Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.05.2015, Side 16

Skinfaxi - 01.05.2015, Side 16
16 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands Talsverðar breytingar urðu á stjórn Ungmennafélags Grindavíkur á aðal- fundi þess sem haldinn var 9. júní sl. í nýrri og glæsilegri félagsaðstöðu í nýja íþróttamannvirkinu við Austurveg. Gunnlaugur Jón Hreinsson lét af störfum sem formaður UMFG en í hans stað var Sigurður Enoksson kjör- inn nýr formaður. Gunnlaugur hefur verið ötull forystumaður í íþróttahreyf- ingunni í Grindavík og verið í aðalstjórn með hléum frá 1976, eða í hartnær 40 ár. Gunnlaugi voru þökkuð góð störf fyrir félagið. Auður Inga Þorsteinsdóttir, nýr fram- kvæmdastjóri UMFÍ, mætti á fundinn og flutti kveðju frá stjórn og starfsfólki UMFÍ. Alls buðu fimm einstaklingar sig fram í fjögur sæti í aðalstjórn og því þurfti að kjósa á milli þeirra. Kjartan Fr. Adólfsson, Guðmundur Bragason, Rúnar Sigurjónsson og Bjarni Már Svavarsson voru kjörnir í stjórnina. Í Héraðsþing HSV var haldið þann 20. maí sl. í félagsheimilinu á Þingeyri. Um 50 manns mættu á þingið en þó vantaði fulltrúa frá nokkrum félögum. Á þinginu var kynnt og samþykkt ný reglugerð fyrir afrekssjóð HSV en markmiðið með henni er að styðja enn betur við unga og efnilega íþróttamenn. Guðný Stefanía Stefánsdóttir var endurkjörin formaður sambandsins. Tveir gengu úr stjórn og voru kosin í þeirra stað þau Hildur Elísabet Péturs- dóttir og Ingi Björn Guðnason. Fyrir voru í stjórn og starfa áfram þau Pétur G. Markan og Birna Jónasdóttir. Vara- mennirnir Sigurður Erlingsson, Jóhann Króknes Torfason og Elín Marta Eiríks- dóttir gáfu öll kost á sér til áframhald- andi starfs og voru kjörin með lófa- klappi. Veitt voru silfurmerki HSV fyrir gott og óeigingjarnt starf innan íþrótta- hreyfingarinnar. Íþróttafélög innan vébanda HSV tilnefndu tíu einstakl- inga og voru þeir allir heiðraðir. Frá Blakfélaginu Skelli voru tilnefndar Harpa Grímsdóttir, Sólveig Pálsdóttir og Þorgerður Karlsdóttir. Skíðafélag Ísfirðinga tilnefndi Gunnar Þór Sig- urðsson, Jónas Gunnlaugsson, Sigurð Erlingsson og Þórunni Pálsdóttur. Boltafélag Ísafjarðar tilnefndi Hannes Hrafn Haraldsson, Hildi Elísabetu Pétursdóttur og Stellu Hjaltadóttur. Héraðsþing HSV: Markmiðið að styðja enn betur við unga og efnilega íþróttamenn varastjórn voru kosnir Gunnlaugur Jón Hreinsson, Magnús Andri Hjaltason og Jón Þór Hallgrímsson. Rekstur og starfsemi UMFG á síðasta starfsári gekk vel. Unnið hefur verið að margvíslegum verkefnum til að efla innra starf félagsins. Mesta framfara- skrefið felst í nýrri og glæsilegri félags- aðstöðu sem mun án efa gjörbylta starfsemi félagsins. Þá verður ráðinn Aðalfundur Umf. Grindavíkur: Sigurður Enoksson nýr formaður Umf. Grindavíkur íþróttafulltrúi í hlutastarf í haust til að efla innra starfið enn frekar. „Ég hef lifað og hrærast í íþróttum í Grindavík og þekki alla innviði vel. Mér líst vel á framhaldið og það eru spennandi tímar fram undan. Það hef- ur alltaf verið vel staðið að íþróttamál- um í Grindavík en með nýjum mönn- um koma nýjar áherslur. Hlutirnir munu gerast hægt og vel. Nýja félagsaðstað- Á aðalfundi Umf. Grindavíkur sem haldinn var í nýrri og glæsilegri félagsaðstöðu. Guðný Stefanía Stefánsdóttir, formaður HSV, ásamt þeim sem hlutu silfurmerki HSV fyrir gott og óeigingjarnt starf í þágu íþróttahreyfingarinnar. an er frábær í alla staði. Hún á eftir að gefa öllu starfinu meira líf, á því leikur enginn vafi, og allar deildir innan UMFG munu njóta góðs af,“ sagði Sigurður í spjalli við Skinfaxa. Sigurður Enoksson, formaður UMFG. Héraðssambandið Hrafna-Flóki hélt 36. héraðsþing sitt á veitinga- staðnum Hópinu á Tálknafirði þann 29. apríl sl. Mótaskrá sumarsins var samþykkt auk þess sem tilkynnt var um val á íþróttafólki ársins 2014. Nýr íþróttafulltrúi, Páll Vilhjálmsson, var kynntur til starfa en hann hóf störf 1. júní sl. Saga Ólafsdóttir, Íþróttafélaginu Herði (ÍH), var valin frjálsíþróttamaður HHF auk þess að vera íþróttamaður HHF árið 2014. Knattspyrnumaður HHF var valinn Einar Jónsson frá ÍH, sund- maður HHF var valin Guðrún Ósk Aðal- steinsdóttir frá Ungmennafélagi Tálkna- Héraðsþing HHF: Stjórn Hrafna-Flóka endurkjörin fjarðar (UMFT) og Gabríel Ingi Jóns- son frá UMFT var valinn körfuknattle- iksmaður HHF. Ein umsókn í Minningarsjóð Stefáns Jóhannesar Sigurðssonar barst árið 2014 en tilgangur sjóðsins er að styrkja unga og efnilega íþróttamenn innan Héraðssambandsins Hrafna-Flóka til frekari þjálfunar. Hilmir Freyr Heimis- son fékk styrk en hann er skákmaður og varð m.a. Íslandsmeistari í skóla- skák 2013. Hilmir Freyr á glæstan feril að baki og má nefna að hann varð unglingameistari Hellis 2012, ungl- ingameistari TR 2011 og varð barna- blitzmeistari á Reykjavík Open 2012. Engin breyting varð á stjórn HHF en stjórnina skipa Lilja Sigurðardóttir, formaður, Sædís Eiríksdóttir, með- stjórnandi, og Birna Friðbjört Hannes- dóttir, meðstjórnandi. Varastjórn skipa Heiðar Jóhannsson, Kristrún A. Guðjónsdóttir og Ólafur Byron Kristjánsson. Stjórn HHF: Lilja Sigurðardóttir, Sædís Eiríksdóttir og Birna Friðbjört Hannes- dóttir.

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.