem heitir Do It Good. Lagið var
sett á vefsíðuna boilerroom.tv sem er
miðill sem segir frá öllu því heitasta í dans-
tónlistinni í heiminum. Þar segja að nýjasta
lag Sísí ey sé með dillandi góðri bassalínu,
hljóðgervlum og söng sem þeir líkja við
eyrnakonfekt. Hægt er að fara á vefsvæðið
og hlusta á nýja lagið.
Mannakjöt í boði
Ný íslensk hljómsveit lét á sér kræla
í vikunni. Sveitin heitir því geðþekka
nafni Mannakjöt og er skipuð kanónum
í íslensku tónlistarlífi. Meðlimirnir koma
úr Skálmöld, Pollapönki og Ham ásamt
Eurovision kempunum Örlygi Smára og
Valla Sport. Þeir tveir sömdu fyrsta lag
sveitarinnar, Þrumuský, ásamt Pétri Erni
Guðmundssyni, söngvara Buff og Dúndur-
frétta. Mannakjöt kemur fram á Gay Pride
í Reykjavík um næstu helgi og ýmislegt er
fleira í bígerð.
Páll Óskar vinsæll
Páll Óskar frumsýndi nýtt myndband á YouTube í vikunni við lagið
Líttu upp í ljós. Á fyrsta sólarhringnum voru yfir hundrað þúsund
áhorf á lagið sem verður að teljast mjög gott á þessu litla landi.
Palli hefur verið konungur tónlistarbransans í nokkur ár og
greinilegt er að ekkert lát er á vinsældunum. Palli
verður á þjóðhátíð í Eyjum og á Akureyri
um helgina.
Hljómsveitin Steed Lord kemur fram á Innipúkanum og Gay Pride í heimsókn sinni til Íslands.
Dómari Svala BjörgvinS á Skjá 1 í vetur
Svala dæmir í The Voice
Söngkonan Svala Björgvinsdóttir er á landinu ásamt hljómsveit sinni Steed Lord. Þau munu
koma fram á Innipúkanum um helgina og á Gay Pride um næstu helgi. Seinna í mánuðinum
mun Steed Lord koma fram á Gay Pride í Kaupmannahöfn. Meira mun sjást af Svölu á landinu
á næstunni, því hún mun verða einn dómara í þættinum The Voice sem sýndur verður á Skjá 1
í vetur.
v ið komum til landsins í gær (miðvikudag) og verðum á Innipúkanum á laugar-
dagskvöldið,“ segir Svala. „Við spil-
uðum síðast á Íslandi 2013 og erum
því mjög kát með að vera komin
heim. Svo verðum við á Arnarhóli á
Gay Pride um næstu helgi og á Gay
Pride ballinu í Iðnó um kvöldið svo
það er nóg um að vera,“ segir hún.
Steed Lord hefur verið starfrækt
frá Los Angeles síðustu sex ár og
hefur sveitin verið mjög iðinn við
tónleikahald. Á síðasta ári spiluðu
þau á Gay Pride í San Fransisco og
í Palm Springs og fóru í tónleika-
ferð til Rússlands.
„Við erum mikið bókuð og fáum
margar fyrirspurnir og reynum
að taka það sem við getum,“ segir
Svala. „Það er auðvitað smá mál
að fara í gigg í Skandinavíu þegar
maður er búsettur í Kaliforníu.
Annars er það bara bókunarskrif-
stofan okkar sem sér um þetta og
lætur þetta ganga upp Við erum ný-
búin að semja við stærri skrifstofu
sem kemur okkur á stærri viðburði.
Það gengur mjög vel úti,“ segir hún.
„Við erum að taka upp nýja plötu
sem kemur út í vetur og vorum að
klára lag með Sam Sparro, sem
heitir Nightgames, og erum að
gera myndaband við það núna í
ágúst sem verður spennandi,“ segir
Svala sem hefur ekki verið áberandi
hér heima undanfarin sex ár sökum
búsetu sinnar erlendis. Það er þó að
fara að breytast.
„Ég verð dómari í The Voice í
vetur og er mjög spennt fyrir því,“
segir hún. „Framleiðslufyrirtæk-
ið mun fljúga mér heim í nokkur
skipti til þess að taka upp þætt-
ina, svo ég kem oftar í heimsókn
í vetur. Það er alltaf gott að koma
heim og The Voice eru skemmti-
legir þættir,“ segir Svala Björgvins.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
l eik- og söngkonan Ólöf Jara Skagfjörð hefur verið búsett í New York í 3 ár og
lauk leiklistarnámi á síðasta ári frá
leiklistarskólanum Circle In The
Square. Eftir námið hefur hún ver-
ið að reyna fyrir sér í þeim frum-
skógi sem New York er og nýverið
hreppti hún hlutverk í söngleikn-
um All Shook Up sem byggður er
á lögum Elvis Presley en er alls
ekki um hann. Söngleikurinn var
frumsýndur nú í lok júlí í leikhúsi
sem heitir Yorktown Stage sem
er rétt fyrir utan borgina og segir
Ólöf það vera mjög metnaðarfullt
leikhús.
„Ég sá þetta auglýst og maður
nýtir hvert tækifæri sem gefst í
þessari borg,“ segir hún. „Ég fór
í prufu og hreppti aðalhlutverkið,
sem var mjög skemmtilegt. Kar-
akterinn er algjör strákastelpa
sem verður ástfangin af mótor-
hjólatöffara sem heimsækir litla
bæinn hennar og seinna í verkinu
klæðir hún sig upp sem strák til að
komast nær honum. Það var virki-
lega gaman að leika þetta hlut-
verk.“
Ólöf stefnir á að vera áfram
í New York og halda áfram að
krækja í hlutverk. „Þetta er stóra
sviðið og mig langar að reyna mig
áfram á því,“ segir Ólöf Jara Skag-
fjörð leikkona.
leikliSt ólöf jara Skagfjörð hreppti aðalhlutverk í Söngleik
Reynir fyrir sér í stóra eplinu
Ólöf Jara hefur búið í New York í þrjú ár
og segir leiklistarbransann erfiðan, en
lærdómsríkan.
54 dægurmál Helgin 31. júlí-2. ágúst 2015
BEINT FRÁ VERKSMIÐJU
okkar eigin framleiðsla
hágæða
PLANKAPARKET
ENGIR MILLILIÐIR
LÆGRA VERÐ
Síðumúla 31 • 108 Reykjavík • S. 581 2220 • 840 0470 • www.parketverksmidjan.is
ENGIR MILLILIÐIR
LÆGRA VERÐ
BEINT FRÁ VERKSMIÐJU
okkar eigin framleiðsla
hágæða
PLANKAPARKET