Fréttatíminn


Fréttatíminn - 31.07.2015, Page 11

Fréttatíminn - 31.07.2015, Page 11
Kókoshnetuolía inniheldur hátt hlutfall af lárinsýru, eykur upptöku og nýtingu á omega 3 og 6 tusýrum, bætir meltingu, örvar brennslu, styrkir ónæmiskerð, er græðandi, sótthreinsandi og góð fyrir liði, húð og hár. Njóttu þess að borða heilnæma og ölbreytta fæðu sem er líka holl fyrir budduna. Það er heilbrigð skynsemi. Kókoshnetuolía Kaldpressuð/jómfrúar Upplögð • í þeytinginn • í grautinn • í baksturinn • til að smyrja bökunarform • í te og kaffi • til inntöku ein og sér, t.d. 1–2 msk daglega Bragð- og lyktarlaus Upplögð • þegar kókosbragðs er ekki óskað • til steikingar á kjöti, fiski og grænmeti • til að poppa popp • til að smyrja bökunarform • út í te og kaffi Á R N A S Y N IR Heimurinn syrgir Cecil Dráp bandaríska tannlæknisins Walter James Palmer á ljóninu Cecil vakti heims- athygli í vikunni. Palmer og aðstoðarmenn hans lokkuðu ljónið með dýrshræi út úr heimkynnum sínum í Hwange þjóðgarð- inum í Zimbabwe, þar sem ólöglegt er að veiða, og skutu það með riffli eftir 40 tíma eltingaleik eftir að hafa sært það með boga. Cecil var svo afhöfðaður og fláður. Búið er að handtaka leiðsögumanninn og landeigandann sem aðstoðaði við veiðina. Tannlæknirinn, sem er einn hataðasti maður jarðar á samfélagsmiðlum, hefur ekki enn gefið sig fram. 640% fleiri áfengisleyfi Á 22 árum fjölgaði vínveitingaleyfum á Íslandi um 640%. Árið 1992 voru leyfin 134 en í október árið 2014 voru leyfin orðin 857. 313 hafa sagt upp störfum 313 starfsmenn Landspítala hafa sagt upp starfi sinu lausu frá því að verkföll hófust. Þar af er 260 hjúkrunarfræðingar. 26 gæsir dauðar 26 gæsir drápust í vikunni eftir að öku- maður á leið í gegnum Blönduós keyrði inn í miðjan gæsahóp.  Vikan sem Var Plain Vanilla til New York Þorsteinn B. Friðriksson, forstjóri Plain Vanilla, staðfesti í samtali við Viðskiptablaðið að leikjaframleið- andinn muni opna skrifstofu í New York. Þorsteinn segir að ákveðið hafi verið að opna skrifstofuna þar sem fyrirtækið er að leggja meiri áherslu á sölu- og markaðsstarf í Bandaríkjunum. Fleiri hluta- félög – færri gjaldþrot Nýskráningum einkahlutafélaga síðustu 12 mánuði, frá júlí 2014 til júní 2015, hefur fjölgað um 11% sam- anborið við 12 mánuði þar á undan, að því er Hagstofa Íslands greinir frá. Alls voru 2.173 ný félög skráð á tímabilinu. Mest er fjölgun nýskrán- inga í flokknum Byggingastarfsemi og mannvirkjagerð, 48% á síðustu 12 mánuðum. Gjaldþrot einkahlutafélaga síð- ustu 12 mánuði, frá júlí 2014 til júní 2015, hafa dregist saman um 12% samanborið við 12 mánuði þar á undan. Alls voru 744 fyrirtæki tek- in til gjaldþrotaskipta á tímabilinu. Gjaldþrotum í flokknum framleiðsla hefur fækkað mest, eða um 24% á síðustu 12 mánuðum. Alls bjuggu 330.610 manns á Íslandi í lok annars fjórðung ársins, 166.170 karlar og 164.440 konur. Lands- mönnum fjölgaði um 870 á ársfjórð- ungnum. Erlendir ríkisborgarar voru 25.090 og á höfuðborgarsvæð- inu bjuggu 212.120 manns, að því er Hagstofa Íslands greinir frá. Á 2. ársfjórðungi 2015 fæddust 1.050 börn, en 540 einstaklingar létust. Á sama tíma fluttust 350 einstaklingar til landsins umfram brottflutta. Brottfluttir einstakling- ar með íslenskt ríkisfang voru 120 umfram aðflutta, en aðfluttir erlend- ir ríkisborgarar voru 470 fleiri en þeir sem fluttust frá landinu. Fleiri karlar en konur fluttust frá landinu. Noregur var helsti áfangastaður brottfluttra íslenskra ríkisborgara en þangað fluttust 170 manns á 2. ársfjórðungi. Til Danmerkur, Nor- egs og Svíþjóðar fluttust 480 ís- lenskir ríkisborgarar af 680 alls. Af þeim 570 erlendu ríkisborgurum sem fluttust frá landinu fóru flestir til Póllands, 140 manns. Flestir aðfluttir íslenskir ríkis- borgarar komu frá Danmörku, 140, frá Noregi komu 120 og 100  FólksFjöldi landsmönnum Fjölgaði um 870 á öðrum ársFjórðungi Yfir 330 þúsund íbúar á Íslandi Lands- mönnum fjölgaði um 870 á öðrum árs- fjórðingi. Tveir þriðju íbúa lands- ins búa á höfuðborg- arsvæðinu. frá Svíþjóð, samtals 360 manns af 550. Pólland var upprunaland flestra erlendra ríkisborgara en þaðan fluttust 340 til landsins af alls 1.050 erlendum innflytjend- um. Litháen kom næst, en þaðan fluttust 60 erlendir ríkisborgarar til landsins. fréttir 11 Helgin 31. júlí-2. ágúst 2015

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.