Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.05.2015, Qupperneq 24

Skinfaxi - 01.05.2015, Qupperneq 24
24 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands „Siglingar eru mjög gömul íþrótt með sterka hefð. Vinsældir þeirra eru töluverðar og sér- staklega hefur verið vinsælt hjá krökkum það sem boðið er upp á hjá félögunum yfir sumar- mánuðina. Siglingar eru í boði í Reykjavík, á Akureyri, í Hafnarfirði, á Sauðárkróki og víðar og þátttakan frábær. Það er rosalega skemmti- leg upplifun hjá krökkunum að komast í tæri við sjóinn og fá að gera það í öruggu um- hverfi. Það lætur nærri að tvö þúsund krakkar sæki námskeið með ýmsum hætti á sumrin. Þessi fjöldi endist því miður ekki alltaf í sport- Úlfur Helgi Hróbjartsson formaður Siglingasambands Íslands: Skemmtileg upplifun hjá krökkunum að komast í tæri við sjóinn inu en þetta er gríðarlegur hópur,“ sagði Úlfur Helgi Hróbjartsson, formaður Siglingasam- bands Íslands, í samtali við Skinfaxa. Þess má geta að um eitt þúsund manns stunda reglubundið siglingar hér á landi og um 500 manns kajakróðra. Um 300 manns taka þátt í keppni þar sem notaðir eru stærri bátar, svokallaðir kjölbátar. Um 5% fjölgun iðkenda hefur orðið á ári hverju síðustu 10 árin. Úlfur Helgi var spurður hvort siglingar væru ekki erfið íþrótt á Íslandi. „Þegar ég var krakki var ekki auðvelt að verða sér úti um góðan búnað en í dag horfa málin allt öðruvísi og betur við. Það getur orðið kalt og blautt og skiptir þá miklu máli að vera vel útbúinn. Góðan klæðnað er hægt að nálgast á skaplegu verði. Íþróttin er líkam- lega erfið er skemmtileg og gefandi. Að vera vélarlaus úti á sjó er einstakt og ég veit ekki um betri tilfinningu heldur en að vera stadd- ur einhvers staðar úti á Ballarhafi á góðum bát í góðum byr,“ sagði Úlfur Helgi.

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.