Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.05.2015, Page 25

Skinfaxi - 01.05.2015, Page 25
 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 25 Siglingasamband Íslands var stofnað 1973 af siglingafélögum á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri. Siglingafélögunum Brokey og Ými var komið á fót árið 1971 af ungu og áhugasömu fólki um siglingar og keppni í þeirri grein, en Nökkvi, félag siglingamanna á Akureyri, hafði starfað nokkur ár. Á höfuð- borgarsvæðinu höfðu bæjarfélögin rekið sigl- ingaklúbba sem þátt í æskulýðsstarfsemi og þaðan komu áhugasamir einstaklingar sem ruddu brautina fyrir nútímasiglingum á Ís- landi og þar með keppnishaldi. Fyrstu opin- beru siglingakeppnirnar voru í tengslum við hátíðahöld Sjómannadagsins og hófust fyrir og um 1970. Kjölbátar kallast seglbátar sem að jafn- aði eru sex metrar eða stærri og eru með þungan og djúpan kjöl til að vega á móti hinum háa seglabúnaði. Mikil fjölbreytni er í þessum flokki og má m.a. nefna ferðabáta sem búnir eru eins og besti sumarbústaður, keppnisbáta sem eru íburðarminni en hafa á móti mun betri siglingaeiginleika og sport- báta sem eru ákjósanlegir til styttri keppni og kennslu. Til að jafna þann mun sem er á bátum er notast við forgjöf þegar keppt er. Opnir, léttir seglbátar kallast kænur. Út- breiddust er Optimist-kænan sem notuð er til kennslu og þjálfunar fyrir börn og ungl- inga. Mikið úrval er af kænum í heiminum en Siglingasambandið hefur markað stefnu um að leggja áherslu á Optimist og síðan Laser fyrir þá sem vaxnir eru upp úr Optimist. Laser er eins manns kæna sem m.a. er notuð til keppni á Ólympíuleikunum. Róður á kajak hefur aukist mikið á undan- förnum árum. Kajökum má skipta í tvo megin- flokka, þ.e. sjókajaka og straumvatns- kajaka. Sjókajak er tilvalið að nota til styttri og lengri ferðalaga en straumvatnskajak fylg ir mikil spenna sem felst í því að sigla niður ár og flúðir. Í upphafi voru siglingar eins og aðrar íþrótta- greinar barn síns tíma. Bátakostur var rýr og þekking á reglum brotakennd og keppnis- hald tilviljanakennt. Eftir það hefur þróunin öll verið upp á við og nú standa íslenskir sigl- ingamenn jafnfætis félögum sínum um heim allan. Siglingasamband Íslands (SÍL) hefur í sam- ráði við aðildarfélögin mótað heildarstefnu og sett reglur um öll þau málefni sem grein- ina varða. Þar má nefna afreksstefnu í sam- ræmi við stefnu ÍSÍ um þátttöku í erlendum stórmótum, þ.m.t. Ólympíuleikum, reglur um samræmd markmið og leiðir í þjálfun og kennslu siglingafélaganna og viðurkenningu á barna- og unglingastarfi sem félögin reka á sumrin. Réttinda- og öryggismál eru einnig ofarlega á baugi og er það stefna SÍL og aðildarfélaganna að þau málefni séu ákvörð- uð innan hreyfingarinnar en ekki af hinu opin- bera. Því er kappkostað að vera leiðandi í þeim efnum og fylgja ströngustu kröfum án þess þó að hefta möguleika íþróttarinnar. SÍL hefur lagt áherslu á þátttöku í erlendu sam- starfi um málefni íþróttarinnar og átt hlut að Norræna siglingasambandinu og ISAF, Alþjóðasiglingasambandinu, með þátttöku í fundum og þingum og hefur um árabil átt fulltrúa í nefndum ISAF. Þessi þátttaka hefur skilað SÍL miklum árangri á öllum sviðum og verið sambandinu ómetanleg við innri upp- byggingu og stórstígar framfarir einstakl- inga og íþróttarinnar í heild. Fróðleikur um siglingar

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.