Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.05.2015, Side 31

Skinfaxi - 01.05.2015, Side 31
 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 31 Eftirtaldir aðilar styðja starfsemi Ungmennafélags Íslands: Ísafjörður Sjúkraþálfun Vestfjarða ehf., Eyrargötu 2 Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Suðurgötu 12 Súðavík VÁ VEST, félag um vímuefnaforvarnir Innri-Grund Tálknafjörður Þórsberg ehf., Strandgötu 25 Árneshreppur Hótel Djúpavík ehf., Djúpavík Blönduós Stéttarfélagið Samstaða, Þverbraut 1 Sauðárkrókur Vinnuvélar Guðmundar/Skúla sf. Borgarröst 4 Samstarfssamn- ingur milli UMSB og Skorradals- hrepps Undirritaður hefur verið samstarfssamning- ur milli Ungmennasambands Borgarfjarðar og Skorradalshrepps. Eins og kunnugt er nær starfssvæði UMSB yfir þrjú sveitarfélög: Borgarbyggð, Skorradalshrepp og Hvalfjarð- arsveit. Árið 2013 var undirritaður samningur við Borgarbyggð um aðkomu UMSB að íþrótta- málum og ýmsum verkefnum þeim tengd- um í sveitarfélaginu og nú er búið að ganga frá sambærilegum samningi við Skorradals- hrepp. Samningi þessum er fyrst og fremst ætlað að jafna stöðu allra íbúa á starfssvæði UMSB, en mikilvægt er að allir íbúar á starfssvæðinu eigi jafna möguleika á að nýta sér þjónustu UMSB, eins og t.d. að sækja styrki í afreks- mannasjóð UMSB og séu gjaldgengir í kjöri á íþróttamanni Borgarfjarðar. Fram kemur að nauðsynlegt sé að hlut- verk UMSB gagnvart sveitarfélögunum á starfssvæðinu sé skýrt og vel skilgreint og eins hlutverk sveitarfélaganna gagnvart UMSB, en það er einmitt eitt af stefnumálum UMSB að þessi hlutverk séu skrifleg og skýr í samningi milli aðila. Pálmi Blængsson, framkvæmdastjóri UMSB, og Árni Hjörleifsson, odd- viti Skorradals- hrepps, handsala samninginn. U ngmennafélag Íslands veitir ungu fólki, sem hyggur á nám við lýð-háskóla í Danmörk, styrki fyrir náms- árið 2015–2016. UMFÍ og Højskolernes Hus í Kaupmannahöfn hafa gert með sér samstarfssamning um verkefni tengt námsdvöl íslenskra ungmenna við lýð- háskóla í Danmörku. Højskolernes Hus heldur utan um alla lýðháskólana og því er námsframboðið mjög fjölbreytt. Markmið verkefnisins er að gefa ungu fólki tækifæri til að víkka sjóndeildarhring sinn, kynnast nýju tungumáli og menn- ingu, auka færni sína og þekkingu á völdu sviði í gegnum óformlegt nám og styrkja leiðtogatogahæfileika sína um leið. UMFÍ styrkir þátttakendur til náms og verður fyrirkomulag styrkja kynnt á kynn- ingarfundi fimmtudaginn 20. ágúst nk., kl.16:00. Kynningarfundurinn verður hald- inn fyrir þau ungmenni sem hyggjast vera í námi heilt ár og á haustönn 2015. Á kynningarfundinum verða markmið verkefnisins kynnt, farið yfir hlutverk nem- enda, væntingar til námsins og skil á loka- skýrslum og samningar vegna styrkja undirritaðir. Kynningarfundur fyrir ung- menni, sem ætla sér í nám á vorönn 2016, verður auglýstur síðar. Umsóknarfrestur fyrir styrki á haust- önn 2015 og heilt ár er til föstudagsins 31. júlí. Umsóknarfrestur fyrir styrki á vorönn 2016 er til föstudagsins 20. nóvember. Allar nánari upplýsingar veitir Sabína Steinunn Halldórsdóttir, landsfulltrúi UMFÍ, sabina@umfi.is eða í síma 568 2929. Myndirnar hér til hliðar eru frá Íþróttalýð- háskólanum í Sönderborg. Samstarf Ungmennafélags Íslands og lýðháskólanna í Danmörku

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.