Fréttatíminn


Fréttatíminn - 31.07.2015, Page 22

Fréttatíminn - 31.07.2015, Page 22
Ef þú hleypur 10 kílómetra notarðu jafnmikla orku og þarf til að hafa kveikt á einum ljósastaur í átta klukkustundir Opið 10-17 alla daga til 30. ágúst. Leiðarlýsingar á landsvirkjun.is/heimsoknir Gagnvirkar orkusýningar Landsvirkjunar í Búrfelli og Kröflu varpa ljósi á orkuna sem býr í öllum hlutum. Landsvirkjun vinnur rafmagn úr endurnýjanlegum orkugjöfum; vatnsafli, jarðvarma og vindi. Líttu við í sumar. ég að keyra heim seint um kvöldið og það munaði engu að ég sofnaði undir stýri. Ég var með alla glugga opna og tónlistina í botni til að reyna halda mér vakandi, því ég fann að þetta var að hellast yfir mig, en svo rétt náði ég að beygja út af veginum áður en ég stein- sofnaði. Ég sofnaði þarna úti í kanti og vaknaði nokkrum mínútum seinna með orku til að keyra heim, en þegar þessi köst koma þá sofna ég oftast ekkert svo lengi, frá nokkrum sekúndum í nokkr- ar mínútur og þá líður mér eins og eftir margra tíma svefn.“ Léttir að fá greininguna „Ég fann fyrir gífurlega miklum létti þegar ég fékk loks greininguna en þetta ferlið áður en ég var greind var bara ömurlegt, “ segir Eva en það var ekki fyrr en þremur árum eftir fyrstu læknisskoðunina árið 2011 sem hún var loks send í svefnprufur á Land- spítalanum. Eftir tvær svefnrann- sóknir var hún greind með dróma- sýki. „Ég var sofandi í 4 ár og auk þess að þurfa að takast á við það þá var ég mjög pirruð yfir greiningarferl- inu. Mér var alltaf bara sagt að leggja mig, taka vítamín, halda svefnskýrslu og taka svefnvenjurnar föstum tök- um. Enginn áttaði sig á því að ég réð bara alls ekkert við þetta. Það getur enginn ímyndað sér hversu erfitt Eva sofandi á milli tíma í Versló. Hún segir vinkonur sínar hafa hjálpað sér gífurlega mikið í gegnum þessi erfiðu ár og að húmorinn hafi verið þeirra helsta vopn. „Þær sýndu mér alltaf fullan skilning og gátu alltaf fengið mig til að hlæja að annars erfiðum aðstæðum. Þær hjálpuðu mér að sjá erfiðleikana í nýju og bjartara ljósi. Ég veit ekki hvar ég væri án þeirra.“ Það getur enginn ímyndað sér hversu erfitt þetta er, allir líta á svefn sem eitthvað gott svo það er skrítið að reyna að útskýra það hversu óþægilegt þetta er. 22 viðtal Helgin 31. júlí-2. ágúst 2015

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.