Skinfaxi - 01.05.2015, Page 10
10 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
Héraðssambandið Hrafna-Flóki
Þ egar sagan er skoðuð kemur í ljós að sambandið hét í upphafi Ung-menna- og íþróttasamband Vestur-Barðastrandarsýslu. Það var stofnað árið 1944 og gekk þá í UMFÍ og ÍSÍ.
Sambandið lagðist í dvala árin 1946–1950 en
var endurvakið í apríl 1951. Það lagðist aftur
í dá 1954. Þegar Hafsteinn Þorvaldsson og
Sigurður Geirdal fóru í útbreiðsluferð um Vest-
firði haustið 1970 var ákveðið að endurvekja
sambandið. Endurvakning þess var undir
nýju nafni: Hrafna-Flóki. Það er talið stofnað í
febrúar 1971 samkvæmt bréfi HHF til ÍSÍ í
janúar 1972. Héraðssambandið Hrafna-Flóki
starfaði um tíma en svo fór sem fyrr að það
lagðist í dvala. Það var endurvakið 15. maí
1980 og hefur starfað síðan. Á endurreisnar-
þinginu 1980 voru eftirtalin félög: Íþrótta-
félagið Hörður, Íþróttafélag Bílddælinga, Umf.
Tálknafjarðar og Umf. Barðstrendinga. Um
þetta má lesa í þinggerð HHF 1982 og Árbók
Barðstrendinga 1975–1979, bls. 207. Nú eru
átta félög starfandi innan Héraðssambands-
ins Hrafna-Flóka og af íþróttagreinum, sem
stundaðar eru, má nefna knattspyrnu, golf,
skotfimi og körfubolta.
Samvinna félaganna
Að sögn Lilju Sigurðardóttur, formanns HHF,
hefur starfsemin aukist á síðustu árum. Meiri
áhersla er lögð á samvinnu félaganna og að
þau vinni saman sem ein heild. Skotfélag var
stofnað eigi alls fyrir löngu og eru félagar í því
þegar orðnir 50 talsins. Iðkendum er alltaf að
fjölga og í júlí í sumar verður haldið mót.
Starfsemin gengur vel
„Fótboltinn er vinsælastur hjá okkur en körfu-
boltinn er aðeins í lægð. Annars má segja
að starfsemin hjá okkur gangi vel og er ekki
ástæða til annars en að vera bjartsýnn á
framtíðina. Til okkar hefur verið að koma fólk
úr ýmsum íþróttagreinum til að halda nám-
skeið og nú nýlega kom hingað þjálfari frá
Fimleikafélaginu Gerplu og hélt námskeið í
fimleikum. Það vakti áhuga hjá mörgum og
aldrei er að vita hvað gerist í framhaldinu. Það
er svo áformað halda hér námskeið í jassball-
ett í haust og fleira er á döfinni,“ sagði Lilja.
Aðstaðan hefur verið bætt
Lilja sagði aðstöðuna góða en á Patreks-
firði og Bíldudal væru sundlaugar og íþrótta-
hús. Á Patreksfirði hefði útiaðstaðan verið
bætt, gerviefni væri á hástökks- og lang-
stökksbrautum og fyrirhugað væri á næstu
árum að leggja samslags efni á 100 metra
hlaupabraut.
„Samvinna sveitarfélaganna á svæðinu er
góð og þau hafa verið dugleg að styðja okk-
ur. Sveitarfélög gera sér orðið grein fyrir hvað
íþrótta- og æskulýðsstarf gegnir veigamiklu
hlutverki. Fólki hefur fjölgað þó nokkuð hér
á svæðinu síðustu misseri og við heyrum á
því hvað íþrótta- og æskulýðsmálin skipta
miklu máli í búsetuákvörðuninni. Við tókum
stórt skref fram á við með ráðningu íþrótta-
fulltrúa sem ég er viss um að á eftir að vinna
frábært starf. Það er fullt af fólki sem er
tilbúið að vinna með okkur og gera starfið
enn betra,“ sagði Lilja.
Íþróttafulltrúi ráðinn
Páll Vilhjálmsson var ráðinn íþróttafulltrúi
í Vesturbyggð og Tálknafjarðarhreppi á
vormánuðum og ríkir almenn ánægja með
þetta nýja starf á svæðinu.
„Fram undan eru spennandi tímar hjá
Hrafna-Flóka í kjölfar þess samnings sem
gerður var á dögunum. Nú getum við farið af
stað og horft fram á veginn. Það er skemmti-
legt starf fram undan sem á vonandi eftir að
skila sér til allra,“ segir Páll. Páll, sem er sjúkra-
þjálfari að mennt, er Austfirðingur í húð og
hár en eiginkona hans er frá Patreksfirði.
„Fyrir liggur ákveðin stefnumótunarvinna
á svæðinu í íþróttum almennt. Verkefnin eru
ærin og þetta samstarf á bara eftir að þjappa
okkur saman og iðkendum á eftir að fjölga.
Það er nú tilgangurinn með þessu og ég er
viss um að þessi markmið eiga eftir að nást,“
sagði Páll.
Sveitarfélögin hafa stutt okkur vel
Páll Vilhjálmsson
íþróttafulltrúi og
Lilja Sigurðardóttir,
formaður Hrafna-
Flóka.