Skinfaxi - 01.05.2015, Blaðsíða 14
14 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
Ungmennasambandið Úlfljótur hélt 82.
ársþing sitt í Mánagarði í Nesjum þann 26.
mars sl. Ýmislegt var á döfinni hjá USÚ á árinu
og má þar nefna þátttöku í Unglingalands-
mótinu á Sauðárkróki og verkefnunum Fjöl-
skyldan á fjallið og Hreyfivikan (Move Week).
Nokkrar tillögur og ályktanir voru sam-
þykktar á þinginu, svo sem hvatning til ung-
mennafélaga til að fjölmenna á Landsmót
UMFÍ 50+ á Blönduósi og á Unglingalands-
mót UMFÍ á Akureyri. Þá voru stjórnir aðildar-
félaga hvattar til að leita leiða til að auka sam-
starf yngri flokka í ólíkum íþróttagreinum.
Hreinn Eiríksson var útnefndur heiðursfélagi
USÚ á þinginu. María Birkisdóttir var kjörin
íþróttamaður USÚ 2014. Hvatningarverð-
laun hlutu þau Ingibjörg Lucía Ragnars-
dóttir, Ingibjörg Valgeirsdóttir og Gísli Þórar-
inn Hallsson.
Ragnheiður Högnadóttir í varastjórn UMFÍ
flutti ávarp og kveðju starfsfólks og stjórnar
UMFÍ. Að lokum sæmdi hún Sigrúnu Sigur-
geirsdóttur, formann Umf. Öræfa, starfsmerki
UMFÍ.
Matthildur Ásmundardóttir, fráfarandi
formaður, gaf ekki kost á sér til endurkjörs.
Í hennar stað var Páll Róbert Matthíasson
kjörinn formaður. Auk hans eru í stjórn
Jóhanna Íris Ingvarsdóttir, ritari, og Sigurður
Óskar Jónsson, gjaldkeri.
Ársþing USÚ:
Páll Róbert Matthíasson kjörinn formaður USÚ
Ungmennasamband Austur-Húnvetninga hélt 98. ársþing
sitt 21. mars sl. á Blönduósi. Alls mættu 33 fulltrúar á þingið.
Á þinginu voru m.a. sex tillögur um ýmis málefni samband-
sins teknar fyrir og ræddar og að lokum allar samþykktar.
Hvatningarverðlaun USAH hlaut Júdófélagið Pardus fyrir
öflugt starf og góðan árangur. Einnig fengu þau félög innan
sambandsins sem eiga stórafmæli á þessu ári afmælisplatta að
gjöf frá sambandinu. Ómar Bragi Stefánsson, landsfulltrúi UMFÍ,
flutti ávarp og kveðjur starfsfólks og stjórnar UMFÍ.
Aðalbjörg Valdimarsdóttir var kjörin formaður sambandsins.
Með henni í stjórn eru Hafdís Vilhjálmsdóttir, varaformaður, Val-
gerður Hilmarsdóttir, gjaldkeri, Guðrún Sigurjónsdóttir,
meðstjórnandi, og Sigrún Líndal, ritari.
Ársþing USAH:
Gjafir til félaga sem
eiga merkisafmæli
Héraðssamband Strandamanna hélt árs-
þing sitt í Félagsheimilinu á Hólmavík 30.
apríl sl. Gestgjafi þingsins í ár var Skíðafélag
Strandamanna. Alls mættu 28 þingfulltrúar
á þingið sem var undir öruggri fundarstjórn
Þorgeirs Pálssonar.
Hrönn Jónsdóttir, stjórnarmaður í UMFÍ,
ávarpaði þingið og sæmdi Þorstein Newton
starfsmerki UMFÍ fyrir óeigingjarnt og ötult
starf, meðal annars sem gjaldkeri HSS síðast-
liðin sjö ár.
Viktor Gautason var valinn efnilegasti
íþróttamaður HSS árið 2014 og Jamison Ólaf-
ur Johnson var sæmdur nafnbótinni íþrótta-
maður HSS árið 2014. Ingibjörg Benedikts-
dóttir hlaut hvatningarbikar UMFÍ fyrir öflugt
starf í þágu almenningsíþrótta.
Nokkrar breytingar urðu á stjórn HSS. Nýja
stjórn skipa Vignir Örn Pálsson, formaður,
Hrafnhildur Þorsteinsdóttir, varaformaður,
Dagbjört Hildur Torfadóttir, gjaldkeri, Guð-
björg Hauksdóttir, ritari, og Ragnar Braga-
son, meðstjórnandi.
Ársþing HSS:
Þorsteini Newton veitt
starfsmerki UMFÍ
Þann 11. júní sl. voru undirritaðir sögu-legir samningar í Fjölvali á Patreks-firði. Um er að ræða samstarfssamn-
inga á milli Héraðssambandsins Hrafna-
Flóka og sveitarfélaganna Vesturbyggðar
og Tálknafjarðarhrepps annars vegar og
Hrafna-Flóka og sex af stærstu fyrirtækjun-
um á sunnanverðum Vestfjörðum hins
vegar. Fyrirtækin eru Oddi hf., Patreksfirði,
Þórsberg ehf., Tálknafirði, Landsbankinn,
Patreksfirði, Arnarlax ehf., Fjarðalax ehf. og
Íslenska Kalkþörungafélagið ehf., Bíldudal.
Í byrjun febrúar 2014 var haldinn stefnu-
mótunarfundur að tilstuðlan Hrafna-Flóka í
samstarfi við Vesturbyggð og Tálknafjarð-
arhrepp. Á fundinum var staða íþrótta- og
æskulýðsmála á svæðinu greind. Farið var
yfir styrkleika og veikleika, ógnanir og tæki-
færi. Einnig var farið yfir hvernig væri hægt
að bæta stöðuna. Að lokum voru niður-
Sögulegir samningar hjá Hrafna-Flóka
stöðurnar dregnar saman og nokkur atriði
sett sem forgangsverkefni. Efst á þessum for-
gangslista var að fá starfsmann, íþróttafull-
trúa á sunnanverðum Vestfjörðum, sem ynni
bæði fyrir HHF og sveitarfélögin. Þann 1.
júní sl. tók til starfa á þessum vettvangi Páll
Vilhjálmsson. Annað atriði á forgangslistan-
um var að fá styrk frá bæði sveitarfélögum
og fyrirtækjum á svæðinu ásamt því að
auka jákvæðni á svæðinu gagnvart starf-
seminni.
Samningarnir eru í samræmi við yfirlýst
markmið samstarfsaðila HHF um að styrkja
það mikilvæga æskulýðs- og íþróttastarf
sem HHF stendur fyrir meðal barna og
unglinga á sambandssvæðinu.
Við undirritunina tóku til máls, auk Lilju
Sigurðardóttur, formanns HHF, og Valdi-
mars Gunnarssonar, Ásthildur Sturludóttir
bæjarstjóri í Vesturbyggð, Indriði Indriða-
son, sveitarstjóri Tálknafjarðarhrepps, og
Einar Sveinn Ólafsson, framkvæmdastjóri
Ískalks. Lýstu þau yfir ánægju með undir-
ritun samstarfssamninganna og undir-
strikuðu mikilvægi þeirra með vel völdum
orðum.
Fulltrúar aðila
sem undirrituðu
samninganna á
Patreksfirði.
Jamison Ólafur Johnson
íþróttamaður HSS 2014.
Stjórn USAH.
Ragnheiður Högnadóttir, stjórn UMFÍ, ásamt Sigrúnu
Sigurgeirsdóttur sem var sæmd starfsmerki UMFÍ.