Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.05.2015, Blaðsíða 19

Skinfaxi - 01.05.2015, Blaðsíða 19
 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 19 sælda Á landsmótinu var boðið upp á 22 fjöl- breyttar íþróttagreinar og fjölda „nýrra íþrótta“ sem nutu mikilla vinsælda. Hjólreiðar og MTB voru t.d. með 544 þátttakendur, 980 tóku þátt í kajaksiglingum og um 1.200 í hlaupum. Fimleikar voru fjölmennasta greinin á þessu móti eins og lengst af hefur verið og setja þeir ávallt mikinn svip á dönsku landsmótin. Opnunarhátíðir og lokahátíðir dönsku landsmótanna eru alltaf sannkallaðir stór- viðburðir. Í þeim tekur m.a. þátt fjöldi sýn- ingarhópa frá dönskum ungmennaskólum. Sýningarnar ná gjarnan hámarki þegar heimsliðið, eða DGI Verdensholdet eins og það er kallað, sýnir en það er sérstakur sýn- ingarhópur sem settur er saman tveimur árum fyrir mót. Hjá þeim er eitt ár tekið í að æfa upp sýningu sem síðan er farið með um heiminn. Lokasýningin er svo jafnan á landsmótinu. Á landsmótinu 2013 setti DGI af stað nýja herferð undir heitinu „Fedt du er frivillig“ þar sem lögð var áhersla á aðkomu og mikilvægi sjálfboðaliða í starfinu. Næsta landsmót DGI verður haldið í Ála- borg á Norður-Jótlandi dagana 6.–9. júlí 2017 og er þetta í fyrsta skipti sem mótið er haldið þar. Ákvörðun um mótsstaðinn var tilkynnt í desember 2012 en auk Álaborgar sóttu Vejle, Slagelse, Viborg og Holstebro um að fá að halda mótið. Yfirskrift mótsins verður „Íþróttirnar út í bæinn“ (Idretten ud í byens rum) þar sem sýningar, keppnir og fjölbreyttir viðburðir verða í hjarta bæjarins. Við höfnina í Álaborg verður reist sérstök landsmótsmiðstöð þar sem opnunarhátíð mótsins verður. Yfirvöld í Álaborg gera ráð fyrir að kostnaður borgar- innar vegna landsmótsins geti orðið um 25 milljónir danskra króna. Af þeirri upphæð koma 5 milljónir frá styrktaraðilum og öðr- um utanaðkomandi aðilum. Um 20 milljónir koma frá borginni sjálfri. Örn Guðnason tók greinina saman og byggði á efni af heimasíðu DGI (www.dgi.is) og úr tímaritinu Udspil.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.