Fréttatíminn - 31.07.2015, Blaðsíða 8
B rakið sem fannst á eyjunni Reunion í Indlands-hafi á miðvikudag verður flutt til Frakklands þar sem rannsakað verður hvort það sé hluti af flaki Boeing 777 vélarinnar MH370 sem hvarf í
mars í fyrra. Alls er 239 manns saknað og hafa ættingjar
þeirra barist ötullega fyrir því að leitinni að vélinni verði
haldið áfram svo skýringar megi finna á flugslysinu.
Fyrstu rannsóknir á brakinu benda til þess að hið
tveggja metra langa stykki sem fannst sé að öllum lík-
indum úr Boeing 777, að því er fram kemur á fréttavef
breska ríkissjónvarpsins, BBC. Eina vél þeirrar tegundar
sem týnst hefur yfir opnu hafi er flug Malaysian Airlines,
MH370.
Rannsóknarteymi og fulltrúar ríkisstjórnar Malasíu
eru á leið til Reunion eyju og annað teymi til Toulouse
í Frakklandi þar sem brakið verður rannsakað því Reu-
nion er undir frönskum yfirráðum og er um 370 km aust-
ur af Madagascar, fyrir utan austurströnd Afríku.
Haft er eftir forsætisráðherra Malasíu, Najib Razak, að
fundurinn væri í samræmi við rekkenningu sem malas-
íska rannsóknarteymið hefði sett fram. Hann hét því að
allar upplýsingar yrðu gerðar opinberar um leið og þær
bærust og jafnframt lofaði hann ættingjum hinna látnu
flugfarþega að gefast ekki upp.
Sami maður og fann brakið fann jafnframt leifar af
ferðatösku á sömu slóðum en ekki hefur verið skýrt frá
því hvort ferðataskan sé úr hinni horfnu vél.
Vélin var á leið frá Kuala Lumpur til Beijing þegar hún
hvarf. Helmingur farþega voru kínverskir ríkisborgarar.
Hópur ættingja frá Kína sendi frá sér yfirlýsingu eftir
fundinn þar sem þeir lýstu óskum sínum um að brakið
yrði greint með 100% vissu og að þeir vildu að leitinni
yrði áfram haldið.
Miklar vangaveltur hafa verið um hvarf flugvélarinnar
sem lýst hefur verið sem einni mestu ráðgátu flugsög-
unnar. Þótt farþegar séu nú opinberlega taldir af halda
sumir ættingjar enn í vonina um að einhver finnist á
lífi. BBC hefur eftir Jacquita Gonzales, eiginkonu eins
áhafnarmeðlims, að fréttirnar um brakfundinn hafi ver-
ið tvíbentar. „Hluti af mér vonar að þetta sé [MH370]
þannig að ég geti fundið frið og jarðsett manninn minn
en hinn hlutinn segir: „Nei, nei, nei,“ vegna þess að það
er enn von.“
Sigríður Dögg Auðunsdóttir
sigridur@frettatiminn.is
ErlEnt Brak úr flugvél fannst á Eyju í IndlandshafI
Er mesta ráðgáta flug-
sögunnar að leysast?
Tveggja metra stykki úr flugvél, sem talið er líklegt að sé úr Boeing 777, fannst á eyju í Indlands-
hafi á miðvikudag. Eina Boeing 777 sem horfið hefur yfir hafi er vél Malaysian Airlines, MH370,
og því líklegt að brakið sé úr henni. Það er nú á leið til Frakklands þar sem það verður rannsakað
og vonast ættingjar hinna látnu farþega eftir því að hægt verði að lýsa því yfir með fullri vissu að
það sé úr hinni týndu vél.
Brakið sem fannst á eyjunni Reunion í Indlandshafi á miðviku-
dag er talið vera hluti af væng Boeing 777 flugvélar - sem er
sama gerð og horfna vélin MH370. Ljósmynd/NodicPhotos
BrAk flugvélAr fAnnSt í InDlAnDShAfI
kínA
Beijing
leitarsvæði
km2
Brak fundið
reunion Eyja ÁStAlíA
MAlASíA
Síðasta þekkta staðsetning
kúala
lúmpÚr
120.000
Brak sem fannst
í Indlandshafi
er talið vera
af vélinni sem
hvarf í mars
2014, Mh370.
Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpi@stolpiehf.is
Gámaleiga
Er gámur lausnin fyrir þig?
Búslóðageymsla z Ártíðabundinn lager z Lager z Sumar-/vetrarvörur
Frystgeymsla z Kæligeymsla z Leiga til skemmri eða lengri tíma
Við getum líka geymt gáminn fyrir þig
568 0100
stolpiehf.is
HAFÐU
SAMBAND
Búslóðageymsla n Árstíðarbundinn lager n Lager n Sumar-/vetrarv r r
Frystigeymsla nKæligeymsla n i til ri lengri tíKlettagörðum
5, 104 Reykjavík | stolpi@stolpiehf.is
Gám
aleiga
Er gám
ur lausnin fyrir þig?
Búslóðageym
sla z Ártíðabundinn lager z Lager z Sum
ar-/vetrarvörur
Frystgeym
sla z Kæligeym
sla z Leiga til skem
m
ri eða lengri tím
a
Við getum
líka geym
t gám
inn fyrir þig
568 0100
stolpiehf.is
HAFÐU
SAMBAND
lpigamar.is
l örðum 5, 1 4 Reykjavík | stolpi@stolpigamar.i
8 fréttir Helgin 31. júlí-2. ágúst 2015
11 kg2 kg 5 kg 10 kg
Smellugas er einfalt,
öruggt og þægilegt!
Gas fyrir grillið,
útileguna og
heimilið
Vinur við veginn