Fréttatíminn


Fréttatíminn - 31.07.2015, Page 27

Fréttatíminn - 31.07.2015, Page 27
Skipholt 50c • 105 Reykjavík 582 6000 • www.computer.is Síðan 1986 Verð 99.900 kr. Verð 99.900 kr. Asus 14” skólatölva Þráðlausir Bluetooth hátalarar USB bílahleðslutæki In Win Office PRO • Alvöru tölva á skrifstofuna sem endist og endist • Intel i3 örgjörvi, 8GB vinnsluminni, 240GB SSD diskur, DVD skrifari, nánast hljóðlaus kæling • Windows 8.1 og frí Windows 10 uppfærsla • Flott fartölva fyrir skólafólk • Nett og létt en ótrúlega öflug! • Intel Core i5, 6GB vinnsluminni, 500GB diskur, snertiskjár, DVD skrifari, Bluetooth 4.0, kapal- og þráðlaust net • Windows 8 og frí Windows 10 uppfærsla ICYBOX tvöfalt USB hleðslutæki Verð 1.990 kr. König USB hleðslutæki Fer í sígarettutengi í bíl, styður síma og spjaldtölvur Fer í sígarettutengi í bíl, styður síma og spjaldtölvur Verð 3.990 kr. Verð 3.990 kr. König Chrome 3W Gullfallegur og kröftugur Verð 19.900 kr. Sweex Wireless 20W Fáanlegir í svörtu og hvítu Sendum hvert á land sem er Tölvur og fylgihlutir Áður 109.000 kr. kláruðum tvö síðustu lögin á þessu ári og það er ákveðið sköpunar- stopp á meðan maður er að klára,“ segir hann. „Einhvernveginn er það samt þannig að mann langar að halda áfram. Lögin renna þó ekkert frá mér eins og mörgum lagahöfundum, ég þarf að hafa svo- lítið fyrir þessu,“ segir Finnur. Á plötunni fær Finnur til liðs við sig stórsöngvarana Bubba Morthens, Kristjönu Stefánsdótt- ur, Helga Björnsson, Ragnheiði Gröndal og Pál Rósinkranz. Finnur segir það hafa verið stórkostlegt og gaman að kynnast því hvað þau voru mikið fagfólk í sínu starfi. Hann kallar hópinn sem stóð að plötunni, Árnason & Co. „Það er alltaf smá ótti í manni hvort fólki finnist lögin boðleg, en ég bjó svo vel að dóttir mín, Ebba Katrín, var búin að syngja „demó“ upptökur af lögunum og ég var kominn með ákveðna mynd á þetta, sem þessir söngvarar fengu í hendurnar,“ segir Finnur. „Það var alveg frábært að fá þetta fólk, og þau nálguðust þetta af mikilli fagmennsku og tóku mér öll af- skaplega vel,“ segir hann. „Það sem stendur upp úr í þessu öllu er hvað þau gáfu mikið af sér, og fyrir það er ég þakklátur.“ Áttu auðvelt með að semja lög? „Ég get ekki sagt að ég eigi auð- velt með það,“ segir Finnur. „Ég kemst í gegnum þetta með þrjósku. Þetta er þrjóskuverk og einhverjir segja að þeir þekki fáa jafn þrjóska og mig og það kom mér í gegnum þetta. Ég geri marg- ar tilraunir og kemst einhvernveg- inn í mark.“ Semur þegar það dimmir Finnur segir tónlistardrauminn aldrei deyja út. Það stóð þó aldrei til, á sínum tíma, að setja tónlist- ina í fyrsta sætið. „Nei ég hafði aldrei gaman af því að vera einn á sviði,“ segir hann. „Mér líður ekki vel í því hlutverki. Mesta kvölin á þessum námsárum mínum voru tónleikar í skólanum. Þó maður geti spilað verkin heima þá er ekkert sjálfgefið að maður geti það á tónleikum,“ segir Finnur. „Viðtökurnar hafa verið góðar við þessu uppátæki mínu og það er mikill skilningur á heimilinu fyrir þessu brölti. Eiginkonan og börnin fjögur hafa hvatt mig áfram,“ segir hann. „Ég er þó ekki búinn að semja nein ný lög eftir að platan kom út og það eru ákveðnir timburmenn eftir svona verk- efni. Ég mun semja meira þegar sumarið klárast. Flest lögin fjalla um bjartar sumarnætur, en eru samin að vetri til svo ætli ég bíði ekki eftir að það fari að húma. Þá kemur þetta,“ segir Finnur. Eru starfsmenn Haga ekkert að fá þig til þess að koma fram á skemmtunum innan fyrirtækisins. „Nei, sem betur fer er ekki mik- ið um það,“ segir Finnur og hlær. „Það sýna mér allir skilning innanhúss og ég er á því að stjór- nendur eigi að passa sig á því að vera ekki alltaf í aðalhlutverki,“ segir hann. „Menn í atvinnulíf- inu hafa marga hæfileika utan vinnunnar og margir sem rækta þá. Vonandi er þetta ævintýri mitt bara hvatning til fólks að elta drauma sína, og gera eitthvað sem það hefur langað lengi til að gera,“ segir Finnur Árnason, forstjóri Haga og hljómplötuútgefandi. Hannes Friðbjarnarson hannes@frettatiminn.is Helgin 31. júlí-2. ágúst 2015

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.